Morgunblaðið - 25.03.2010, Side 32
32 Dagbók
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010
Sudoku
Frumstig
1 8 2 6
9 3 8 5
6
2 8 5 1 6
2
3 8 1 9
6 8 3
7 1 2 6
4
2 4 7 3
3 2
5 8 9 6 4 2
7 2 4 9
8 3 5
9 6 4
6
7 9 5 6
5 7 1
3 2 9
4 9 1 6
7 6 9
7 1
5
5 7 2
9 5
4 6
6 5 1 8 2 4 9 7 3
4 9 3 5 7 6 2 8 1
8 7 2 1 3 9 4 6 5
5 8 4 2 9 3 6 1 7
1 6 9 7 5 8 3 2 4
3 2 7 4 6 1 8 5 9
7 3 6 9 1 2 5 4 8
9 1 8 6 4 5 7 3 2
2 4 5 3 8 7 1 9 6
9 8 2 1 6 7 4 3 5
3 5 4 9 2 8 1 7 6
1 7 6 5 3 4 9 8 2
7 4 3 8 1 6 2 5 9
2 6 5 4 7 9 8 1 3
8 9 1 3 5 2 7 6 4
6 1 7 2 4 5 3 9 8
5 2 8 7 9 3 6 4 1
4 3 9 6 8 1 5 2 7
2 7 8 3 4 6 1 5 9
4 1 9 5 2 7 8 6 3
5 6 3 8 9 1 7 4 2
6 5 1 4 3 8 2 9 7
7 9 4 1 5 2 6 3 8
3 8 2 6 7 9 5 1 4
1 4 7 9 8 5 3 2 6
9 2 6 7 1 3 4 8 5
8 3 5 2 6 4 9 7 1
Efsta stigMiðstig Lausn síðustu sudoku
Þrautin felst í því að fylla
út í reitina þannig að í
hverjum 3x3-reit birtist
tölurnar 1-9. Það verður að
gerast þannig að hver níu
reita lína bæði lárétt og
lóðrétt birti einnig tölurnar
1-9 og aldrei má tvítaka
neina tölu í röðinni.
Í dag er fimmtudagur 25. mars, 84. dag-
ur ársins 2010
Orð dagsins: Þetta er mitt boðorð, að
þér elskið hver annan, eins og ég hef
elskað yður. (Jh. 15, 12.)
Í nýjasta tölublaði tímaritsins DerSpiegel er fjallað um íslenska
menningu á krepputímum undir fyr-
irsögninni „Orfeus í skuldaheim-
inum“ og spurt hvort erfiðleikarnir
verði hvati til nýrra stórvirkja. „Við
erum tilraunabúr fyrir það, sem ger-
ist á morgun úti í heimi, í Litháen,
Grikklandi og Spáni,“ segir Einar
Már Guðmundsson rithöfundur við
blaðið. „Í augnablikinu berum við
kross heimsins.“ Blaðið bætir við að
sú byrði virðist ekki valda honum
áhyggjum. Í greininni eru taldir upp
íslenskir listamenn sem hafa gert
garðinn frægan og fjallað um að nú
komi bók Einars Más, utangarðs-
mannsins sem varð að talsmanni
þjóðar, um hrunið út á þýsku undir
heitinu Wie man ein Land in den Ab-
grund führt eða Þannig á að gera
land gjaldþrota. Segir að bókin sé
ekki söguleg lýsing, heldur ljóðrænt
reiðikast. Orfeus í fyrirsögninni er
hins vegar tónlistarmaðurinn Barði
Jóhannsson, sem kallaður er einn af
konungum íslenskrar popptónlistar
og segist vera einn af fáum Íslend-
ingum, sem með vinnu sinni komi
með erlendan gjaldeyri inn í landið í
beinhörðum peningum.
