Skólablaðið - 01.04.1968, Page 8
ÍÁÍSKðMRLÍ F
DnflccLfl
To her death is quite romantic
She wears an iron vest
Her profession is her religion
Her sin is her lifelessness
And though her eyes are fixed upon
Noah s great rainbow
She spends her time peeking
Into Desolation Row.
Bob Dylan.
FIRLEITT staöhæfðu munkar og kraftaskáld
sem kynnt höfðu ser malin, að blóðsuguást-
in fullnægði aðeins öðrum aðilanum, þeir
kvaðu hina sefjandi nautn sem felst 1 þvá
að láta undan og finna lífsþróttinn fjara út
samfara staðnandi hjartaslætti eigi virði
salarmissirins, aftur á móti, tækist blóð -
sugunni að dáleiða fórnardýr sitt ullu atlot
hennar djupri og fagnandi tilfinningu hjá því",
eins og hja pislarvottunum a leikvöngum
Romar, vaknaði hja þeim unaðssár losti líkt
og af harðlífi. Þegar Dracula leitaði sór
bruðar hafði hann þetta ætíð í huga, seiddi
hana til sin 1 hrárri og kaldri þoku líkri
stóru vitvana teygjudýri, starði rauðum
brennandi aupm a hana, hár, grannur með
stóra fjólublaa skikkju á herðum ser sem
sveiflaðist af öxlum hans eins og vængir
refsiengils, eigi að ófyrirsynju var hann á
auglýsingamali nefndur Hinn Mest Hrylli-
legi og Einkennilegi Elskhugi Senunnar,
hann beraði oddhvassar tennurnar fullur
skilnings og umburðarlyndum áhuga á lik-
amlegum þörfum konunnar. Hun fann ein-
manaleikann þrugast um sig og óskaði sér
annars draums. Það veitti Dracula henni,
skyndilega var hún á þöglum fáki i hlíðum
Karpatafjalla, leit kirkjugarðinn við hallar-
rustirnar laugaðan silfruðu bloði tunglsins,
hendur píanóleikara teygjast upp úr leiði og
róta mattvana 1 moldinni, 1 skugganum hvíldu
steinkistur hinna lifandi dauðu.
"Þetta er ríki mitt, " sagði Dracula stoltur
við hana og myndaði bros a vörum sér eins
og............. "aðeins breiðar náttúrulýs-
ingar Svetlönu geta lyst umroti tilfinninga og
efnaskipta minna. " Munnur minn er meitlað-
ur af steinlim guðsins Vishnu, var hann van-
ur að segja þegar hann slo a lettari strengi,
enda var munnurinn likur djupu stungusari,
löng tungan skauzt fram milli tannanna eins
og blóðgusa, hann sveipaði um sig skikkjunni,
gaf frá sér hása stunu, boraði tilliti rauðra
augna sinna 1 sljó augu hennar, töfraði hana
með stórfenglegri illsku sinni og kyssti hana
aftan á hálsinn inn að beini, höggormskossi