Ísfirðingur - 14.12.1992, Síða 9

Ísfirðingur - 14.12.1992, Síða 9
ISFIRÐINGUR 9 Þær eru ófáar þjóðsögurnar, sem tengdar eru jólum. Man ég frá æsku minni að skráðir voru allir þeir gestir sem komu á jóla- föstu og þeim skipt niður á heim- ilisfólk. Einnig man ég að öllum útistörfum varð að vera lokið fyrir klukkan fimrn á aðfangadag. Þá var farið að þvo sér og hafa fataskipti. Þá var það svo sem sjálfsagt, þegar allt fólkið hafði borðað og fengið gjafir sínar, að skjótast út í fjós og gefa kúnum smátuggu. Þá man ég að ég valdi gjarna grænustu tugguna sem ég fann í heystálinu í hlöðunni. Hafði ég séð hana út löngu fyrr og tekið hana frá, nefndi hana gjama jólatugguna. En langt upp til sveita var ekki hægt að fara til kirkju á jólakvöld, eða aðfangadagskvöld eins og það var nefnt. Vega- lengdir og færð hindruðu það. Þegar við bjuggum í Selsundi á Rangárvöllum, var sóknarkirkja okkar að Skarði í Landssveit. Því var alger ógjörningur að komast svo langt til kirkju. En að Skarði gekk líka langferðabíllinn frá Reykjavík. A þessum tíma var Björn bróðir minn, seinna sagn- fræðingur og prófessor, við nám í Reykjavík og kom í nokkur ár, alltaf með "rútunni” eins og það var kallað, heim á aðfangadag. Það er að segja að hann kom að Skarði með bifreiðinni og þaðan varð svo að sæta lagi með ferð.. Fá lánaðan hest, koma hesti til hans eða ferðast gangandi. Vina- fólk áttum við í bænum, sem sætti lagi á þennan hátt um hver jól, að senda okkur smáglaðning eða jólagjafir. Hin sígildu kerti og spil voru alltaf með, en einnig læddust með ávextir eða bækur. Þannig eignaðist ég fyrstu Nonnabæk- umar, Jólakveðjurnar, norsku Jólaklukkurnar og svo bækur með teiknimyndasamstæðum. Þetta voru mér stráknum í af- dalnum heil ævintýri. Meðal sagna sem ég komst í kynni við úr slíkum bókmennt- um, var sögnin um að kirkju- klukkur væru yfirleitt í pörum, tvær í hverri kirkju og mætti ekki skilja þær að. Væri það gert, kynni það ekki góðri lukku að stýra. Þannig fór með klukkuna sem taka átti úr kirkjunni í út- landinu og bræða upp til að búa til úr henni byssur. Hún varð svo þung að ekki var nokkur leið að hreyfa hana. Þegar lokst tókst að safna nógu miklum mannfjölda og koma henni á sleða, þurfti alla hesta sem fyrirfundust í sveitinni til að draga sleðann. Þá var á- kveðið að stytta sér leið yfir vatn eitt, sem allir töldu botnfrosið. Þegar svo kom út á mitt vatn, var allt í einu einhver þúst í snjónum svo sleðinn hallaði og klukkan rann út af honurn og mjög svo léttilega. Isinn brast og klukkan hvarf í vatnið, en ekkert annað vöknaði einu sinni. Svo mikil var sorg klukk- unnar sem eftir sat í turninum, að sprunga kom í hana. Fannst öllum þeim sem í henni heyrðu eftir þetta sem hljómur hennar segði: Makinn minn liggur á vatnsbotn- inum, ding dong. Ding dong. En fleiri sögum um klukkur, það er að segja kirkjuklukkur man ég eftir frá þessum tíma. Þar á meðal sögunni af kirkjuklukk- unni, sem Ólafur Helgi Noregs- konungur gaf í kirkjuna í Niðar- ósi. Glaður minnir mig að nafn hennar hafi verið og sagan sem ég heyrði eða las var um það að hún hafi hringt til bardaga fyrir Magnús Ólafsson, son hans, er honurn lá á að ráðast á réttri stund sólarhringsins að ofurefli Vinda hinna heiðnu suður í Danaveldi. Norðmenn áttu erfitt með að velja sér konung eftir Ólaf helga. Svo fór þó, að jafnvel Kálfur Arnason, sá er á að hafa veitt Ó- lafi banasárið, féllst á að fara með Einari þambaskelfi suður til Rússlands og sækja drenginn Magnús og taka hann til konungs. Hann varð einnig síðar konungur Dana, en þar voru hinir heiðnu Vindar að reyna að eyða öllu því er kristið mátti kallast. Kom nú Magnús konungur móti þeim með her Norðmanna og Dana. En her Vinda var margalt fjölmenn- ari, svo hér var úr vöndu að ráða. Á Ljárskógaheiði í Slésvík hittust herirnir og