SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 32

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 32
32 9. október 2011 E itt af því sem ástæða var til að velta fyrir sér í kjölfar hruns- ins haustið 2008 var það hvort sá atburður mundi leiða til breytts hugarfars þjóðar, sem hafði búið við vaxandi velgengni um langt skeið, og breytts lífsstíls. Þegar alvarlegir atburðir verða í lífi einstaklinga getur það leitt til þess að viðhorf þeirra til lífsins gjörbreytist, hvað það er sem skiptir máli og hvað skiptir engu máli. Og þess vegna ekki fráleitt að ætla að hið sama geti gerzt í lífi þjóðar. Mörgum hefur þótt djúpt á þeirri við- horfsbreytingu en kannski er hún að verða að veruleika, ekki sízt ef við lítum yfir sviðið allt en ekki bara á Ísland eitt. Umræður um alla Evrópu snúast nú um eitt og hið sama – að minnka skuldir þjóða, fyrirtækja, heimila og ein- staklinga. Nýjasta dæmi um það er ræða David Cameron, forsætisráðherra Breta, á landsfundi Íhaldsflokksins sl. miðviku- dag. Kjarninn í ræðu Camerons var sá að Bretar þyrftu að minnka skuldir á öllum stigum samfélagsins til þess að treysta efnahag sinn. Og sami boðskapur heyrist annars staðar, þótt með mismunandi hætti sé. Bandaríkjaþing og Hvíta húsið standa í stóraðgerðum við að skera niður opinber útgjöld til næstu tíu ára. Ísland er ekkert annað en spegilmynd af þessari stöðu. Þótt deilt sé hér heima fyrir um einstakar niðurskurðaraðgerðir ríkis og sveitarfélaga hljóta þó allir, stjórnarsinnar og stjórnarandstæðingar, að vera sammála um, að niðurskurður útgjalda er óhjákvæmilegur. Í þessu felst að bæði við, Bandaríkja- menn, Bretar og aðrar þjóðir í okkar heimshluta horfumst í augu við, að ekki er hægt að halda áfram að lifa nú á kostn- að framtíðarinnar. Það sama á við um fyrirtæki, heimili og einstaklinga. Allar þessar einingar samfélagsins hljóta að hugsa á sama veg. Það var lykilþáttur í ræðu Camerons á miðvikudag. En um leið og þetta er sagt er ákveðin mótsögn fólgin í því ef og þegar opinberir aðilar og jafnvel fyrirtæki gera fjárhags- áætlanir sínar út frá þeirri forsendu að hinn almenni borgari muni auka eyðslu sína um leið og hann getur. Cameron fann samstundis fyrir þessari mótsögn. Brezku blöðin sögðu frá því á miðvikudags- morgun hvað hann mundi segja í ræðu sinni síðar þann dag. Eitt af því var það að hann hvatti Breta skv. hinum skrifaða texta ræðunnar til þess að borga upp kreditkortaskuldir sínar. Sérhags- munaöflin í formi stórmarkaða dembdust yfir hann strax þennan sama morgun og sögðu: ef þú hvetur fólk þess að borga upp kreditkortaskuldir sínar minnkar salan hjá okkur enn meira og samdrátt- urinn í efnahagslífinu verður enn meiri. Cameron gaf strax eftir og breytti texta ræðunnar þótt meginþemað væri óbreytt. Þegar ríkisstjórn Íslands leggur fram fjárlagafrumvarp, sem að einhverju leyti byggist á aukinni einkaneyzlu, er hún í raun að ýta undir óbreytt hugarfar og óbreyttan lífsstíl frá árunum fyrir hrun. Þjóðin þarf á öðru að halda. Það hefur kostað Þjóðverja gífurlega fjármuni að endurreisa austurhluta landsins og því verki er ekki lokið enn. Þeir hafa unnið sig í gegnum það með því að auka útflutning. Aðhaldið á öllum sviðum heima fyrir hefur verið mikið. Sá mikli efnahagsstyrkur sem Þýzkaland býr við í dag byggist á stórauknum útflutn- ingi. Það er röng pólitík hjá stjórnvöldum, vinnuveitendum og verkalýðshreyfingu að telja fólki trú um að betri tíð sé á næsta leiti. Svo er ekki. Það tekur lengri tíma en þrjú ár að vinna upp afleiðingar hrunsins. Um leið og svigrúm skapast hlýtur for- gangsverkefni vera að rétta hlut þeirra, sem við bágastan hag búa. En velgengni okkar í framtíðinni byggist á því að auka útflutning okkar og afla tekna annars staðar frá. Þetta eiga stjórnmálamennirnir að segja þjóðinni og segja það umbúðalaust. Það breytta hugarfar sem við þurfum á að halda eftir hrun er að hætta að lifa á kostnað framtíðarinnar. Það er ekkert erfitt eða vont líf þótt það kalli á annan lífsstíl en þann sem kenndur er við það umtalaða ár 2007. Var það eitthvað sér- staklega eftirsóknarverður lífsmáti? Í gegnum allan hávaðann, hvort sem er frá pottum og pönnum á Austurvelli eða