x x x
Fyrir tveimur árum var hætt aðframleiða filmur í Polaroid-
myndavélar. Þar með átti að senda
skyndimyndavélina á öskuhauga úr-
eltra uppfinninga. Vélin, sem tekur
myndir og framkallar um leið þótti
mikið þing á sínum tíma. Ekki voru
þó allir sammála um að Polaroid-
vélin hefði glatað gildi sínu og mynd-
aðist töluverð eftirspurn eftir filmu-
lagernum sem eftir var. Í þessari
viku á að kynna nýja framköll-
unarfilmu fyrir Polaroid-vélar í New
York og framleiðendurnir eru bjart-
sýnir. Sú bjartsýni er smitandi því
að Polaroid ætlar að setja myndavél-
ina á markað að nýju í lok árs. Verð-
ur hún lítið breytt frá upprunalegu
útgáfunni. Því má svo bæta við að
talið er að 300 milljónir nothæfra
Polaroid-myndavéla séu í umferð í
heiminum í dag. Engar spurnir hafa
hins vegar borist af því að gamla
kassettan eða snældan eigi að ganga
í endurnýjun lífdaga. víkverji@mbl.is
Víkverjiskrifar
Krossgáta
Lárétt | 1 æringjana, 8
konungur, 9 vatt, 10
þegar, 11 gabba, 13 flýt-
inn, 15 hóp, 18 mennta-
stofnana, 21 iðkað, 22
stólarnir, 23 svikull, 24
andstæða.
Lóðrétt | 2 erfð, 3
þarma, 4 fara laumulega
með, 5 kroppa, 6 skiln-
ingarvit, 7 vangi, 12
kusk, 14 dæmd, 15
vatnsfall, 16 skeldýr, 17
báturinn, 18 mikið, 19
stríð, 20 hina.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt: 1 vilpa, 4 spæta, 7 lipur, 8 eitil, 9 sef, 11 aðal, 13
anar, 14 Yggur, 15 torf, 17 tjón, 20 grá, 22 kopar, 23 líð-
ur, 24 arnar, 25 tarfa.
Lóðrétt: 1 velja, 2 loppa, 3 aurs, 4 stef, 5 ættin, 6 aular,
10 elgur, 12 lyf, 13 art, 15 tákna, 16 ræpan, 18 jaðar, 19
narta, 20 grær, 21 álít.
6
8
11
15
22
1
24
12
3
10
17
21
4
9
13
18
23
14
5
19
7
20
2
16
Skák
Helgi Áss Grétarsson | ritstjorn@mbl.is
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4 4. Rxd4 Rf6
5. Rc3 a6 6. f3 e6 7. Be3 b5 8. Dd2 Rbd7
9. g4 h6 10. O-O-O Bb7 11. h4 b4 12.
Ra4 d5 13. Bh3 Da5 14. b3 Rc5 15.
Rxc5 Bxc5 16. a4 O-O-O 17. g5 hxg5 18.
hxg5 Rd7 19. exd5 Bxd5 20. g6 f5 21.
Rxf5 Hxh3 22. Hxh3 exf5 23. Bg5 Bc6
24. Bxd8 Dxd8 25. Df4 Df6 26. Kb1 Re5
27. Hh5 Rxg6 28. Dxf5+ Dxf5 29. Hxf5
Be7 30. Hf7 Bf6 31. Hd6 Re5
Staðan kom upp í seinni hluta Ís-
landsmóts skákfélaga sem lauk fyrir
skömmu í Rimaskóla í Reykjavík.
Sænski alþjóðlegi meistarinn Nils
Grandelius (2496) hafði hvítt gegn ís-
lenska stórmeistaranum Jóni L. Árna-
syni (2491). 32. Hfxf6! gxf6 33. f4 Kc7
34. fxe5 fxe5 35. Hh6 Kb6 36. Kc1 Kc5
37. Kd2 Kd5 38. Ke3 Kc5 39. Hh4 Bd5
40. Hh5 e4 41. He5 a5 42. Hg5 og
svartur gafst upp.
Hvítur á leik.
