Morgunblaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 4
4 FréttirINNLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010 © IL V A Ís la n d 20 10 laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 s: 522 4500 www.ILVA.is einfaldlega betri kosturSTRIMLAR Í GLUGGANN Curtian. Strimlagardínur. 100x250 cm. Verð 4.995,- 150x250 cm. Verð 5.995,- 200x250 cm. Verð 7.995,- 250x250 cm. Verð 8.995,- 300x250 cm. Verð 9.995,- Hægt að stytta bæði hæð og breidd. Eftir Sigurð Boga Sævarsson sbs@mbl.is ENDURSKOÐA þarf samstarf Íslands og Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins í ljósi breyttra aðstæðna frá því að upphaflegur samningur var gerður við sjóðinn. Þetta segir forysta Framsóknarflokks sem í gær kynnti tillögur að aðgerðum til end- urreisnar efnahagslífsins í samvinnu við stjórn- málaflokkana. „Þetta eru brýn atriði sem við teljum að allir flokkar geti náð saman um. Að undanförnu hefur verið rætt um að Framsóknarflokkurinn komi inn í ríkisstjórn, en til að vinna þessum tillögum brautargengi er slíkt ekkert skilyrði af okkar hálfu. Best væri auðvitað ef hér yrði mynduð þjóð- stjórn. Samvinna í þinginu í Icesave-málinu skil- aði okkur miklum árangri og við fáum hagkvæm- ari samning en ella. Auk þess hefur skuldatryggingaálag ríkisins lækkað,“ sagði Sig- mundur Davíð Gunnlaugsson, formaður flokksins, á blaða- mannafundi í gær. Tillögur Framsóknarflokks- ins eru í tíu liðum. Lagt er til að skuldir heimilanna verði leiðréttar, rétt eins og fram- sóknarmenn vildu fyrir síðustu kosningar. Þörf á vaxtalækkun er undirstrikuð, enda standi hvorki heimili né fyrirtæki undir þeim háu vöxtum sem nú eru. Lagt er til að Alþingi hlutist til um breyt- ingar á stefnu og vöxtum Seðlabankans. Fram- sóknarmenn vilja einnig verklegar framkvæmdir, skipta áhættu milli lánveitenda og lántaka og að gjaldþrotalögum verði breytt svo ekki sé hægt að halda viðhalda kröfum á fólk til eilífðarnóns. Einnig vilja framsóknarmenn að tryggt verði, að fjármálastofnanir sem fara með eignarhluti í fyrirtækjum, skekki ekki samkeppnistöðuna. Stöðugleiki í stjórnsýslu og langtímaáætlun í ríkisútgjöldum eru einnig meðal tillagana. Segir að mikilvægt sé að skoða hvort niðurskurður til ákveðinna verkefna, t.d. kvikmyndagerðar, skili sparnaði til lengri tíma litið. Um endurskoðun samstarfsins við AGS segja framsóknarmenn nauðsyn að leita nýrra leiða út úr kreppunni. Dýrt sé að halda gengi krónunnar uppi með lánsfé. Skuldaleiðrétting er forgangsmál „Skuldaleiðrétting er forgangsmál,“ sagði Eygló Harðardóttir þingmaður. Hún telur mik- ilvægt að allir flokkar komi að málum er varða skuldir heimilanna en hvorki hún né Sigmundur Davíð vildu þó segja til um hve mikill afslátturinn ætti að vera. Fyrir kosningar á sl. ári vildu fram- sóknarmenn 20% afslátt og segir formaðurinn að við frekari athugun á málinu hafi komið í ljós að sú tala hafi verið síst of há. Þjóðstjórn besti kosturinn  Framsókn kynnir tíu tillögur  Vill endurskoða AGS  Verklegar framkvæmd- ir og gjaldþrotalögum verði breytt  Ekki skilyrði að komast í ríkisstjórn Sigmundur Davíð Gunnlaugsson Eftir Ágúst Inga Jónsson aij@mbl.is ÞAÐ vantar ekki kraftinn í borholuna í Vítismó við Kröflu, sem var hin fyrsta í svokölluðu djúpborunarverk- efni. Bora átti niður í um 4.500 metra, en borunin fékk snöggan endi í lok júní í fyrra er hraunkvika kom upp af um 2.100 metra dýpi og borinn stóð fastur. Hópur sérfræðinga í borunum og nýtingu jarðhitans var á borstaðnum í vikunni og kannaði aðstæður. Verið er að blástursprófa holuna og rannsaka vökvann sem kemur upp. Fyrstu vísbendingar eru um að