frá reiðum mótmælendum á götum Aþenu fyrr í viku, sem æptu á lög- reglumennina, sem notuðu táragas á þá, að þeir ríku gætu borgað eða frá hinum óvæntu götumótmælum, sem hafa verið að breiðast út í New York og snúa ekki sízt að fjármálafyrirtækjunum á Wall Street, eða frá mótmælagöngu kennara í Madríd fyrir nokkrum dögum, er það þetta breytta hugarfar, sem er að brjótast fram. Fólk er ekki að mótmæla því að þurfa að lifa á eigin aflafé en ekki framtíð- inni. Það er að mótmæla því að taka á sig skuldbindingar sem aðrir hafa stofnað til og reyna nú að koma yfir á almúgann. Þetta grundvallaratriði, þessi þörf á breyttu hugarfari og breyttum lífsstíl í samræmi við það er lítið sem ekkert til umræðu af hálfu þeirra sem kjörnir hafa verið til að veita þjóðinni forystu. Kannski eru það þeirra meginmistök og kannski er það ein af ástæðunum fyrir því að fólk leitar aftur og aftur á Austurvöll til að mótmæla. Það er hægt að tala við fólk með ýmsum hætti. Forsetafrúin, Dorrit Moussaief, talaði við fólk með sínum hætti á þing- setningardaginn. En íslenzkir stjórn- málamenn, hvar í flokki sem þeir standa, virðast vera þeirrar skoðunar að bezt fari á því að tala sem minnst við fólk, að ekki sé nú talað um ef það safnast saman fyrir utan þinghúsið. Hrunið var ekki tímabundin uppákoma í íslenzku samfélagi. Það var harkaleg áminning um að við hefðum gengið of hratt um gleðinnar dyr. Breytt hugarfar? – Breyttur lífsstíll? Af innlendum vettvangi … Styrmir Gunnarsson styrmir@mbl.is Ó perudraugurinn (The Phantom of the Opera) er söngleikur eftir Andrew Lloyd Webber, sem byggður er á frönsku skáld- sögunni Le Fantôme de l’Opéra eftir Gaston Leroux. Söngleikurinn var frumsýndur á þessum degi fyrir 25 árum í Her Majesty’s Theatre í London í Bret- landi. Tónlistin var öll samin af Lloyd Webber og stærsti hluti textans var saminn af Charles Hart. Óperudraugurinn segir frá bitrum og brjáluðum manni sem býr í skúmaskotum og bakherbergjum gamla óperuhússins í París. Hann herjar á starfsfólkið þar til að hefna harma sinna; afmyndunar í andliti sem hann varð fyrir í leikhúsinu og neyðir hann til að lifa lífinu „bak- sviðs“ í bókstaflegri merkingu og bera grímu. Ljósið í hinu ljóta lífi hans er ung sópransöngkona í leikhúsinu, Christine Daaé, sem endurgeldur þó ekki ást hans, því til sögunnar kemur ungur og hetjulegur karlmaður, Ra- oul, sem leggur allt í sölurnar fyrir hana. Óperudraugurinn var sumsé frumfluttur í London ár- ið 1986 en fór svo vestur um haf þar sem söngleikurinn var frumsýndur tveimur árum síðar. Árið 2006 urðu kaflaskil á Broadway í New York, þá tók Óperudraug- urinn við af Cats sem sú sýning sem lengst hefur gengið þar í borg. Miðar hafa verið seldir á söngleikinn um allan heim fyrir ríflega 600 milljarða króna, sem er met. Upp- færslan í New York er sú sem best hefur gengið fjárhags- lega í sögu Broadway. Í London þá var Michael Crawford í tiltilhlutverkinu, Sarah Brightman lék Christine og Steve Barton var í hlutverki Raouls. Sýningin er enn í gangi í Her Majesty’s Theatre og var nokkuð um dýrðir á 10.000 sýningunni þann 23. október 2010 en til dæmis voru bæði Lloyd Webber og Crawford viðstaddir sýninguna. Aðeins eins sýning hefur verið lengur á fjölunum í West End, söng- leikurinn Les Misérables. Sérstök 25 ára afmælissýning var haldin í London 1. og 2. október í Royal Albert Hall. Leikarar og tónlistarfólk voru yfir 200 talsins í þessari viðhafnarsýningu og kom Lloyd Webber fram auk leikara úr upphaflegu uppfærsl- unni, þar á meðal voru Crawford og Brightman. Hvað sem veldur heillar þessi óvenjulega ástarsaga og tónlist Lloyd Webber enn fólk um heim allan og heldur sigurganga söngleiksins áfram. ingarun@mbl.is Óperu- draugurinn frumfluttur Árið 2006 tók Óperudraugurinn við af Cats sem sú sýning sem hefur verið lengst á fjölunum á Broadway. Reuters ’ Óperudraugurinn hefur unnið til fjölda verðlauna. Söngleik- urinn hefur verið settur upp í 149 borgum í 25 löndum fyrir yfir hundrað milljón áhorfendur. Gríman er einkennismerki Óperudraugsins. Á þessum degi 9. október 1986 Höfundur söngleiksins, Sir Andrew Lloyd Webber. Reuters

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.