Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 34

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 34
RÆ.ÐA FLUTTVIf) DIMISSION Virðulegi rektor, kennarar, dimittendi og önnur skola- systkin ! Eitt er það hugtak, sem hefur reynzt vísindamennsku nútímans ofviða. Það er tíminn. Það er vitað um timann, að hann líður, jafnt en þétt, og að maður- inn er háður honum, en annars hefur reynzt erfitt að henda reiður a honum. En samt brjótumst við stundum undan hinu miskunnarlausa hjóli timans. Við stöldrum við, og einhvern veginn verðum við óháð því, sem er að gerast i veröld- inni i kring um okkur, og einnig ohað tímanum, sem líður. Þetta köllum við tímamót. Og ein- mitt þess háttar tímamot eiga ser nu stað hjá okkur, rúmlega tvöhundruð efstu- bekkingum i Menntaskolanum i Reykjavík. Við erum að yfirgefa þann skola, sem við höfum dvalið i i um það bil fjögur ar. Þetta er agætt tækifæri til þess að staldra ögn við, láta tímann lúða fram- hjá, láta sór líða vel og vera ohað öllu öðru. Og þvú hvarflar hugurinn víða, helzt til baka. Ég minnist minnar eigin barnaskólaveru og fjölmargra agætra vina og kunningja, sem eg eignaðist þar. Margir þeirra eru nu 1 þessum skola, og sjalfur a eg tvo bekkjarbræður, sem verið hafa það nær samfellt i þrettan ár. Það er langur timi, þegar aldurinn er ekki orðinn tuttugu ár. Ég minnist leikjanna 1 barnaskólaportinu og allra klækjanna, sem maður kunni ekki. Ég minnist gagnfræðaskólans og þeirra við- brigða, sem hann var. Okkur i barna- skólanum var sagt fra hinum frjálsu og litt þvinguðu kennsluhattum 1 gagnfræða- skólanum. Við hlökkuðum til. Og svo tók þessi skóli við, og þa hitt- ist fyrst þessi hópur, sem nú er að ut- skrifast saman. Her höfum við eignazt nýja vini og fengið ny lifsviðhorf. Á þessum árum eru stigin þau skrefin, sem mestu máli skipta. Ég minnist þess, þegar vinur minn, ari eldri en eg, var að gylla fyrir mer hið akademiska frelsi menntaskolans, sem hann kallaði svo. Þar mátti reykja a böllum. En nog um það. Það var ólikt barnalegra fólk, sem mætti her uti a flötinni i september fyr- ir nær 4 árum, til þess að heilsa, held- ur en það, sem nú er mætt her a Sal, til þess að kveðja. Það var barnalegri Stefán Friðfinnsson, sem lánaði mer 10 kr. á þriðja degi minum her i skól- anum, en sá Stefan Friðfinnsson, sem lánaði mór 100 kr. i fyrradag. En Stefán er bara tákn þessa hóps. Sifellt að eld- ast og þroskast. Við eigum öll leiftrandi og skemmti- legar minningar fra þessum arum, heð- an úr skólanum. tJr náminu og úr fe- lagsstarfseminni. Um gildi namsins þarf vissulega ekki að fjölyrða, kannske frek- ar um gildi fólagslífsins. Það er nu einu sinni svo, að sumir taka virkari þátt i fólagslifi en aðrir. Og þátttakend- urnir, sja ekki eftir neinu, hinir maske eftir einhverju. En skoðanir manna eru ólikar og áhugasvið einnig. Og svo er það allt, sem gerzt hefur i tengslum við þennan skola, an þess þo að vera beinlinis innan vóbanda hans. Ferðalögin, skemmtanirnar, kaffihusin, kunningsskapur yfirleitt. Ef til vill er það dýrmætast af öllu. Þessi vetur, sem nú er að liða, er 121. vetur þessa skóla. Þetta er orðið gamalt hús, og útþenslan er mikil. Kennslan fer fram i fjórum husum. Nemendur eru nær eitt þusund. Það er þvi augljóst, að þetta er risavaxið fyrir- tæki. Einnig er það augljost, að íjoess- um skóla er margt, sem þarfnast ur- bóta. Kennsluhættir eru að mörgu leyti gamaldags, nýir timar krefjast nýrra aðferða. Hinu ma svo ekki gleyma, að ytri starfsskilyrði eru ekki aðalatriðið, held-

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.