Morgunblaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 41
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010
PPNIR Í ÁSTUM AÐRIR EKKI!
MANTÍSK MYND BJARNFREÐARSON
- Kvikmynd ársins
- Leikari ársins í aðalhlutverki
- Handrit ársins
- Kvikmyndataka ársins
- Búningar ársins
- Leikstjóri ársins
- Meðleikari ársins
HLAUT 7
EDDUVERÐLAUN
„BYGGÐ Á SANNSÖGULEGUM ATBURÐUM“
TEKJUHÆSTA MYND
SÖNDRU BULLOCK
FYRR OG SÍÐAR
„Ein af 10 BESTU
MYNDUM Þessa árs“
Maria Salas TheCW
„fyndin og hrífandi“
Phil Boatwright – Preview Online
„Besta Frammistaða
Söndru Bullock til þessa“
Pete Hammond - Box Office Magazine
MYNDIN SEM GERÐI ALLT
VITLAUST Í USA!
SÝND Í ÁLFABAKKA
BESTA LEIKKONA
Í AÐALHLUTVERKI
SANDRA BULLOCK
TILNEFND SEM
BESTA MYND
ÓSKARSVERÐLAUNAMYNDIN
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
“...fullkomin...”
LEONARD MALTIN, ENTERTAINMENT TONIGHT
“Meistaraverk“
PETE HAMMOND - BOXOFFICE MAGAZINE
HHHH
“…frábær þrívíddar
upplifun…”
JEFF CRAIG, SIXTY SECOND PREVIEW
„Besta mynd Tim Burton‘s
í áraraðir“
DAN JEWEL - LIFE & STYLE WEEKLY
SÝND Í ÁLFABAKKA, KRINGLUNNI OG AKUREYRI
Gæti valdið óhug
ungra barna
STÆRSTA OPNUN ÁRSINS!
/ KEFLAVÍK
GREEN ZONE kl. 8 - 10:20 12
THE REBOUND kl. 8 L
SHUTTER ISLAND kl. 10:10 16
LEGION kl. 8 16
SHUTTER ISLAND kl. 10:20 16
BROTHERS kl. 8 12
LOFTKASTALINN SEM HRUNDI kl. 10:20 14
/ SELFOSSI
ALICEINWONDERLAND kl. 83D L
AVATAR - 3D kl. 10:203D 10
THE BLIND SIDE Síðustu sýningar kl. 8 10
INVICTUS Síðustu sýningar kl. 10:20 L
/ AKUREYRI
HIÐ sívinsæla menn-
ingargraf menning-
ardeildar hefur snúið
aftur úr óvæntu viku-
fríi og að þessu sinni
skal sjónum beint að
Fésbókinni góðu sem
annar hver Íslend-
ingur, ef ekki hver ein-
asti, hangir á þegar
hann hefur eitthvað
miklu betra að gera.
Menningardeild saknar
ýmissa hópa á snjáld-
urskinnunni og sló því
saman nokkuð skot-
heldum lista yfir hópa
sem hún telur að birt-
ast muni fljótlega á
Fésbókinni eða ættu í
það minnsta að birtast
á næstunni. Hinn mjög
svo grínaktugi grafík-
meistari Morgunblaðs-
ins lagði hönd á plóg
og snaraði fram sér-
staklega skýrri skýr-
ingarmynd, s.k. menn-
ingargrafi, þessu til
undirstrikunar.
Hópar sem munu fljótlega birtast á facebook
eða ættu allavega að gera það
Við viljum loðnari karlmenn!
Kristín Heiða blaðakona og áhugamaður
um kafloðna karla bauð þér
Staðfesta Hunsa
Alskeggs-apríl
Sammi í Jagúar bauð þér Staðfesta Hunsa
Verndum íslensku „skinkuna“
Þórður Gunnarsson skinkuáhugamaður bauð þér Staðfesta Hunsa
Fleiri álver = fleiri álfelgur!!! ;o) <3
Samtök Subaru Impreza-eigenda bauð þér Staðfesta Hunsa
Steingrím af þingi og inn í fjárhús!
Bjarni Benediktsson bauð þér Staðfesta Hunsa
McDonalds aftur til Íslands!
Obese Anonymous bauð þér Staðfesta Hunsa
NEI! Ekki flýta klukkunni á sumrin!
