Ísfirðingur - 14.12.1992, Síða 6

Ísfirðingur - 14.12.1992, Síða 6
6 ISFIRÐINGUR SKOÐANIR JÓNS SIGURÐSSONAR Á SKÓLAMÁLUM FYRIR 150 ÁRUM Jón Sigurðsson. Naumast þarf að kynna Jón Sigurðsson forseta fyrir vest- firskuni lesendum. Hér skulu þó fyrst rifjuð upp nokkur helstu æviatriði hans. Jón fæddist að prestsetrinu Rafnseyri (svo var bærinn venjulega nefndur þá) við Arnarfjörð hinn 17. júní 1811. Foreldrar hans voru séra Sig- urður Jónsson og kona hans Þórdís Jónsdóttir. Hón var af vestfirskum ættum, dóttir séra Jóns Asgeirssonar í Holti, og er venjulega talið að Jón hafi verulega líkst móðurfólki sínu. Jón átti tvö systkini, Jens, síðar rektor Lærða skólans í Reykjavík, og Margréti, sem var húsfreyja í Arnarfirði; bæði eignuðust þau marga af- komendur. Séra Sigurður kenndi syni sínum undir skóla, og hann var síðan brautskráður sem stúd- ent af séra Gunnlaugi Oddssyni dómkirkjupresti í Reykjavík vorið 1829. Árin 1830-33 var Jón skrifari hjá Steingrími biskupi Jónssyni. Haustið 1833 hélt Jón til Kaupmannahafnar til háskólanáms. Árið eftir lauk hann aðfararnámi í heimspeki- legum forspjallsvísindum, en hóf síðan málfræðinám hið meira í latínu, grísku og sögu með stærðfræði og heimspeki sem aukagreinar. Þessu námi lauk hann aldrei. Árið 1835 hóf hann störf við Árnasafn í Kaupmannahöfn, og upp úr þessu fór hann að sinna rit- störfum. Hann stofnaði 1841 tímaritið Ný félagsrit og birti þar fjölda ritgerða. Fljótlega bar mjög á stjórnmálaáhuga hans, hann var þingmaður Is- firðinga (Isafjarðarsýslu) frá stofnun hins nýja Alþingis í Reykjavík 1845 allt til dauða- dags og sat síðast á þingi 1877. Hér er ekki rúm til að rekja hin geysiþýðingarmiklu störf Jóns að íslenskum þjóðfrelsismál- um. Heimili hans var öll þessi ár í Kaupmannahöfn, en þar bjó hann ásamt konu sinni Ingibjörgu Einarsdóttur; þau voru barnlaus. Jón andaðist eftir talsverðan sjúkleika liinn 7. desember 1879. Frá árinu 1851 og allt til dauðadags var Jón forseti Kaupmannáhafnardeildar Hins íslenska bókmenntafélags, og það var vegna þeirrar veg- semdar sem hann gekk einatt undir viðurnefninu „forseti“. Reyndar var hann einnig lang- tímum saman forseti Alþingis. Um skóla á íslandi. Þegar Jón Sigurðsson gaf út Ný félagsrit í annað sinn, árið 1842, fyrir réttum 150 árum, skrifaði hann í tímaritið, bls. 67- 167, mjög merkilega og langa ritgerð sem nefnist „Um skóla á íslandi.“ Jón var ekki nema 31 árs gamall og vafalaust mjög opinn fyrir nýjungum þegar hann birti ritgerðina. Það verður að telja mjög forvitnilegt að athuga við- horf hans til þessa þýðingarmikla málaflokks. Fyrsti hluti ritgerðarinnar nefnist „Almennt yfirlit. Augna- mið skóla.“ Fyrst segir, að mestu varði fyrir íslendinga að þrjú efni verði útkljáð, alþingismálið, skólamálið og verslunarmálið. Orðrétt segir Jón um eðli menntunar: „Öll framför mann- kynsins er byggð á því, að halda við því sem einusinni er numið, og láta það gánga frá einum knérunni til annars; með því að ein kynslóð býr þannig undir fyrir aðra, verður því komið til leiðar að mannkyninu fer alltaf fram þegar á allt er litið, þó opt hafi verið farið afvega, og stund- um sýnizt heldur reka en gánga. Aðal-meðalið til að halda því við sem numið er, er að kenna það sem flestum, og meðalið til að kenna það er málið, síðan ritið og seinast prentið.“ (bls.70). Af þessum orðum sést vel við- horf Jóns til framfaranna, sem svo mjög tengjast á hverjum tíma þekkingunni og öflun hennar. Litlu aftar ræðir hann svo um tvær hliðar athafna og vísinda: „En eptir því sem mönnum fer meira fram í þekkíngunni, eptir því sjá menn ljósar, hversu greinir mentunarinnar verða margbrotnar og miklar í sér hver um sig; það leiðir til þess, á ann- ann bóginn að hverr fer að taka sína grein, bæði í lærdómi og líkamligri athöfn, en á hinn bóg- inn að greinirnar eru flokkaðar saman þær sem skyldastar eru, og nákvæmliga athugað hverjar greinir heyri hverri athöfn; og þareð hver grein athafna og vís- inda hefir tvær hliðar, aðra innri, sem er þekkíngar og lærdóms, og aðra ytri, sem er kunnáttu og verknaðar, þá taka menn að sér sinn hvorja þessara hliða, svo að sumir stunda meir hið vísindaliga en sumir meir verknaðinn.