Brids
Guðmundur Páll Arnarson | ritstjorn@mbl.is
Útspil í trompi.
Norður
♠G1052
♥ –
♦643
♣1087543
Vestur Austur
♠Á9 ♠7
♥K10432 ♥ÁG6
♦KD ♦G108752
♣ÁDG6 ♣K92
Suður
♠KD8643
♥D9875
♦Á9
♣ –
Suður spilar 4♠ doblaða.
Hvenær á að trompa út? Oft hefur
þessi spurning verið borin upp og jafn
oft hafa svörin verið loðin og fátækleg.
Kunnur mógúll svaraði þannig að ein-
ungis skyldi trompa út þegar það væri
rétt.
Það var sannarlega rétt að trompa
út í ofanrituðu spili Íslandsmótsins. En
það gerðu fáir. Með ♦K út víxltrompar
sagnhafi mjúku litina og fær þannig
níu slagi á tromp! Tígulásinn er tíundi
slagurinn. Slögunum fækkar hins veg-
ar um tvo ef út kemur ♠Á og meiri
spaði.
Grínlaust: Ef vörnin á alla hliðarliti
vel bólstraða er töluvert vit í tromp-
útspili til að hindra víxltromp. Hér er
vestur vel þéttur í hjarta og laufi. Hafi
hann ennfremur vitneskju um tígullit
hjá makker ættu puttarnir að rata á
spaðaásinn.
(21. mars - 19. apríl)
Hrútur Þeir eru margir sem líta til þín í
von um að geta lært guðs ótta og góða
siði. Forðastu að setja þig í þá aðstöðu að
vera dómari í deilumáli vina.
(20. apríl - 20. maí)
Naut Þú kannt að standa frammi fyrir
vandamáli sem þér finnst þú ekki
reiðubúin/n til þess að glíma við. Mundu
að það rennur upp nýr dagur á morgun,
fullur af tækifærum.
(21. maí - 20. júní)
Tvíburar Þú ert ekki beint slétt/ur og
felld/ur. Viðskipti gætu reynst var-
hugaverð ef þú lest ekki smáa letrið. Ætt-
ingi sem þú vissir ekki um kemur í heim-
sókn.
(21. júní - 22. júlí)
Krabbi Gættu þess að hafa ekki of mörg
járn í eldinum. Boð berst frá einhverjum
sem er hærra settur – það er varasamt að
þiggja, nema þú vitir að um hrein og bein
viðskipti sé að ræða.
(23. júlí - 22. ágúst)
Ljón Auðvitað er enginn vandi að missa
móðinn en það er samt alger óþarfi.
Farðu varlega því einhver reynir viljandi
að villa þér sýn.
(23. ágúst - 22. sept.)
Meyja Í dag er ekki rétti tíminn til þess að
samþykkja ferðaáætlanir eða ráðagerðir
á sviði útgáfu og æðri menntunar. Skoð-
aðu staðreyndirnar eins og þær eru.
(23. sept. - 22. okt.)
Vog Þú munt þurfa á öllum þínum hæfi-
leikum að halda til þess að komast hjá
mjög vandræðalegum atburði. Þú þarft á
fríi að halda.
(23. okt. - 21. nóv.)
Sporðdreki Hlauptu ekki á eftir hverjum
hlut sem hugurinn girnist. Sinntu áhuga-
málum þínum, það er ekki hollt að vera
alltaf í vinnunni.
(22. nóv. - 21. des.)
Bogmaður Reyndu að nálgast fólk betur.
Taktu nú fram verkfærin og lagaðu hluti
sem þú hefur trassað of lengi.
(22. des. - 19. janúar)
Steingeit Einhver vandræði koma upp í
vinnunni og þú þarft að leggja þig alla/n
fram til þess að ná sáttum. Ástvini finnst
þú eitthvað fjarlæg/ur.
(20. jan. - 18. febr.)