komu sér fyrir. Vindar sáu fyrir glæstan sigur sinn og uggðu ekki að sér. Magnús bað um tákn frá himni. Hann bað menn sína liggja alklædda og með alvæpni um nóttina. Svo var það skyndilega að allur danski og norski herinn vaknaði við háværa hringingu klukkunnar Glaðs úr kirkjunni norður í Niðarósi. Spruttu þeir þegar á fætur og réðust til bardaga. Þarf ekki að orðlengja það að þeir komu Vindum svo í opna skjöldu, að þeir gjörsigruðu þá. Spruttu margar helgisögur frá þessum bardaga. En vrkjum nú sögunni aftur heim í Selsund. í kirkjuklukkum heyrðum við ekki fyrr en í út- varpi, þegar það kom til sögunn- ar. Svo var það einu sinni, að færð var afar þung og erfið. Ekki varð komist með hest í veg fyrir bróður rninn og varð því að treysta á göngugetu hans og góða granna á leiðinni, að lána hest eða reiða hann, spotta og spotta milli bæja. Aðaláhyggjumar voru nú samt að hann kæmist ekki yfir Rangá. Dagurinn leið fram yfir þann tíma er hans var von sam- kvæmt venju. Þá hófst tími biðar og óvissu um hvort hann yfirleitt kæmist. Það var liðið fram yfir mat og ég var búinn að gefa jóla- tugguna. Nú sat ég raunar bara á rúminu mínu, mændi á dökkt glerið í glugganum og beið. Eg man eins og gerst hefði í gær, að ég sá andlit allt í einu á gluggan- um, en það var víst bara ósk- hyggja. Því andliti fylgdi að minnsta kosti enginn líkami. Loks heyrðist greinilegur umgangur við bæjardyrnar. Það kallast víst hendingskast, hraðinn 'sem ég fór á fram göngin. Jú, þarna var Bjöm koniinn og með kassann, þótt gangandi væri. Nú rigndi spurningunum frá mér. Þá var það að mamma kom og tók af mér völdin. Fyrst varð að hjálpa Birni úr kuldafötum og gefa honum að borða. Þá mátti hann hvflast um stund og svo komu loks jólin að Selsundi. Svona til að minna sjálfan mig á hvað jólin væru, fékk ég Nýja testamentið í jólagjöf, einmitt um þessi jól. Guðmundur Ingi Kristjánsson: Snæfjallaströnd i. Bjart var yfir Strönd, býlin átta, fénaðar bú og fískidrátta. Frjóar voru fjörur, fengsælt á Djúpi og í verstöðvum hjá Vébjarnamúpi. II. Fallvölt eru bú og fiskimið, breytilegt sjónarsvið. Horfinn er nú Staður með hjáleigum. Gullhús eins og orð úr ævintýri. Auð er Sandeyri, autt er Skarð, Lónseyri, Lyngholt og Mýri. Sumarið 1992 m. Byggð er í Dal og Bæjum. Ríða hér enn rosknir menn. Grasið liggur í legum, löndin græn eru umhverfisvæn. En aldurinn færist yfir. Óvissan fer í hönd. Gott er að ganga til manna gestur á Snæfjallaströnd. IV. Eyja rís undan landi, æðardúnsjörð vel af Guði gjörð. Hvílir í handabandi hún við Snæfjallastönd, Djúpið á hægri hönd, rómuð í sögu og samtíð fyrir sitt fuglasafn. Því skal í farsælli framtíð meðal blómlegra býla birtast Æðeyjar nafn. Enn er bjart yfir Bæjum, frjósöm eru tún, fögur er hlíð og fjallabrún. Brosa ræktaðar breiður, hagar á aðra hönd. Á þá að yfirgefa öll þessi grænu lönd? Völt er búseta bænda. Hvað bíður þín, Snæfjallaströnd? VI. Angar Unaðsdalur eins og fyrr á tíð, húsatún, fjara og hlíð, kirkja og sveitarsalur sumarveður blíð. Hví er þá stundin stríð? Er fullvirðisréttur falur að flytja á annan stað? Fámennið amar að. Á þá að falla frá fegursta bæjamafnið sem Islandssagan á? VH. Á ströndinni bíða bæir, bæir tveir. Óvissir eru þeir. Það er erfitt að yfirgefa óðul og minningalönd. En við örlögum tímans reisir enginn rönd. blaktir spurning í brjósti: Hvað bíður þín, Snæfjallaströnd? Óskum Vestfirðingum og landsmönnum öllum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári Óskum starfsfólki okkar og viðskiptavinum gleðilegra jóla, árs og friðar og þökkum samstarf og viðskipti á líðandi ári. til BOKAVERSLUN JÓNASAR TÓMASSONAR Sími 3123, ísafirði

x

Ísfirðingur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Ísfirðingur
https://timarit.is/publication/790

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.