Morgunblaðið - 25.03.2010, Side 34

Morgunblaðið - 25.03.2010, Side 34
34 Menning MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 25. MARS 2010 BASSA-barítónsöngvarinn Andri Björn Róbertsson hélt sína fyrstu einsöngstónleika í Langholtskirkju fyrir fullu húsi fyrir stuttu, en aðrir sólótónleikar hans verða í Sel- inu á Stokkalæk næstkomandi laugardag kl. 15. Undirleikari verður Kristinn Örn Krist- insson píanóleikari. Á efnis- skránni eru sönglög eftir But- terworth og Quilter og síðan flytja þeir Liederkreis op. 39 eftir Robert Schu- mann. Selið á Stokkalæk er á Rangárvöllum en næsti bær er kirkjustaðurinn Keldur. Miðapant- anir eru í síma 487 5512 eða 864 5870. Tónlist Andri Björn á Stokkalæk Andri Björn Róbertsson Í KVÖLD frumsýnir Áhuga- leikhús atvinnumanna þriðja örverk sitt um áráttur, kenndir og kenjar. Verkið sem ber heitið Mars er 10 mínútna hug- leiðing um líðandi stund og er sýnt í beinni útsendingu á www.herbergi408.is, frá Út- gerð, Hugmyndahúss háskól- anna sem er nýtt gjörn- ingarými við Grandagarð 16. Sýningin er hluti af 12 verka röð sem mynda eina heild og verða sýnd í einu lagi í lok desember og verður þá einskonar annáll árs- ins 2010. Leikstjóri er Steinunn Knútsdóttir. Ókeypis er á alla viðburði Áhugaleikhúss atvinnumanna. Leiklist Örverk um áráttur, kenndir og kenjar Steinunn Knútsdóttir Í KVÖLD kl. 20 verður opnuð, í Studio Stafni, Ingólfsstræti 6, sölusýning á tuttugu listaverk- um eftir Guðmund Thorsteins- son „Mugg“ (1891-1924). Verk- in eru úr einkasafni sem sam- anstendur af olíumálverkum, vatnslitamyndum, litkrít- armyndum og blek- og blýants- teikningum. Langt er síðan jafn mörg verk eftir Mugg hafa verið til sýnis í einu og leita þarf allt aftur til yfirlitssýn- ingar Listasafns Íslands árið 1990 til að finna fleiri verk eftir Mugg á einni sýningu. Mörg verk- anna hafa ekki sést áður opinberlega. Sýningin stendur til 10. apríl. Myndlist Sölusýning á lista- verkum eftir Mugg Hluti af „Á Næt- urkránni“ frá 1921. Eftir Kolbrúnu Bergþórsdóttur kolbrun@mbl.is Á TÓNLEIKUM Sinfóníuhljómsveitar Íslands í kvöld, fimmtudaginn 25. mars, flytja Hamrahlíð- arkórinn og Kór Menntaskólans við Hamrahlíð ásamt Sinfóníunni verkið Dafnis og Klói eftir Mau- rice Ravel. Flytjendur í kórunum tveimur eru 127 á aldrinum 16-22 ára. Á tónleikunum verður einnig flutt Mathis der Maler-sinfónía eftir Paul Hindem- ith Sjórnandi á tónleikunum er Eva Ollikainen Góð ráð dýr Í ár eru liðin nær þrjátíu ár síðan Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð tók þátt í fyrsta heildarflutn- ingi á Dafnis og Klói á Íslandi árið 1981. Stjórnandi kórsins var þá, eins og nú, Þorgerður Ingólfsdóttir. „Aðalstjórnandi Sinfóníunnar árið 1981, var sá ágæti franski stjórnandi Jean-Pierre Jacquillat, og hann fór fram á það að kór skólans flytti þetta verk með hljómsveitinni,“ segir Þorgerður Ingólfsdóttir. „Dafnis og Klói er gríðarlega krefjandi og erfitt verk fyrir unga krakka í menntaskóla. Jacquillat kom á æfingu til okkar, hlustaði á kórinn og sagði að þetta gengi ekki því kórinn væri ekki nægilega hljómsterkur á móti svona stórri Sinfóníuhljóm- sveit. Þá voru góð ráð dýr. Til að stækka kórinn var leitað liðsinnis eldri kórfélaga sem höfðu útskrifast stúdentar á árunum áður og þannig varð Hamra- hlíðarkórinn til.“ Stór egó Í 42 ár hefur Þorgerður stjórnað Kór Mennta- skólans við Hamrahlíð og 1982 bættist Hamrahlíð- arkórinn við. „Ég er að vinna ótrúlega skemmtilega vinnu og þess vegna gengur þetta,“ segir Þorgerð- ur. „Það eru mikil forréttindi að fá að vinna með ungu og heilbrigðu fólki og það er mjög gefandi þótt það geti oft verið erfitt. Það hefur ekki orðið einfaldara með árunum því margt ungt fólk í dag gerir á vissan hátt meiri kröfur fyrir sjálft sig en áður var og sum egóin eru svo stór.“ Kórinn eykur við litrófið Þorgerður segir að Dafnis og Klói, verk Ravels, sé stórkostlegt. Það var upphaflega samið sem ball- ett en hefur líka lifað sem konserttónverk. „Þetta er mikið og magnað verk, litríkt í hljómsetningu og í því er að finna mikla hljómtöfra,“ segir Þorgerður. „Kórinn er notaður til að auka við litrófið, syngur án orða og gefur enn einn litinn í viðbót í hljóm- sveitina með þeim sérstaka tón sem söngröddin og svo kórhljómurinn hafa.