SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 35

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 35
9. október 2011 35 M atur-inn sýningin var í fimmta skipti í Íþróttahöllinni á Ak- ureyri um sl. helgi. Um er að ræða einskonar uppskeruhátíð norðlenskra matvælaframleiðenda sem haldin er af félaginu Matur úr Eyjafirði. Það er alveg ljóst að hún er komin til að vera ef marka má fjöldann af fólki sem kom á sýninguna og tók þátt í henni á einn eða annan hátt. Við hjónin getum ekki annað en verið stolt af að sjá hversu stór sýningin var og vel heppnuð, en við mættum að sjálfsögðu norður yfir heiðar til að vera með, margir nefndu við okkur að sýningin væri á góðri leið með að verða það sem við töluðum um þegar við héldum hana fyrst árið 2003. Þá sá ég fyrir mér viðburð sem væri áberandi um allan bæ, með þátttöku veitinga- manna, matvælaframleiðenda, verslana og bæjarbúa allra. Ég verð að við- urkenna að ég hafði smááhyggjur af að sýningin yrði að engu eftir að við fjölskyldan fluttum á höfuðborgarsvæðið. Á sýningunni í ár var til dæmis grenvískur harðfiskur og hákarl, saltfiskur og saltfiskafurðir frá Hauganesi, bakkelsi, kaffi og ýmsar kjötvörur frá Ak- ureyri, margvíslegar mjólkurafurðir, grænmeti úr Fnjóskadal, birkisafar og síróp úr Hallormsstaðarskógi og ýmiss konar sultur og góðgæti úr Svarf- aðardal eins ótrúlegt og það nú hljómar, en þaðan eru einmitt Bakkabræður og Júlli fiskidagur, bjór frá Árskógssandi og nýr bjór úr Skagafirði. Eins og oft áður mættu þátttakendur í Matarkistu Skagafjarðar með ýmislegt góð- gæti, sem og vinir okkar úr Þingeyska matarbúrinu, samtökin Beint frá býli voru með bás þar sem meðal annars var lífrænt ræktað bygg og aðrar vörur austan af Héraði, þar voru einnig mömmulegar sultur og hlaup úr íslenskum berjum og rabarbara og reyktur ostur sem ég féll alveg fyrir. Nautsskrokkur var grillaður í einn sólarhring sem vakti mikla lukku hjá gestum sýning- arinnar. Á sýningunni voru einnig húðvörur unnar úr íslenskum jurtum og text- ílvörur með laufabrauðsþema. Einnig voru matreiðslukeppnir sem hefð var komin fyrir á sínum stað þar sem til dæmis þjóðþekktir einstaklingar, mat- reiðslumenn, bakarar og mataráhugamenn tóku þátt. Veitingastaðir í bænum voru með sérstakan matseðil í tilefni af hátíðinni þar sem þeir leituðust við að matreiða hráefni af svæðinu. Mig langar að hrósa þeim sem að sýningunni standa og tóku þátt fyrir frá- bært verk og hvetja þá áfram til dáða að gera enn betur eftir tvö ár. Að lok- um langar mig að vitna í bæjarstjórann á Akureyri sem sagði í opnunarræðu sýningarinnar að matvælaframleiðsla og ferðaþjónusta væri mjög mikilvæg fyrir samfélagið og atvinnulífið á svæðinu, bæjarstjórinn væri til í að leggja mikið á sig til að styðja við þessar greinar, vil ég þá ljúka þessum pistli með að benda honum og bæjarstjórninni á að þau ættu kannski að styðja betur við þessa sýningu og félagið Matur úr Eyjafirði. Uppskeruhátíð í Eyjafirði Matur Friðrik V Arnrún Magnúsdóttir og Friðrik V á bás Norðlenska. Til hægri er Þórarinn Ingi Pét- ursson bóndi á Grýtubakka 1, áður í Laufási. Morgunblaðið/Skapti Hallgrímsson bótar með örfáar ær. Þrír eru með holda- naut, einhverjir með hænur, nokkrir með hesta og einn með geitur. Að jafnaði sækja um 40 manns atvinnu út fyrir sveitarfélagið. Um 700 sumarhús eru í sveitarfélaginu. Félagsstarf stendur í blóma í Kjósinni og þar er starfandi fjöldi félaga eins og veiðifélag, kvenfélag, bún- aðarfélag, hestamannafélag og sauð- fjárræktarfélag, svo nokkur séu nefnd. Í nýuppgerðu aðsetri sveitarstjórnar í Ás- garði er bókasafn hreppsins og fundaað- staða og þar hefur Kjósarstofa aðsetur. Kjósarhreppur veitti stofnframlag til Kjósarstofu sem er tilraunaverkefni en Ólafur segir starfsemina hafa fallið í frjó- an jarðveg. Haldin var vegleg opn- unarhátíð í Ásgarði og Ólaskógi þann 25. júní sem tókst vel og var sótt af um 70 manns. Oddviti Kjósarhrepps, Guð- mundur Davíðsson, flutti ávarp og opn- aði Kjósarstofu formlega. Opnuð var sölubúð með handverki og bókum í um- boðssölu og sýning um SÓL í Hvalfirði ásamt borða með þjónustuupplýsingum aðila í Kjós, líkt og eru í bæklingunum Kjósin heill heimur og Kátt í Kjósinni. Stríðsminjar úr Samansafninu eru einnig á sýningunni til að minna á hernámssög- una. Meðal viðburða sem standa fyrir dyrum eru jólamarkaður á aðventunni og ljósmyndasýning sem sprottin er upp úr námskeiði sem Ragnar Th. Sigurðsson stóð fyrir í sumar. „Það hefur mikill tími farið í kynningu á stofunni en vel hefur tekist til með námskeið og bókakynningar, svo sem í sambandi við 25 gönguleiðir á Hvalfjarð- arsvæðinu. Við hugsum starfsemina bæði inn og út á við og leggjum áherslu á að vera í samstarfi við aðila í ferðaþjónustu. Impra hefur lagt okkur lið og þegar er orðinn til vísir að klasasamstarfi, þar sem þróa á matvæli og/eða handverk sem er eyrnamerkt Kjósinni,“ segir Ólafur. Með tilkomu Hvalfjarðarganganna dróst umferð um Kjósina saman en á móti kemur að ferðaþjónustunni hefur vaxið fiskur um hrygg. „Fólk sér fram á alls konar tækifæri, svo sem vinnustaða- ferðir og þjónustu við sumarbústaða- eigendur en sumarbústöðum fjölgar jafnt og þétt í sveitinni. Sóknarfærin eru ótví- ræð hér í Kjósinni.“ Sigurbjörn Hjaltason bóndi á Kiðafelli með forrétt kvöldsins, „nautnabitann“. Morgunblaðið/Kristinn Lisa Sascha Boije af Gennaes og Þórarinn Jónsson í versluninni Matarbúrinu á Hálsi. Grjótkrabbi, nýjasti „landneminn“ í Kjós.

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.