Morgunblaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 25.03.2010, Blaðsíða 18
18 FréttirERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010 Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is REPÚBLIKANAR sleikja nú sárin eftir að þeim mistókst að stöðva heilbrigðistil- lögur Baracks Obama forseta. Þeir sýndu mikla samstöðu í baráttunni en hún dugði ekki til. Liðsmenn hinnar svonefndu Te- boðs-hreyfingar, sem barðist hart gegn lögunum, fögnuðu afstöðu Repúblikana- flokksins en hófsamir úr röðum hinna síð- arnefndu eru nú sagðir reyna að banda te- boðsfólkinu frá sér. Ástæðan er m.a. æstir teboðsmenn hafa orðið berir að rasískri framkomu í garð svartra þingmanna. En repúblikanar ætla að trufla sigur- vímu demókrata og leggja fram fjölda breytingartillagna þegar lögin koma á ný fyrir öldungadeildina. Markmiðið er að Er þá stefnt að því að þvinga demókrata til að halda fyrir nefið og greiða atkvæði gegn máli sem nær allir kjósendur þeirra myndu styðja. Demókratar verði hins veg- ar að ganga gegn sannfæringu sinni til að hindra að lögin fari aftur í fulltrúadeilidna. En munu nýju lögin auka útgjöld eða minnka þau eins og fjárlagaskrifstofa þingsins fullyrðir? Pistlahöfundurinn Dav- id Brooks hjá The New York Times segir þau munu aukast. Stærstu vandamál Bandaríkjamanna séu annars vegar gríð- arlegur fjárlagahalli og hins vegar að út- gjöld til heilbrigðismála fari hratt vaxandi. „Þetta land er eins statt og eyðslusöm fjölskylda sem er á hraðri ferð í gjaldþrot en ákveður á síðustu stundu að gefa gríð- arlega fjárhæð til góðgerða,“ segir Bro- oks. gera svo miklar breytingar á lögunum að senda verði þau á ný til fulltrúadeild- arinnar en þar var sigur demókrata afar naumur. Repúblikanar ætla m.a. að leggja til að dæmdir kynferðisglæpamenn geti ekki fengið stinningarlyf í gegnum tryggingar! Kynferðisafbrotamenn fái ekki stinningarlyf  Repúblikanar leggja fram breytingartillögur sem erfitt verður að hafna »Brooks, sem er fyrrverandidemókrati, segir það andstætt eðli demókrata að skera niður fé til velferðarmála og því muni það ekki gerast með nýju lögunum. Hann bendir á að nú þegar verji Bandaríkjamenn um 17% af lands- framleiðslu í heilbrigðismál, meira en nokkur önnur þjóð. Verður undirritað í Prag? ALLT bendir nú til þess að vænt- anlegur samningur Bandaríkja- manna og Rússa um takmörkun kjarnorkuvígbún- aðar verði und- irritaður í Prag en áður hafði verið nefnt að til greina kæmi að atburðurinn yrði í Höfða í Reykja- vík. Tékkneskir embættismenn sögðu í gær að Bandaríkjamenn hefðu farið fram á að fundur Baracks Obama Banda- ríkjaforseta og Dmítrís Medvedevs, forseta Rússlands, yrði í Prag. Ekki hefði þó enn verið nefnd tímasetning í því sambandi. Tals- maður Medvedevs, Natalía Tíma- kova, neitaði í gær að tjá sig um málið, að sögn AFP-fréttastof- unnar. Umræddur samningur, sem kveður á um þak á fjölda kjarna- odda, mun taka við af svonefndum START-samningi sem gerður var 1991 í tíð Sovétríkjanna gömlu. kjon@mbl.is Prag Fundurinn verður í Prag. Nýr kjarnavopna- sáttmáli á lokastigi FRÉTTASKÝRING Eftir Kristján Jónsson kjon@mbl.is SKULDAVANDI Grikkja ætlar að reynast afdrifaríkur, engin góð lausn er í sjónmáli og enn lækkaði gengi evrunnar í gær vegna ótta fjárfesta við þróun mála. Leiðtogar evruríkjanna koma saman í dag og freista þess að finna lausn. En ekk- ert bendir til annars en að grískir skattgreiðendur verði að sætta sig við þær harkalegu aðgerðir sem svindl og óráðsía forvera vinstri- mannsins Georgs Papandreou for- sætisráðherra gerir óhjákvæmi- legar. Horfurnar eru ekki góðar og fé- lagar Grikkja í Evrópusambandinu saka þá um ábyrgðarleysi og frekju þegar þeir vilja fá fjárhagsaðstoð. Skilaboðin eru að þeir eigi einfald- lega að herða mittisólina. Efnahags- og samvinnustofnunin, OECD, sendi frá sér yfirlýsingu í gær og sagði Grikki verða að bregð- ast skjótt við auknu atvinnuleysi unga fólksins, þ. e. fólks á aldrinum 15-29 ára. Atvinnuleysi ungra í land- inu hefði þegar fyrir kreppuna verið hærra en í flestum aðildarríkjum OECD. En nú er búist við að hlut- fallið fari í 28% fyrir