“ (bls. 71). Almenn menntun er nauðsynleg. Eftir að Jón hefur þannig í stórum dráttum flokkað grein- arnar í tvennt, sem við nú gætum kallað bóklega hlið og verklega, kemur hann að nauðsyn á al- mennri menntun, sem allir þurfi að hafa. Hann segir: „En hversu má nokkurr fram- kvæma vel, nema hann viti einnig skyn á mörgum hlutum og sé mentaður sem bezt að l'æri er á? í hverri atvinnugrein má sjá mun á aðferð þess, sem hefir vit og kunnáttu og hins, sem vantar hvorttveggja, og sjaldan mun heppnin leika svo við hinn heimska að hinn verði ekki heilladrjúgari... Það er því nauð- synligt hverjum einum, í hvaða stétt sem hann ætlar að komast, að læra fyrst það, sem nauðsyn- ligt er fyrir alla að vita, og sérílagi það, sem nauðsyn er á í þeirri stétt sem hann ætlar að ráðast í.“ (bls.71-72). Koma þarf upp borgarastétt. Jón víkur næst að því að fólk eigi að læra á meðan það er ungt og námshæfileikar þess eru mest- ir. Hann segir að skólar verði að vera með ýmsu móti í landinu, eins og fólk sé margvíslegt. Síðan telur hann í þessu sambandi upp þrjá meginflokka manna, þ.e. þá sem aðaliega sinni líkamlegri vinni, þá sem fáist við handiðnir, listir og kaupmennsku, ogloks þá sem séu eiginlegir vísindamenn. Hann bendir á, aðmiðhópinn vanti að mestu á Islandi. Þar á hann við þá, semoftast hafa verið nefndir borgarar. Jón álítur, að þörf sé áað koma þessari stétt upp sem hrað- ast. Jafnframt undirstrikarhann að efla þurfi framför bændastéttar- innar. Hann segir: „Tilgángur skólans með tilliti til stéttanna verður því sá: að út- vega bændum vorum meiri þekkíngu, einkum á því sem við- víkur öllum framkvæmdum í at- vinnuvegi þeirra, og skiptist aptur sú kennsla í tvennt, eptir aðal- þörfum þeirra, að því leiti sem þeir ættu að verða sjáfarbændur eða sveitabændur (því atvinnu- vegir kljúfast því meir sem fram- förin vex); að efla borgarastétt og handiðnamenn og leitast við að koma því við, að þeir geti fengið alla undirbúníngs-kennslu á Is- landi, og loksins að bæta þannig enn lærða skóla, að hann gæti gefið svo mikla og margbreytta uppfræðíngu í vísindagreinum þeim, sem embættismannaefni þurfa á að halda, að þeir þyrfti að eins að leita útúr landinu til að frama sig og sjá háttu annara- þjóða...“ (bls. 81-82). Erlendar fyrirmyndir. Þessi þrískipting Jóns er at- hyglisverð. Um 1840 var þétt- býlismyndun á Islandi nánast engin, en hún var að koma annars staðar og Jón sér að hennar er mikil þörf. Spámannleg eru þau orð Jóns að atvinnuvegir kljúflst því meira sem framfarir vaxi; þetta hefur greinilega sannast á 20. öldinni, þegar atvinnugrein- um, einkum á þjónustusviði, hef- ur fjölgað gífurlega með sívax- andi sérhæfingu. Hér er ekki um séríslenskt fyrirbæri að ræða, enda þekkti Jón til annars staðar. I nokkru máli lýsir hann í þessum sama kafla skólahaldi í Prúss- landi um 1840, en hann hefur aflað sér vitneskju um það og telur greinilega að nokkuð megi af Þjóðverjunum læra. Honum er greinilegas umhugað um að leit- að sé fyrirmynda erlendis. I lok fyrsta kafla ritgerðarinnar bendir Jón sérstaklega á, að tilgangi skólans verði að ná þó að það kosti talsvert, „því engum peníngum er varið heppiligar en þeim, sem keypt er fyrir andlig og líkamlig framför, sem mest að verða má“, segir hann (bls.82). Þetta eru vissulega sígild sann- indi, sem þó þarf einatt að minna á. Lært af sögunni. Annar hluti ritgerðarinnar er ágrip af skólasögu á Islandi. Þetta er lengsti hlutinn, og ekki þykir ástæða til að endursegja hann rækilega hér. Upp úr 1840 voru harla fáir skólar á Islandi. Einn lærður