SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 38

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 38
38 9. október 2011 N ýr maður tók við starfi forstjóra Eimskipafélags Íslands síðsumars 1979. Óttarr Möller sem staðið hafði í brúnni um langt árabil steig til hliðar og Hörður Sigurgestsson tók við stjórn félagsins, sem hann sinnti allt fram undir aldamót. Var sem forstjóri einn helsti áhrifamaður íslensks við- skiptalífs og raunar í þjóðfélaginu öllu, þar sem hann veitti forstöðu fyrirtæki í fremstu röð enda tóku áherslur í starfsemi þess mið af því sem gerist í alþjóðlegu viðskiptaumhverfi „Við vinnum nú að stefnumótun til næstu ára. Ég geri ráð fyrir að þar verði megináherslan lögð á aukna gámaflutninga og endurnýjun skipakostsins. Þar hefur Eimskip verið brautryðjandi, en nú ber nauðsyn til að eldri skipin verði endurnýjuð og hagkvæmari skip fengin í þeirra stað,“ sagði Hörður í viðtali við Frjálsa verslun haustið 1979 um það leyti sem hann tók við starfinu. Sagði hann sömuleiðis að endurskoða þyrfti skiparekstur félagsins – en á þessum tíma var félagið með 24 skip í útgerð sem árið 1978 sinntu 55% almennra farmflutninga til og frá landinu. Forstjóraskipti hjá Eimskip 1979. Hörður Sigurgestsson tók við af Óttari Möller. Nýr maður og nýir tímar. Morgunblaðið/Ólafur K. Magnússon Myndasafnið 1979 Eimskip er óskabarnið L eikarinn Ashton Kutcher er aldeilis búinn að vera í sviðsljósinu að undanförnu en orð- rómur um að hann hafi haldið framhjá eig- inkonunni, leikkonunni Demi Moore, hafa tröll- riðið öllu í slúðurmiðlunum. Leikarinn Christopher Ashton Kutcher fæddist hinn 7. febrúar árið 1978 og er því 33 ára. Nokkur aldursmunur er því á honum og eiginkonunni en hún er 48 ára gömul. Þau gengu í hjónaband árið 2005. Moore var áður gift harðjaxlinum Bruce Willis og eiga þau þrjú börn saman, svo Kutcher er stjúpfaðir. Meint framhjáhald Kutcher er sagt hafa farið fram á hótelsvítu í San Diego með hinni 23 ára Söru Leal. Hann er sagður hafa skemmt sér með fjórum ungum stúlkum í heitum potti á svölum svítunnar og eftir það sængaði hann hjá Leal. Því er ekki að furða að tal um skilnað fari hátt. Starfaði sem fyrirsæta Kutcher starfaði í nokkurn tíma sem fyrirsæta áður en hann varð þekktur í sjónvarpi. Hann lenti í öðru sæti í alþjóðlegri fyrirsætukeppni árið 1997 en sigurvegari keppninnar er líka orðinn þekktur í Hollywood, Josh Duhamel. Eftir það sat hann fyrir hjá m.a. Calvin Klein. Hann er hinsvegar þekktastur fyrir hlutverk sitt sem Michael Kelso í hinum vinsælu þáttum That ’70s Show. Hann naut líka mikilla vinsælda í sjónvarpshrekkjaþættinum Punk’d þar sem hann spann flókna blekkingarvefi á kostnað hrekklausra Holly- wood-búa. Grínarinn Kutcher hefur nú tekið við mögulega stærsta hlutverki sínu hingað til en hann tók við af vandræðagemsanum Charlie Sheen í hinum of- urvinsæla gamanþætti Two and a Half Men. Þátturinn hefur aldrei verið Leikarinn Ashton Kutcher er í sviðsljós- inu um þessar mundir en fréttir af meintu framhjáhaldi fara hátt. Svo var hann líka að taka við af Charlie Sheen í hin- um vinsælu gamanþáttum Two and a Half Men. Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is Leikarinn er vinsæll hjá unglingunum en hérna tekur hann við verð- launum á Teen Choice- verðlaunahátíðinni í Kaliforníu í ágúst. Reuters Gamanið kárnar hjá Kutcher Frægð og furður

x

SunnudagsMogginn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.