“ Morgunblaðið/Kristinn Litir Þorgerður Ingólfsdóttir: „Það eru mikil forréttindi að fá að vinna með ungu og heilbrigðu fólki og það er mjög gefandi þótt það geti oft verið erfitt. Það hefur ekki orðið einfaldara með árunum því margt ungt fólk í dag gerir á vissan hátt meiri kröfur fyrir sjálft sig en áður var og sum egóin eru svo stór.“ Miklir hljómtöfrar  Hamrahlíðarkórarnir með Sinfóníunni  Flytja Dafnis og Klói á tónleikum í kvöld  Mikið og magnað verk, segir kórstjórinn Á efnisskránni í kvöld verða tvö verk, annars vegar ball- etttónlistin við Dafnis og Klói eftir Maurice Ravel, sem getið er um hér til hliðar. Ravel hóf vinnu við verkið 1909 að ósk ballettáhugamannsins og fjöl- listamannsins Sergeis Diaghi- levs, en verkið var svo frum- flutt 1912. Verkið, sem segir frá elskendunum Dafnis og Klói sem ná saman að lokum eftir ýmsar kárínur, er með helstu og vinsælustu verkum Ravels og hefur jafnvel verið kallað meistaraverk hans. Einnig verður flutt Mathis der Maler-sinfónían sem Paul Hindemith samdi á meðan hann var að vinna að samnefndri óperu árið 1934, en í sin- fóníunni notar hans ýmsar hugmyndir sem síðan skiluðu sér í óperuna. Söguhetjan er þýski mál- arinn Matthias Grünewald sem uppi var á sex- tándu öld, en yrkisefnið og meðferð þess þótti stangast á við hugmyndafræði nasistaflokksins sem lyktaði með því að Hindem- ith flúði land. Mathis der Maler er þekktasta verk Hindemiths og það sem oftast er flutt af verkum hans. Hljómsveitarstjóri á tónleik- unum er Eva Ollikainen. Hún er ekki nema 27 ára gömul en hef- ur þegar vakið athygli víða um heim og meðal annars stjórnað útvarpshljómsveitunum í Finn- landi og Svíþjóð, fílharm- óníuhljómsveitunum í Stokkhólmi og Turku, Ta- piola-sinfóníettunni og sinfóníuhljómsveitunum í Helsingborg og Þrándheimi. Þá debúteraði hún við Konunglegu sænsku óperuna 2008 í óperum eftir Ravel og Stravinskíj, og hefur auk þess stjórnað við finnska þjóðarballettinn. Ollikainen kom fyrst til Íslands haustið 2005 og stjórnaði framhaldsskólatónleikum. Þetta er í annað sinn sem hún stjórnar hljómsveitinni á þessu starfsári en síðast var hún hér í nóvember og stjórnaði Schumann og Brahms. Ravel og Hindemith og Eva Ollikainen Hljómsveitarstjórinn Eva Ollikainen WOLFGANG Wagner, barna- barn tónskálds- ins Richards Wagners, lést í vikunni níræður að aldri. Wolf- gang stýrði tón- listarhátíðinni í Bayreuth í Bæj- aralandi í 57 ár, lengi með Wiel- and, bróður sinn sér við hlið, en einn eftir að Wieland lést 1966. Tónlistarhátíðin í Bayreuth á sér langa sögu, en Richard Wagner kom henni á 1876 til að tryggja fjárhagslegt sjálfstæði sitt og til þess að helstu óperur hans yrðu settar upp á sómasamlegan hátt. Wolfgang og Wieland Wagner end- urreistu tónlistarhátíðina eftir stríð. Wolfgang Wagner heimsótti Ís- land tvívegis og var meðal annars á frumsýningu á styttri útgáfa af Niflungahringnum á Listahátíð í maí 1994, en hann hafði listræna yfirumsjón með verkefninu hátíð- inni að kostnaðarlausu. Wolfgang Wagner látinn Stýrði tónlistarhátíð- inni í Bayreuth í 57 ár Wolfgang Wagner KÓR Menntaskólans í Reykjavík leggur land undir fót þessa dagana því hann er í stuttri tónleikaferð um Norðurland. Í kvöld syngur kórinn á tónleikum í Hóladóm- kirkju en fer síðan til Akureyrar og heldur tónleika annað kvöld kl. 20 í Ketilhúsinu. Einnig hyggjast kór- félagar syngja víða um bæ yfir daginn. Síðustu tónleikar kórsins í þessari ferð verða síðan í Þorgeirs- kirkju við Ljósavatn á laugardag kl. 16. Á tónleikadagskrá kórsins eru kirkjuleg og veraldleg verk, bæði íslensk og erlend, meðal annars út- setningar úr íslenskum söngarfi eftir Róbert A. Ottósson, Smára Ólason, Hjálmar H. Ragnarsson og Árna Harðarson. Einnig má nefna verk eftir Báru Grímsdóttur, Hildi- gunni Rúnarsdóttur og Finn Torfa Stefánsson. Um 40 söngvarar eru í kórnum í ferðinni, en stjórnandi kórsins verður Guðlaugur Viktorsson. Aðgangur að tónleikunum er ókeypis en frjáls framlög í ferða- sjóð vel þegin. Kór MR á tón- leikaferð um Norðurland Ferðalag Kór Menntaskólans í Reykjavík. Aniston er alveg eins og alltaf. 38 »

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.