árslok. Stofn- unin vill að fólki verði kennt að finna sér vinnu og vill að sett verði þak á greiðslur til þeirra sem hafa verið mjög lengi án vinnu. „Allt verður að gera til að tryggja að ungir Grikkir hafi áfram tengsl við vinnumarkaðinn til þess að koma í veg fyrir að heil kynslóð verði fyrir varanlegu tjóni,“ sagði Angel Gurria, framkvæmdastjóri OECD. Útlendingahatur vex Stéttarfélög segja að örvænting vegna atvinnuleysis hafi að hluta til verið skýringin á þeim ofbeldisfullu mótmælum sem skóku nokkrar grískar borgir í desember 2008 eftir að lögreglumaður skaut ungling. Fleira þjakar grískt samfélag sem var lengst af mjög einsleitt í þjóðern- islegu tilliti. En það er liðin tíð og fjöldi hælisleitenda kemur til lands- ins ár hvert frá Miðausturlöndum og Afríku í von um betra líf í ESB- ríkjum. Útlendingahatur hefur feng- ið byr í seglin á seinni árum, að sögn fréttamanns Los Angeles Times. Sums staðar má sjá slagorð eins og „Burt með útlendinga! sem máluð hafa verið fyrirtæki þar sem erlent verkafólk starfar. Samtökin Gullin dögun og fleiri af sama toga munu standa fyrir þeim aðgerðum. Tzanepos Antypas, leiðtogi mann- réttindahreyfingarinnar Praksis, segir öryggisleysi vegna kreppunnar vaxa hratt og margir leiti sökudólga. „Og hverjum er auðvelt að kenna um þetta allt? Útlendingunum.“ Sagt að herða mittisólina  Samúð með Grikkjum er víða lítil og þeim er tjáð að vandinn sé heimatilbúinn  En samtímis fer örvæntingin vegna atvinnuleysis vaxandi meðal ungs fólks Reuters Reiði Lögreglumenn handtaka ungling í óeirðum í Aþenu. Búist er við að atvinnuleysi meðal ungra Grikkja fari í 28% í árslok og margir eru orðnir örvænting- arfullir. Sumir kenna nú erlendu verkafólki um ástandið. BRESKA lögreglan hefur varað starfsmann Heathrow-flugvallar við því að hann geti sætt ákæru fyrir áreitni. Talið er að hann hafi tekið mynd af kvenkyns starfsfélaga sín- um er gekk í gegnum líkams- skannahlið. Tækin eru notuð til að reyna að hindra farþega í að smygla vopnum og voru sett upp á Heat- hrow og á velli í Manchester í febr- úar, að sögn The Guardian. Fyrirtækið BAA, sem rekur Heathrow og fleiri flugvelli, segist líta málið alvarlegum augum. Tekið sé hart á misnotkun starfsmanna á öryggisbúnaði og kvartanir af þessu tagi ávallt rannsakaðar. Atburðurinn mun að sögn blaðsins verða til að auka enn áhyggjur fólks af því að umræddir skannar, sem sýna greinilega útlínur líkamans, séu misnotaðir til að brjóta gegn lög- um um persónuvernd. Hafa gagn- rýnendur þeirra sagt að í reynd sé um að ræða að fólk sé látið afklæðast að fullu til að hægt sé að leita á því. Í Bandaríkjunum geta farþegar valið hvort þeir fara í gegnum skanna af þessu tagi eða hefðbund- inn málmleitarskanna en þá er að vísu einnig gerð líkamsleit. Jafn- réttis- og mannréttindaráð Bret- lands sagði nýlega að stjórnvöld yrðu að grípa til aðgerða sem tryggðu að notkun skannanna yrði í samræmi við landslög. kjon@mbl.is Nektarmynd með flugvall- arskanna ÞRÍR létu lífið og þrír að auki slösuðust í lestarslysi í Ósló í gær. Vöruflutningavagnar losnuðu frá flutn- ingalest, runnu stjórnlaust niður brekku. Vitað er að 5-10 vagnar losnuðu á lestarstöð á Alnabru og runnu á miklum hraða niður á hafnarsvæðið á Sjursøya þar sem sumir lentu á vörugeymslu og aðrir fóru í sjóinn. Einnig urðu menn og bílar fyrir vögn- unum á leiðinni. REUTERS LESTARVAGNAR ÚT Í SJÓ Varaforseti Bandaríkjanna, Joe Biden, er gamal- reyndur stjórnmálamaður en samt laginn við að koma sér í vanda. Einkum gengur honum illa að hafa stjórn á tungunni. Obama forseti staðfesti nýju heilbrigðislögin með undirritun sinni í frægum sal í Hvíta húsinu. Bi- den kynnti forsetann fyrir viðstöddum og hrósaði leiðtogahæfileikum hans ákaft. „Herra forseti, þú ert náunginn sem sigldi þessu í höfn,“ sagði Biden áður en þeir föðmuðust og hvíslaði síðan ákafur í eyra Obama, án þess að vara sig á því hvað hljóð- nemar eru öflugir: „Þetta er andskoti mikill sátt- máli!“ Þýða má blótsyrðið, eða áhersluorðið, þannig en upprunalega var merkingin hins vegar gróft klám. Biden blótar í beinni

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.