Morgunblaðið - 25.03.2010, Side 30
30 Minningar
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010
Smáauglýsingar 569 1100 www.mbl.is/smaaugl
Tómstundir
Vandaðir lampar með
stækkunargleri.
Tómstundahúsið,
Nethyl 2, sími 587 0600.
www.tomstundahusid.is
Skattframtöl
Skattaframtöl 2010
Gerð skattaframtala fyrir einstaklinga
og fyrirtæki, bókhald, ársreikningar,
VSK uppgjör, launaútreikniigar, leigu-
samningar o.fl. HAGSTÆTT VERÐ.
Uppl. í síma 517 3977.
Netf. : framtal@visir.is.
FRAMTAL 2010
Framtalsaðstoð fyrir einstaklinga og
rekstraraðila. Vönduð og góð vinna.
Sæki um viðbótarfrest fram í maí.
Ódýr þjónusta. Opið einnig um helgar.
Framtalsþjónustan,
Ármúla 19. S. 533 1533.
Viðgerðir
Gler eða hurð í CONVECT gufuofn
Gler eða hurð í CONVECT gufuofn
óskast strax. Tilboð. Sími: 695 2589
eða gahj@simnet.is
Bílar
Ökukennsla
Glæsileg kennslubifreið
Subaru Impreza AERO 2008, 4WD.
Öruggur í vetraraksturinn.
Akstursmat og endurtökupróf.
Gylfi Guðjónsson,
sími 6960042,
bilaskoli.is
Húsviðhald
Þak og
utanhússklæðningar
og allt húsaviðhald
Ragnar V Sigurðsson ehf
Sími 892 8647.
Hreingerningar
Tek að mér hreingerningar og
aðstoð við eldra fólk
Agnes sími 690 3978
RÆSTING
Tek að mér að þrífa íbúðir og
húsnæði.
Agnes sími 690 3978
Ljúflingurinn, pró-
fessorinn, rektorinn og
hæstaréttardómarinn
hefur nú kvatt þetta líf eftir farsæla
og dygga þjónustu við land sitt og
þjóð. Ég sá Ármann fyrst er hann
þreytti inntökupróf í okkar kæra
skóla MA klæddur matrósafötum
með stuttbuxum. Við vorum samtíða
í skólanum, ég gagnfræðingur 1938
og hann stúdent sama ár. Hann kall-
aði mig alltaf skólasystur er við hitt-
umst á förnum vegi og mér fannst
eins og mitt gagnfræðapróf yrði
Ármann Snævarr
✝ Gunnsteinn Ár-mann Snævarr
fæddist á Nesi í Norð-
firði hinn 18. sept-
ember 1919 og ólst þar
upp. Hann lést á Land-
spítalanum við Hring-
braut 15. febrúar síð-
astliðinn.
Útför Ármanns fór
fram frá Neskirkju 26.
febrúar 2010.
meira virði af því það
var tekið við sama
skóla og hann. Hann
gladdi mig líka með
að segja mér að gagn-
fræðaprófið 1938
hefði verið þyngsta
próf sem lagt hafði
verið fyrir þetta
menntaskólastig. Ég
kveð minn kæra
skólabróður með ljóð-
inu sem alltaf var
sungið við brottför
stúdenta frá MA og
bið honum blessunar
á Guðs vegum.
Nú ertu horfin björt og blíð
á burtu æskustundin
þú fagra sveinsins frægðartíð
og frjálsa glaða lundin
og þó og hvessi sálarsýn
ég samt er hitti sporin þín
s’jérum jérum jérum
Quae mutatio rerum
Hólmfríður Guðlaug Jónsdóttir.
Þegar ég var lítil
stúlka í ranni foreldra
minna, man ég eftir
Sigurði Ólafssyni og
Málfríði Matthíasdótt-
ur, föðursystur minni,
sem gestum sem tekið var með kost-
um og kynjum á heimilinu. Þau voru
lengstum of sjaldséðir gestir enda
búsett í Vestmannaeyjum, en við í
Reykjavík. Þau fluttu síðar búferlum
yfir á fastalandið og þá varð sam-
gangur auðveldari. Málfríður lést ár-
ið 2003 og Sigurður flutti sig yfir á
Hrafnistu þar sem hann bjó allt til
enda.
Ég man glöggt að ég hreifst af
Sigurði, það stóð af honum golan
hvert sem hann fór, hláturinn,
kerksnisblik í augum, ekkert vol og
víl, svolítið eins og sjórinn sem hann
fór aldrei langt frá. Þegar ég var um
tvítugt heimsótti ég Sigurð og Mál-
fríði til Eyja og var í nokkra daga.
Það var ein allsherjarhátíð. Málfríð-
ur stjanaði við mig og sagði mér
merkilegar sögur úr fortíð fjölskyldu
okkar með sínum lágstemmda og
hógværa hætti.