holan sé mjög öflug og hitinn mikill. Of snemmt er að segja hvort holan verður virkjuð og hve mikið hún myndi gefa, en góðar holur á Kröflusvæðinu gefa um 10 megawött inn á raforkukerfið. „Vökvinn sem upp kemur er erfiður viðureignar, en við erum að reyna að stilla af aðstæður á toppi holunnar þannig að hægt sé að nýta þennan súra vökva,“ segir Bjarni Pálsson, verkfræðingur hjá Landsvirkjun Power. „Við höfum leyft holunni að hitna upp í rólegheitum og tökum vökvann um 100 metra frá botni. Holan verður látin blása í nokkra daga og síðan verður tekin ákvörðun um framhaldið. Ef vel gengur verður væntanlega settur fullkominn blástursbúnaður á holuna seint í sumar og hún látin blása af fullum krafti. Ef vökvinn reynist nýt- anlegur þá gætum við jafnvel tengt hana við virkjunina í Kröflu næsta vetur,“ segir Bjarni. Kostnaður vegna djúpborunar 1,5 milljarðar Holan er enn hluti af djúpborunarverkefninu, en að því koma margir aðilar, m.a. Landsvirkjun, HS Orka, OR, Alcoa og Statoil. Bjarni segir aðspurður að heild- arkostnaður við verkefnið sé nú um hálfur annar millj- arður króna. Ekki verður haldið áfram djúpborunum hérlendis á þessu ári eins og fyrirhugað var. Mikill kraftur og hiti í hraunholunni í Vítismó  Holan blástursprófuð og vökvinn efnagreindur  Góðar holur á Kröflusvæðinu gefa um 10 megawött Morgunblaðið/Birkir Fanndal Vetrarríki Þeir voru vígalegir og vel klæddir sérfræðingarnir sem mátu stöðuna við borholuna í vonskuveðri í Vítismó á þriðjudaginn. Meðal annars komu þeir frá Háskóla Íslands, Landsvirkjun, HS Orku og Kemíu. HALLDÓR Elías Guðmundsson djákni, sem tapaði ferðatösku sinni í jarðskjálftunum á Haítí í vetur, endurheimti töskuna sína um helgina. Hann var í anddyri kirkju í Colorado þegar hann fékk töskuna, en Halldór er við framhaldsnám í Ohio. „Síðast hafði ég séð töskuna þar sem hún var undir borði hótelher- bergis á fyrstu hæð á Hótel Florita í Jacmel á Haítí. Ég hafði séð tveggja hæða byggingu þar sem herbergið var, leggjast fullkomlega saman yf- ir töskuna. Ég var löngu búinn að sætta mig við að ég hefði glatað farangrinum. En núna, tveimur og hálfum mánuði eftir skjálftann var taskan í augsýn,“ segir Halldór í tölvupósti til félaga á vettvangi Þjóðkirkjunnar. Halldór, sem ekki var á hótelinu þegar skjálftinn reið yfir, fregnaði að hótelstjórinn hefði krafist þess að töskunni yrði haldið til haga þegar rústir voru hreinsaðar. Sá hafði svo samband við vini Halldórs á Haítí sem komu töskunni til starfsmanns Abiding Hope kirkj- unnar. „Ég velti fyrir mér, hvers vegna allur þessi fjöldi fólks sem ég þekki vel og veit að er að sinna frábæru starfi, hefði notað dýrmætan tíma sinn til að bjarga ferðatöskunni. Það eru svo sannarlega mikilvæg- ari verkefni sem bíða á Haítí,“ segir Halldór sem er þessu fólki afar þakklátur. sbs@mbl.is Fékk ferða- töskuna úr hótel- rústunum á Haítí  Fékk töskuna í kirkju í Colorado  Mikilvægari verkefni biðu á Haítí Rústir Svona var hótelherbergið eftir skjálftann. Og taskan fannst. „Uppleggið í tillögum Framsókn- arflokksins er gott. Að fólk vinni þvert á flokka og miðli til- lögum er í anda þess vinnulags sem ríkisstjórnin leggur áherslu á,“ segir Björgvin G. Sigurð- ursson, formaður þingflokks Samfylkingar. „Við þurfum meiri samstöðu í stjórnmálin. Framsóknarmenn vilja lægri vexti og allir geta tekið undir það en ég minni á að Seðla- bankinn er sjálfstæð stofnun og stjórnvöld geta því ekki haft bein afskipti af málum. Að öðru leyti hef ég ekki kynnt mér til- lögurnar efnislega.“ Uppleggið er gott Björgvin G. Sigurðsson

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.