Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 13

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 13
Tvær kindur komu jarmandi niður hlíðina. Moðir. Lamb. Klesst ull. Aukin birta. Þokan grisjóttari ; Fætt en ólifað. - Ég. Hugsanir ráf- andi liðna slóð : Þa nótt hafði líkami hennar enn einu sinni gefið sig. Ást mín. - Nakin. Elskaði eg hana enn? Lamið hana. Sjúklegt. Afbrýði. IMetnaður -....... Æ, 6, ekki gera þetta. Ekki vera svona vondur við litlu stelpuna þína. Henni þykir svo vænt um strák- inn sinn : Barnsleg rödd hennar. Aðeins í minning- unni ; Hugsanir. - Og nú. Aftur einn. Ég elska þig .... Nei, nei ; Mánudagsmorgun. - Hvers ve^na hangirðu svona. Yar eg ekki að segja þór, að þu hefðir raðað staurunum vitlaust. Af hverju byrjarðu ekki að bera þá aftur til baka, fiflið þitt. - Mer var ekki sagt hvernig ætti að raða þeim, eg hólt.....óg hef aldrei . . . - Þu ert bara helvítis fífl. Reyndað drulla þór af stað asninn þinn. Þu byrjar á þvá að bera aft- ur staurana, sem þú raðaðir vitlaust. Ég tek mer pasu a meðan. Sjálfselska. Vorkunnarleysi. Eigingirni. - Sljótt blóð hans. Fátækur. Ómenntaður. Fyllti heiminn af fávizku og elskaði. Hvaða rótt hafði hann. Aðeins likamlegan. Stynjandi af losta. Tveir klossaðir lúkamar ; Veltast 1 tilfinningaofsa án tilfinninga. Daunkennd lykt ; Bræddur ostur........... Nei, nei. Þokan að hverfa af efstu brúnunum. Handan fjarðarins ; Reykjarslæður á leið upp 1 blámann, Sveitabæir. Fjöllin ; Syndandi í lygnunni. Skyndilega titruðu hendur hans. Skalf. - Ógæfulegur. Hallaðist fram a viðarbunkann. Kökkur. Örvænting. Ég fókk aldrei að fara í neinn skóla - aldrei að læra neitt - þó, þó - mig langaði ...... Þau voru mjög fátæk. Bara vinna vinna. Mig langaði samt alltaf að menntast, læra og menntast .... Ég get ekkert að þessu gert................... - það hefur allt verið lagt upp í hendurnar á ykkur, skólar og kennarar. Þið, þið skiljið ekki...... Hann titraði. Kipptist til. Skalf. Augun, duldu ekkert. Voru á flögri - Eldri. Gola af hafinu. Sjávarlykt. Drambsamur. Skilningslaus. Hjákátlegur : Ég. Ég tok upp einn staur- inn og lagði af stað upp hlíðina. Hrafn Gunnlaugsson.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.