Samtök B-fólks bauð þér Staðfesta Hunsa
Björgum snjónum - hættum að nota bíla
(nema til að fara í Bláfjöll)
Skíðasvæði ÍTR bauð þér
Staðfesta Hunsa
Joaquin Phoenix Leikarinn vígalegi veit að
alskegg er málið og þá sérstaklega í apríl.
Steingrím í fjárhúsið
og Alskeggs-apríl
MENNINGARGRAFIл
Eftir Unu Sighvatsdóttur
una@mbl.is
„HEIMURINN breytist hratt og það
er allt annað að vera unglingur í dag
eða á 9. eða 10. áratug síðustu aldar.“
Þannig ávarpaði hinn 16 ára gamli
Kjartan Orri Þórsson borgarstjórn
og jafnaldra sína í Reykjavíkurráði
ungmenna á borgarstjórnarfundi á
þriðjudag.
Einu sinni á ári er í Ráðhúsi
Reykjavíkur haldinn sameiginlegur
fundur borgarstjórnar og fulltrúa
ungmennaráða borgarinnar. Á
þriðjudaginn fluttu unglingarnir
ýmsar tillögur sem sneru að kjörum
ungs fólks í borginni.
Kjartan Orri mælti t.a.m. fyrir því
að forvarnarfræðsla yrði aukin í
grunnskólum og nefndi sérstaklega
kynþáttafordóma í því samhengi og
benti á að ungt fólk í dag lifi á tímum
alþjóðavæðingar og henni fylgi því
miður gjarnan fordómar.
Katrín Júníana Lárusdóttir mælti
fyrir tillögu um fjármálakennslu í
grunnskólum. Hún vísaði í nið-
urstöður könnunar sem lögð var fyrir
nemendur í 9. og 10. bekk Hagaskóla
og leiddi m.a. í ljós að helmingur
þeirra vissi ekki hvað vextir eru og
enginn þekkti FIT-kostnað.
Katrín lýsti því hvernig bankarnir
bíða ungmenna „handan við hornið
með opið ginið eins og hvalur í bið eft-
ir fisktorfu, bjóðandi alls kyns gylli-
boð sem oftar en ekki eru misvísandi“.
Skólanum bæri því skylda til að und-
irbúa þau undir framtíðina.
Sköpunarstöð fyrir ástríðuna
Fyrir borgarstjórn voru auk þess
lagðar tillögur um aukið samræmi í
námskrá grunnskóla, bættar almenn-
ingssamgöngur og atvinnu ungmenna
yfir sumartímann.
Sú tillaga sem hvað mesta athygli
vakti kom hins vegar frá Einari Karli
Gunnarssyni frá ungmennaráði mið-
borgar og Hlíða, sem lagði til að end-
urbyggð yrði sköpunarstöð eins og
Austurbæjarbíó var fyrir fólk á aldr-
inum 16-20 ára.
Karl skýrði frá því að miðstöðin
myndi þjóna forvarnarlegum tilgangi
en yrði einnig hvatning fyrir ung-
menni með markmið til að geta komið
og unnið að sinni sköpun.
„Við getum þetta ekki án ykkar
stuðnings. Þannig að við, ungt fólk,
einlæg og auðmjúk, biðjum ykkur að
koma til móts við okkur og gefið okk-
ur færi á því að leysa þennan frum-
kvæðisvilja, þessa ástríðu sem býr
innra með okkur,“ sagði Karl.
Í sköpunarmiðstöðinni gæti ungt
fólk skapað saman hvort sem er í
myndlist, leiklist, kvikmyndagerð
o.s.frv. „Því ungmenni munu einfald-
lega aldrei, aldrei hætta að hafa
metnað fyrir sinni ástríðu, sama hvar
hún liggur.“
Hætta aldrei að hafa
metnað fyrir sinni ástríðu
Unglingar funduðu með borgarstjórn um sín hugðarefni
Miðstöð fyrir listsköpun, fjármálakennsla og fordóma-
fræðsla er meðal þess sem ungmennin vilja sjá í verki
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Tillögur Ungmennin mættu vel undirbúin til fundar við borgarstjórn og voru skelegg í pontu.
Áhugavert Áhorfendapallarnir í fundarsal borgarstjórnar voru þétt setnir
fólki á öllum aldri sem fylgdist með tillögum ungmennaráðsmanna.