SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 4

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 4
4 9. október 2011 Fyrir utan höllina beið stór hópur fólks á meðan brúðkaupið fór fram, margir biðu klukkustundum saman í steikjandi sólinni í þeirri von að líta hjónin nýgiftu augum og lýsa yfir stuðningi sínum. „Lengi lifi hertogaynjan!“ kallaði fólkið þegar hún kom út. „Þetta er svo fallegt hjónaband og mikil ást og alúð þarna. Ég elska þig svo mikið hertogaynja,“ sagði hinn fertugi Enrique Jimenez, íklæddur bol með mynd af hertogaynjunni. Röðin komin að konunum að yngja upp „Áður voru það bara menn sem kvæntust yngri konum, núna er röðin komin að eldri konum að giftast yngri mönnum,“ sagði Encarna Alcazar, sem hefur eins og hertogaynjan tvisvar orðið ekkja. Mjög margir íbúar Sevilla styðja ákvörðun her- togaynjunnar um að gifta sig í þriðja sinn. „Þetta snýst ekki um aldur. Það skiptir lang- mestu máli að ástin sé fyrir hendi,“ sagði einn bæj- arbúa, Conception Arrincon, við fréttastofu AFP. Lengi lifi hertogaynjan! Hertogaynjan á marga aðdáendur. Reuters H in vellauðuga hertogaynja af Alba gekk í þriðja sinn í hjónaband í vik- unni en athöfnin vakti mikla athygli í heimalandi hennar, Spáni, og víð- ar. Hertogaynjan er 85 ára gömul og giftist á miðvikudaginn opinbera starfsmanninum Alf- onso Diez Carabantes, sem er 25 árum yngri en hún. Athöfnin fór fram í kapellu við höll henn- ar frá 15. öld, Palacio de las Duenas í Sevilla. Stór hópur almennings fagnaði brúðhjónunum að athöfninni lokinni og tók hertogaynjan nokkur flamenco-dansspor fyrir fólkið. Gekk erfiðlega að kasta brúðarvendinum Brúðarkjóllinn var ljósbleikur blúndukjóll eftir andalúsísku hönnuðina Victorio & Lucchino. Ekki gekk hins vegar vel hjá brúðinni að kasta brúðarvendinum til hópsins en hún dreif ekki nógu langt í fyrstu tvö skiptin en í þriðja skipt- ið gekk það og ung stúlka greip blómin. Aðeins nánum vinum og fjölskyldu var boðið til athafnarinnar og veislunnar á eftir. Þar var meðal annars boðið upp á kalda gazpacho-súpu og hrísgrjón með vel krydduðum humri. Fyrsta brúðkaup hertogaynjunnar fór hins vegar fram í október árið 1947. Þá var brúðurinn 21 árs, gestirnir um þúsund talsins og hún bar skart- gripi að andvirði um 180 milljóna króna á þeim tíma. Spænskir fjölmiðlar veittu athöfninni núna mikla athygli og voru nokkrar sjónvarpsstöðvar með beina útsendingu utan við höllina á meðan á athöfninni stóð. Eignir hennar metnar á 550 milljarða króna Börn hertogaynjunnar voru hjónabandinu mót- fallin, allavega í fyrstu, og óttuðust að Alfonso Diez Carabantes væri aðeins á eftir peningum móður þeirra. Nóg er að minnsta kosti til að elta því eignir hennar eru metnar á um 550 milljarða króna. Til að leysa málin skipti her- togaynjan upp stórum hluta af búi sínu fyrir brúðkaupið á milli fimm sona sinnar og einnar dóttur og barnabarnanna en þar á meðal voru fjölmargar hallir og hús auk listaverka eftir heimsfræga listamenn á borð við Goya, Velaz- ques, Rembrandt og Rubens. Tvö barnanna mættu ekki Hertogaynjan er strangtrúaður kaþólikki og segist því ekki hafa átt annarra kosta völ en að gifta sig til að geta haldið sambandinu áfram en hún hefur tvisvar orðið ekkja. Hún segir að börn hennar hafi mótmælt þar til þau hafi áttað sig á því hvernig mann hann hefði að geyma. Tvö börn hennar mættu ekki í brúðkaupið sem veltir upp þeirri spurningu hvort ekki hafi tekist að leiða málin til lykta. Eugenia, einkadóttir hennar, var reyndar á sjúkrahúsi með hlaupabólu. Einn sona hennar, Jacobo, sem fréttir herma að hafi ekki verið ánægður með sinn hlut, var í viðskiptaferð í París á meðan brúðkaupið fór fram. Hertogaynjan tók nokkur flamenco-spor við mikinn fögnuð áhorfenda. Reuters Fagnaði með flamenco-dansi Hin vellauðuga hertogaynja af Alba gekk í hjónaband með 25 árum yngri manni í vikunni Vikuspegill Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Hjónin nýgiftu. Reuters Hertogaynjan heitir fullu nafni Maria del Rosario Cayetana Alfonsa Victoria Eugenia Francisca Fitz-James Stuart y de Silva. Samkvæmt Heims- metabók Guinness hefur her- togaynjan fleiri titla sem við- urkenndir eru af ríkisstjórn sem nú er við lýði en nokkur önnur aðalsmanneskja. Reuters Langt nafn og flestir titlar einfaldlega betri kostur Fjöldi afmælistilboða Afmæli um helgina! Súkkulaðikaka og kaffi/djús í boði ILVA, laugardag og sunnudag Frí kaka ILVA Korputorgi, sími 522 4500 www.ILVA.is laugardaga 10-18 sunnudaga 12-18 mánudaga - föstudaga 11-18:30 ILVA Korputorgi, 112 Reykjavík sími 522 4500 www.ILVA.is

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.