skóli var á Bessa- stöðum. Sérstakur prestaskóli var enn ekki kominn, en árið 1841 hal'ði verið ákveðið að stofna hann, og hann kom 1847. Jafnframt var lærði skólinn flutt- ur til Reykjavíkur. Tilraunir höfðu frá 1791 verið gerðartil að stofna barnaskóla, en ekki hafði gengið vel með þær. í Reykjavík var þó einkaskóli fyrir börnstarf- ræktur 1830-48 (Saga ísl. IX, bls. 143). Jón undirstrikar að nauðsyn- legt sé að þjóðin styrki skólann, enda hafi skólarnir verið nota- bestir meðan þjóðin hafi borið fyrir þeim umhyggju (bls. 146). Hugmynd um fjöl- brautaskóla. Þriðji hluti ritgerðarinnar heit- ir „Hversu tilgángi skólanna megi framgengt verða á Is- landi.“ Hér ræðir Jón fyrst um „al- múgaskóla", þ.e. barnaskóla, og telur að þá eigi að setja upp í sjómannþorpum, t.d. í Vest- mannaeyjum, sumstaðar í Gull- bringusýslu, á Akranesi og í Rifi. Ennfremur vill hann að í hverjum fjórðungi konti skóli á einhverri góðri jörð, og verði bændaefnum kennl þar, bæði vísindi, íþróttir og búskaparaðferð um 5-6 ára tíma (bls. 148). Þá segir Jón: „Skólar handa kaupmannaefnum, stýrimanna- efnum, og handa öllum þeim sem læra ætla handiðnir eða aðra borgara-athöfn, eru öldúngis nauðsynligir, en á stofnun þeirra eru meiri vandkvæði enn á al- múgaskólum ætti að vera, fyrir því að kaupstaðalíf á íslandi er mjög lítið enn sem stendur. Bein- astur vegur er sá, eins og nú er ástatt, að sameina þennan skóla latínuskólanum, og laga svo lat- ínuskólann, að neðsti bekkur (eða neðstu bekkir) geti verið handa hvorutveggju, og geta menn þá séð glöggvar enn nú, hverjum kennanda er til embætta, og ráðið úr fyrir hinum, sem ekki eru lag- aðir til vísinda, heldur til starfa og borgaraligrar athafnar, með betra móti og til meiri nytsemdar bæði landinu og þeim, enn með því að reka þá úr skóla, og svipta þá með því allri mentunarvon marga hverja.“ (bls. 149). Hér koma fram einkar athygl- isverðar hugmyndir. Jón vill ber- sýnilega að sem allra flestir ungl- ingar fái notið einhverrar mennt- unar, einnig þeir, sem ekki séu á- hugasamir um eindregnar bók- legar greinar. Hann talar þó aðeins um pilta í þessu sambandi. Hann áttar sig á því, að upphafs- náinið geti verið sameiginlegt fyrir alla. I raun og veru er þessi hugmynd skyld fjölbrautaskóla- hugmyndum okkar daga, og lík- lega athyglisverðasta atriði rit- gerðarinnar. Jón útfærir þetta reyndar ekki rækilega, og ekki er alveg Ijóst, hvort hann styðst í þessu efni við einhverja erlenda hugmynd, t.d. þýska. Það verður þó ekki rætt nánar hér. Nauðsyn mikillar íslenskukennslu. í síðasta hluta ritgerðar sinnar ræðir Jón Sigurðsson um nauðsyn þess að gera umbætur á lærða skólanum. Hann vill m.a. að þar verði kennt meira og fleira en verið hafi. Af æskilegum nýjum námsgreinum nefnir hann nátt- úrufræði, bústjórnarfræði, ný tungumál, einkum þýsku en einnig frakknesku og ensku, og svo söng og íþróttir. Hann liltekur l'Ieiri greinar, sem hann segir reyndar að helst séu kenndar á háskólastigi, en nefnir svo sér- staklega teikningu. Síðan setur Jón upp hugmynd að stundatöflu fyrir lærðan skóla, sem standi í átta ár, frá tólfta til tuttugasta aldurs árs nemenda (bls. 155). Hann gerir ráð fyrir veigamikilli íslenskukennslu, sem verði 5-6 vikustundir þegar líði að lokum skólans. Áður var íslenska ekki sérstök námsgrein við lærða skólann, og kemur í þessari tillögu fram hve mikils Jón mat móðurmálið. Eftir sem áður vildi hann þó langmest láta kenna latínu og næstmest grísku. Eiginlegan reikning á aðeins að kenna þrjú síðustu árin. Viku- stundir segir Jón að megi vera 36. Hann vill endilega að skólinn verði í Reykjavík, enda verði andlegir kraftar þjóðarinnar þá sameinaðir á einum stað. Hann undirstrikar hugmyndir sínar með því að benda á gagnsemi þess að „ekki allfáir af skynsömustu mönnum á landinu“ geti hist dag-

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.