Vatnsberi Orka þín er mikil, þú laðar að
þér aðdáanda sem eltist við þig án ótta og
jafnvel af of mikilli ákefð, fyrir þinn
smekk. Páskaleyfið verður ánægjulegt.
(19. feb. - 20. mars)
Fiskar Þú hefur lent í erfiðri aðstöðu og
átt ekki gott með að losa þig úr henni.
Láttu aðra ekki hafa áhrif á þig.
Stjörnuspá
25. mars 1959
Íslensk flugvél lenti í fyrsta
sinn á Mallorca (Majorka).
Þetta var Sólfaxi, sem var með
sextíu ferðamenn í páskaferð.
25. mars 1968
Bandarísk herþota af gerðinni
F 102 hrapaði um einn kíló-
metra frá Skarði í Landsveit.
Flugmaðurinn skaut sér út úr
vélinni og bjargaðist. Dag-
blöðin sögðu að í þotunni
hefðu verið 24 litlar eld-
flaugar.
25. mars 1975
Samþykkt var að friðlýsa
Vatnsfjörð í Barðastrand-
arsýslu. Friðlandið er um eitt
hundrað ferkílómetrar.
Hrafna-Flóki nam land í
Vatnsfirði „og nefndi landið
Ísland,“ eins og segir í Land-
námu.
25. mars 2001
Schengen-samstarf fimmtán
Evrópuríkja tók gildi. Mark-
mið þess er að tryggja frjálsa
för einstaklinga um innri
landamæri samstarfsríkjanna
og að styrkja baráttuna gegn
alþjóðlegri afbrotastarfsemi.
Breytingar á mannvirkjum og
búnaði á Keflavíkurflugvelli
vegna þessa verkefnis kostuðu
800 milljónir króna.
Dagar Íslands | Jónas Ragnarsson.
Þetta gerðist…
Sverrir
Tryggvason er
áttræður í dag,
25. mars. Í tilefni
dagsins mun
hann taka á móti
fjölskyldu og vin-
um á heimili
sínu.
80 ára
SIF Margrét Tulinius, fiðluleikari og annar kon-
sertmeistari Sinfóníuhljómsveitar Íslands, fer á
æfingu í dag, á fertugsafmælisdaginn, og leikur
með hljómsveitinni á tónleikum í kvöld. „Ég er
ánægð með að verja afmælisdeginum svona. Svo
verður eitthvað gert um helgina, ef til vill býð ég
sex ára gömlum syni mínum, Krumma, og fjöl-
skyldunni í bústað á fallegum stað,“ segir Sif.
Sif bjó erlendis í áratug, fyrst við framhaldsnám
í Bandaríkjunum, síðan í Barselóna og Berlín.
Starfið krafðist mikilla ferðalaga því hún lék á
tónlistarhátíðum um allan heim. Hún bjó til dæmis
í Berlín þegar hún varð þrítug en var á tónleikaferðalagi eins og
venjulega og því lítið um afmælishald.
Hún fluttist heim haustið 2000 og hefur síðan leikið með Sinfón-
íuhljómsveit Íslands og mörgum helstu tónlistarhópum landsins.
Hún hlakkar sérstaklega til tónleikanna í kvöld, þótt þá beri upp á
afmælisdaginn. Þar verður hún í hlutverki konsertmeistara. „Þetta
verða frábærir tónleikar. Við leikum Dafnis og Klóa eftir Ravel með
Hamrahlíðarkórunum og verkið Mathis der Maler eftir Hindemith,“
segir Sif. helgi@mbl.is
Sif Margrét Tulinius fiðluleikari er fertug í dag
Tónleikar á afmælisdaginn
Nýbakaðir
foreldrar?
Sendið mynd af
barninu til birtingar í
Morgunblaðinu
Frá forsíðu mbl.is er einfalt
að senda mynd af barninu
með upplýsingum um
fæðingarstað, stund, þyngd,
lengd, ásamt nöfnum
foreldra. Einnig má senda
tölvupóst á barn@mbl.is