SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 15

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 15
9. október 2011 15 an hátt er ég að reyna að uppfæra þessa starfslýsingu popparans í gegnum þetta verkefni.“ Björk fer skyndilega að velta fyrir sér fésbókinni og tístinu og aðkomu hennar að þeim þáttum. „Það er krafa í dag um að listamenn séu tístandi og setjandi inn færslur á Fés- bók allan liðlangan daginn og ég er alveg glötuð í því. Ég er bara af annarri kynslóð held ég. Ég tek þetta út í öppunum og reyni að uppfræða fólk þar, frekar en að segja frá því hvernig samloku ég var að borða í hádeginu.“ -Mér hefur fundist eins og þú sért að brjóta upp þetta egó sem fylgir lista- manninum. Þú ert að virkja fólk í gegn- um öppin og draga það til þín. Þú ert að uppfræða ungt fólk í gegnum vinnubúð- irnar og ert að setja þetta allt á einhvers konar jafningjagrundvöll. Er ég nálægt hugmyndafræðinni? „Ég hef einmitt verið þátttakandi í þessu skipuriti í tuttugu ár þar sem popparinn er alltaf á einhverjum stalli. Maður er vanur þessu og ég les viðtöl við mín átrúnaðargoð af áfergju. Undanfarin ár hefur bilið á milli aðdáenda og „stjarna“ svo verið að minnka, með til- komu Twitters, t.d. þar sem fólk, stjörn- ur sem aðdáendur, er í beinum sam- skiptum. Að einhverju leyti er ég að reyna að brjóta upp þetta gamla kerfi já. En ég þurfti að bíða eftir rétta tækifærinu svo ég gæti gert þetta á mínum eigin for- sendum. Þetta væri ekki hugmynd- arinnar vegna. Þetta yrði að vera tengt kjarnanum í verkefninu – ekki mér.“ Ástar/haturssamband -Þú virðist hafa raunverulegan áhuga á og metnað til að láta eitthvað af þér leiða, uppfræða fólk og sýna því fram á eitthvað nýtt, t.d. í gegnum þessar vinnubúðir. Hvaðan kemur þetta? „Ég átti í ástar/haturssambandi við tónlistarskólann minn, Tónmenntaskóla Reykjavíkur. Ég var þar frá fimm til fimmtán ára aldurs og var ein eftir í mín- um bekk fimmtán ára. Mig langaði ekki til að hætta. Ég grét. Það er mikið búið að tala um pirring minn út í skólann en það var ekki alveg svo einfalt. En ég hafði ákveðnar skoðanir á náminu, ég vildi bara semja lög strax. Mér fannst allt of mikil áhersla á tæknilega getu og ég þekki fólk sem kemur úr svona námi og upplifir sig sem lúsera af því að það býr ekki yfir þeim aga sem gerðar eru kröfur um. Fólk sem hefur kannski mikið að gefa. Mig hefur því alltaf langað til að stofna tónlistarskóla. Mér var einu sinni boðið að kenna nokkra tíma þegar ég var 18 ára og mér fannst það ógeðslega gam- an. Ég ákvað að þetta yrði það sem ég myndi gera þegar þetta poppstuð væri búið en það hefur aðeins teygst á því (hlær). Mig langaði til að vinna með krökkum á aldrinum 5-8 ára, þegar þau eru í mikilli mótun. Mér finnst mikilvægt að börn skilji að tónlist er fyrst og síðast frelsi. Hún á líka að fela í sér gleði fremur en höft og að börnin geti valið hvaða tón- listarlegu leið þau fari. Viltu verða pían- isti eða viltu bara njóta tónlistarinnar? Að fólk geti valið um það hvað það fari af miklum krafti inn í þetta. Mig langaði til að fara inn í svona verkefni og þegar snertiskjárinn eða iPaddinn kom til sög- unnar fannst mér það vera tákn um að ég ætti að beita mér í þessu. Þessi skóli/ vinnubúðir er sá skóli sem mig langaði alltaf að fara í. Það er hægt að segja að þetta sé mjög óeingjarnt hjá mér en um leið er þetta líka mjög eigingjarnt þar sem ég er að reyna að leysa einhverja ráðgátu sem ég stóð frammi fyrir sem barn. En með því að reyna að leysa hana er ég um leið að deila þannig að þetta er einhver hringur.“ Karma -Hvernig hefur þér gengið að hafa yfir- sýn í þessu verkefni? Þetta er rosalegt „multi-task“ dæmi? „Ég hef aldrei „multi-taskað“ jafn mikið á ævinni. Síðasta verkefni, Volta, var mjög „aggró“ – fara upp á stól og kvarta, benda á, finna að og vera krít- ískur. Þegar ég settist niður með þetta verkefni var það svolítið: Jæja, nú ertu búin að benda mikið. Hvernig væri nú að koma með lausnir? Það er eitthvert karma í því. Á Volta var þetta „Allir í röð! Harðir!“ en nú er þetta meira þessi blíði garðyrkjumaður sem reynir að sá fræjum hér og hvar, reynir að vinna á ýmsum sviðum sem samtengjast þó öll. Nokkurs konar net. Þetta er karakter þessa verk- efnis og ég hef þurft að gefast upp fyrir honum – leyfa verkefninu að fara sína leið.“ Biophilia kemur út á mánudaginn. Sjá dóm í aðalblaði. Fyrstu Biophilu- tónleikarnir verða í Hörpu 12. október.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.