Skólablaðið

Árgangur

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 21

Skólablaðið - 01.04.1968, Blaðsíða 21
Nokkur orð um íslenzkukennslu Mer hefur lengi leikið hugur á að vita, hvernig á því stendur, að málfar á greinarmerkjaverkefnum og stafsetningar- æfingum er svo óeðlilegt, 1 marga staði ljótt og 1 sumum tilvikum rangt sem raun ber vitni. Er visvitandi verið að reyna að slæva málsmekk fslenzkrar æsku? íslenzkukennarar eru sífellt að benda á staði 1 æfingum þessum, þar sem mal- fari er að einhverju leyti ábótavant, og nota jafnvel sum dæmi til þess að sýna, hvernig málfar á ekki að vera. M. ö. o. kennslugögn eru viti til varnaðar hvað malfar snertir. Allir hljóta að sjá, hvílík hætta það er að halda sliku að unglingum með óþrosk- aðan málsmekk. Áður en þeir vita af, eru þeir farnir að rita með svipuðum stíl, t. d. með þvi að hrúga 10-12 auka- setningum og einni aðalsetningu í eina málsgrein. Þetta setur nemandi í rit- gerð og fær stóra athugasemd og lækkun a einkunn fyrir. Sumir reyna að afsaka J>etta með þvi að segja, að erfitt sé að utskýra sum dæmin öðruvisu en með einhverjum því- líkum hryllingi. En mér er spurn : Ef slíkt getur ekki komið fyrir án þess, að þar í felist rangt málfar, hvers vegna er verið að kenna það ? Þetta var um það, sem beinlíhis rangt getur talizt. En hitt er öllu algengara, þar sem um klúðurslegt, óeðlilegt og þvingað mal er að ræða. Ég hef orðið var við það hjá sumum kennurum og mætum íslenzkumönnum, að sum orð og orðatiltæki séu einkaeign annað hvort hins ritaða máls eða talaða. Þar er stefnt að því að hafa mikinn mun á ritmáli og tálmáli. Það, sem svo er kallað ritmál, er svo klúðurslegt, að flestir fá klfgju við lestur þess. Þar ma ekki nota alþýðleg orð eða nýmyndanir. Slík |>róun er stórhættuleg. Talmálið losnar ur tengslum við ritmálið og verð- ur æ lágkúrulegra og opnara fyrir er- lendum áhrifum. Menn geta ekki lengur tjáð sig á máli, sem þeim er eiginlegt. Einnig stuðlar slíkt að stórhættulegri stéttaskiptingu milli lítt menntaðra og há-. Margir menntamenn eru þrúgaðir af þessu málfari stafsetningarverkefnanna og lögfræðiskjala. Þessir menn eru fjar- lægir tungutaki þjóðarinnar og geta aldrei náð til hennar. Hinir mest lesnu rithöfundar okkar hafa alltaf gætt þess að losna eigi úr tengslum við hið dag- lega mál og hafa skrifað á alþýðlegan hátt. Nægir þar að benda á Þorberg, Kiljan og Guðberg. Nei, kennsla, og þá sérstaklega móð- urmálskennsla, verður að fara fram á máli, sem er fólki eiginlegt. Þær kröf- ur verður að gera til kennslubóka og æfinga, að þær séu skrifaðar á skemmti- legu máli. Þannig er bezt að innræta mönnum góðan málsmekk. Auka verður verklegar æfingar x meðferð malsing og ritgerðasmíð. Það er ein forsmánin enn, hve lítið er hugsað um ritgerðakennslu hér í skóla. T. d. í minum bekk hefur ekki verið skrifuð ein einasta ritgerð, og samt er komið fram í apríl. Það lítur út fyrir, að ráðandi menn telji það ekki mögulegt að kenna samningu ritgerða. Svo standa menn með stúdentspróf og geta ekki einu sinni tjáð sig á viðunandi hátt. Hægt væri að drepa á margt fleira í sambandi við úslenzkukennslu, svo sem kommufíflaskapinn ( sem ég hef þó reynt að hagnýta mér í þessari grein ). En mál er að linni. . . Gestur Guðmundsson.

x

Skólablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skólablaðið
https://timarit.is/publication/782

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.