Sigurður rauk með mig um allar
Sigurður Ólafsson
✝ Sigurður Ólafssonfæddist á Eyr-
arbakka 20. október
1920. Hann lést 3.
mars síðastliðinn.
Útför Sigurðar fór
fram frá Hafnarfjarð-
arkirkju 11. mars
2010.
trissur og lánaði mér
aukinheldur volvóinn
sinn í ökuferðir, nokk-
uð sem mér þótti al-
veg sérstakur höfð-
ingsskapur. Ég stóð
löngum í fjöru og
horfði á þungt brimið
velta inn. Ég held að
Sigurður hafi verið
dálítið ánægður með
hversu skotin ég var í
sjónum, þó honum
þætti ég áreiðanlega
óttalegur aukvisi þar
utan.
Ég á eina uppáhaldsminningu í
pússi mínu, en hún er frá ættarmóti
föðurfólks míns á Patreksfirði fyrir
rúmum áratug. Eftir langt og
strangt föstudagskvöld ættarinnar í
gleði og glaumi vöknuðum við Sig-
urður tvö upp úr sínu hvoru tjaldinu
við sólarupprás, helltum upp á kaffi í
morgunkyrrðinni með lóunum og
spóunum og sprokuðum hitt og ann-
að. Náðum svo í pott og prik og
gengum á öll tjöld þegar okkur þótti
nóg um svefninn á fólkinu og vöktum
upp og sníktum kaffibolla hjá útvöld-
um. Þetta var ákaflega góð morgun-
stund og eftirminnileg. Ég man að
ég hló alveg oní maga því mér þótti
Siggi svo skemmtilegur og hress-
andi. Eins og sjórinn.
Ég votta Rut, Bjarna og aðstand-
endum öðrum samúð mína og sendi
þeim kærar kveðjur.
Steinunn Ásmundsdóttir,
Egilsstöðum.
Elsku langafi Siggi.
Ég fæddist í vikunni áður en þú
fagnaðir 85 ára afmælinu þínu, ég
fékk því aðeins að kynnast þér í rúm
fjögur ár. Mér þótti afskaplega gam-
an að koma í heimsókn til þín og fá að
leika með golfkúlurnar þínar því þú
áttir svo margar eða fara fram í setu-
stofu og leika í kúluspilinu og ég kall-
aði billjardborðið.
Ég er bara fjögurra ára og skil
ekki allt. Mamma og pabbi eru búin
að vera dugleg að reyna að útskýra
fyrir mér dauðann. Ég spurði pabba
um daginn hver mundi hjálpa þér
upp til Guðs, pabbi sagði að þú
mundir örugglega breytast í fallegan
engil og fljúga til hans sjálfur. Ég
var ekki svo heppinn að fá að kynn-
ast langömmu Fríðu en ég veit að
hún var góð kona og er glöð á fá þig
til sín. Elsku langafi, við munum öll
sakna þín og ég ætla að vera dugleg-
ur að segja litlu systur sem kemur
bráðum í heiminn frá þér.
Ólafur Darri Sigurjónsson.
Elsku afi, við elskum þig svo mik-
ið; þú verður alltaf í hjörtum okkar.
Með kærri kveðju,
Adam Jónas, Erik Haraldur
og Hannah Vigdís.
Steingrímur
Hermannsson
✝ Steingrímur Hermannssonfæddist í Reykjavík 22. júní
1928. Hann lést á heimili sínu í
Mávanesi í Garðabæ 1. febrúar 2010.
Útför Steingríms fór fram frá
Dómkirkjunni í Reykjavík 9. febrúar
sl.
Þótt langt sé nú um
liðið frá því að Fríður
Guðmundsdóttir and-
aðist stendur hún mér
enn ljóslifandi fyrir hugskotssjón-
um. Þegar ég sá Fríði í fyrsta sinn
vorum við stödd í skála Íþróttafélags
kvenna í Skálafelli. Það er margs að
minnast í kring um þennan hóp sem
Fríður stjórnaði. Þá fóru ævintýrin
að gerast. Í skálanum og dýrlegu
umhverfi hans var spilað, sungið og
dansað. Síðast en ekki síst renndi
fólk sér á skíðum. Voru þá sumir
valtir á fótunum en aðrir miklir
skíðakappar.
Á þeim árum var Fríður mikil
íþróttakona. Meðal annars gat hún
farið í splitt hvenær sem var, jafnvel
um áttrætt. Gott var að koma í eld-
húsið til hennar í ÍK-skálanum og
þiggja kaffisopa, sem ég drakk á
þeim tíma. Hópur sá er myndaðist í
kring um Fríði ferðaðist víða, og oft
voru haldin böll á vegum hennar í
borginni. Eitt sinn fór ég að kvöld-
lagi í skálann. Ég var einn á ferð,
snjór var yfir öllu og yndislega kyrrt
veður. Engin stjarna var sjáanleg og
aðeins eitt norðurljós á norðurhimni
sem benti á skálann. Þetta norður-
ljós hreyfðist ekki til né frá, og þegar
ég kom upp á hæðina og skálinn
blasti við var norðurljósið enn á sín-
um stað.
Næstu árin kom ég oft í Hattabúð-
✝ Fríður Guð-mundsdóttir
fæddist á Núpi í
Fljótshlíð 4. júlí 1908.
Hún lést á hjúkr-
unarheimili aldraðra í
Víðinesi 10. júlí 2004.
Útför Fríðar fór
fram frá Breiðaból-
staðarkirkju í Fljóts-
hlíð 17. júlí 2004.
ina Höddu á Hverfis-
götu 35, í því virðulega
húsi. Þar var einnig
mjög gott að koma til
þeirra Dóru, frænku
Fríðar, sem var mjög
flink hattagerðar-
kona, útlærð í Eng-
landi. Þar voru allir
velkomnir og oft glatt
á hjalla. Þarna var eig-
inlega skrifstofa ÍK og
var ég undirritaður á
tímabili í karladeild-
inni. Eftir lát Dóru
kom heiðurskonan
Anna, mágkona Fríðar, að austan frá
Núpi í Fljótshlíð, því mikla menning-
arheimili, en þaðan var Fríður ætt-
uð.
Ekki má gleyma því að oft var líf-
legt í búðinni þegar börn Önnu og
Péturs komu í heimsókn og einnig
þegar gæða- og listamanninn Stein-
grím Th. Sigurðsson bar að garði, en
hann var frændi þeirra.
Fríður var eins og mín önnur móð-
ir og studdi mig á ýmsa lund við hin-
ar ótrúlegustu framkvæmdir mínar.
Ekki má heldur gleyma vínrauða
hattinum sem þær frænkur út-
bjuggu fyrir mig og síðar prýddi höf-
uð „Óskars frænda“, sem var aðstoð-
armaður Tóta trúðs, en persónan
Óskar var skáldið Jóhannes Benja-
mínsson.
Síðustu árin dvaldi Fríður í góðu
yfirlæti í Víðinesi, sem hefði mátt
vera nær vinum hennar í borginni.
Vert væri að skrifa bók um þessa
merku konu sem með hjálpsemi
sinni varð svo mörgum leiðarljós.
Ég og börnin mín ásamt Ólöfu,
sem hún var einnig svo góð, kveðjum
hana þar sem hún hvílir í fögrum reit
í Fljótshlíðinni.
Guð blessi minningu hennar.
Ketill Larsen.
Fríður
Guðmundsdóttir
Með söknuði kveðj-
um við þig, elsku
Ranna. Þú varst alltaf
svo hlý og góð og mér
finnst alveg yndislegt
að Ingunn Rebekka skyldi hafa feng-
Rannveig Magnúsdóttir
✝ Rannveig Magn-úsdóttir fæddist í
Bolungarvík 6. ágúst
1923. Hún lést á hjúkr-
unarheimilinu Garðv-
angi 12. febrúar 2010.
Útför Rannveigar
fór fram frá Keflavík-
urkirkju 26. febrúar
sl.
ið tækifæri til að kynn-
ast langömmu sinni.
Því miður mun hún
líklega ekki muna eftir
þér og gæsku þinni en
sem betur fer eru til
margar góðar myndir
af ykkur saman og
munu þær myndir ef-
laust vera henni dýr-
mætar þegar hún
verður eldri.
Elsku langamma
Ranna, hvíl í friði og
Guð geymi þig.
Valgerður Ósk
og Ingunn Rebekka.
Áin er þögnuð. Dal-
urinn drúpir hljóður.
Dauft er í litlum bæ
sem er upp til fjalla.
Nú er kyrrlátur vetrarandvarans óður.
Allt þetta minnir á blómin og grösin
sem falla.
✝ Sigurður MarinóSigurðsson fædd-
ist á Litlahóli í
Svarfaðardal 2. júlí
1922. Hann lést á
Fjórðungssjúkrahúsi
Akureyrar 12. mars
2010.
Útför Marinós fór
fram frá Dalvík-
urkirkju 20. mars
2010.
Við erum döpur dán-
arklukkurnar klingja,
kliðurinn berst yfir strönd-
ina, fjöllin og dalinn.
Við skulum í hljóðlæti út-
fararsálmana syngja,
með söknuð í hjarta, Matti
er fallinn í valinn.
Hjartans þakkir
mínar, elsku frændi,
fyrir allt það liðna. Ég
vona að þín sterka trú
hafi létt þér ferðina yf-
ir dauðans haf, til
ljóssins lands. Lif þú
heill í landi lifenda.
Ástvinum hans öllum sendi ég
samúðarkveðjur.
Sigfríður Hallgrímsdóttir.
Sigurður Marinó
Sigurðsson
ÁSKRIFTASÍMI
569 1100