SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Síða 6
6 9. október 2011
Kofi A. Annan er fæddur 8. apríl 1938 í Gana. Hann
er tvíburi og er mikil virðing borin fyrir því í menningu
Gana. Annan er af aðalsætt en báðir afar hans og
frændur voru ættarhöfðingjar. Á árunum 1954-1957
gekk Annan í heimavistarskóla fyrir meþódista og
þar kvaðst hann hafa lært það „að þjáning einhvers
staðar varðar fólk alls staðar“. Þessa setningu hefur
hann lengi haft að leiðarljósi. Árið 1984 giftist hann
núverandi eiginkonu sinni Nane Maria Lagergren,
saman eiga þau eitt barn og af fyrra hjónabandi á
Annan tvö börn. Annan lauk prófi í hagfræði árið
1961 og meistaragráðu í raunvísindum árið 1972.
Annan var sjöundi aðalritari Sameinuðu þjóðanna
og gegndi því hlutverki frá 1. janúar 1997 til 31. des-
ember 2006. Kofi Annan og Sameinuðu þjóðirnar
fengu sameiginlega friðarverðlaun Nóbels árið 2001
fyrir framlag sitt í baráttunni gegn alnæmi.
Annan hefur verið ötull talsmaður hvers kyns
mannréttinda bæði á meðan hann sinnti starfi að-
alritara og eins að því loknu. Hann berst fyrir breytt-
um stefnumálum til að mæta þörfum hinna fátæku
og þeirra sem minna mega sín og þá sérstaklega í
Afríku. Eins hefur hann nýtt reynslu sína til að miðla
málum og útkljá ýmiss konar ágreining.
Þjáning einhvers staðar varðar fólk alls staðar
Kofi Annan segir mikilvægt að byrja að byggja upp
traust fyrir sameiginlega framtíð okkar.
Morgunblaðið/Kristinn
Í
tilefni af aldarafmæli
Háskóla Íslands var efnt
til hátíðarmálþings
föstudaginn 7. september
í Háskólabíói þar sem Kofi
Annan, fyrrverandi fram-
kvæmdastjóri Sameinuðu
þjóðanna var heiðursgestur og
fyrirlesari. Guðrún Nordal,
forstöðumaður Stofnunar Árna
Magnússonar var fundarstjóri
málþingsins og sagði áður en
Kofi Annan steig á svið að
hann væri maður sem vart
þyrfti að kynna. Kofi Annan
brosti í kampinn þegar hann
steig í pontu þar sem hann
sagðist ekki endilega vera ein-
staklingur sem ekki þyrfti að
kynna. Hann sagði áhorf-
endum sögu af því að þegar
hann hætti hjá Sameinuðu
þjóðunum ákvað hann að taka
sér örlitla hvíld og fara til Ítal-
íu. Þar hugðist hann dvelja án
nokkurs áreitis í þrjá mánuði.
Eftir aðeins sex vikur tók hon-
um að leiðast og hann fékk sér
því göngutúr í þorpið til að ná
sér í dagblað. Tveir menn
stóðu út í horni og horfðu á
hann. „Ég held að þeir hafi
þekkt okkur,“ sagði þá Annan
við konu sína og varð svekkt-
ur yfir því að upp hefði komist
hvar hann væri þar sem tölu-
vert væri í að fríinu væri lok-
ið. Annar maðurinn færði sig
nær Annan, rétti honum
höndina og sagði Morgan
Freeman. Annan varð mjög
ánægður með þetta og und-
irritaði eiginhandaráritunina
Morgan Freeman, afhenti
hamingjusömum manninum
og gat enn dulið fyrir fjöl-
miðlum um dvalarstað sinn.
Gestir Hátíðarmálþingsins
skelltu upp úr og Annan hafði
með þessari upphafssögu sinni
náð athygli hverrar einustu
sálu sem á hann hlýddi.
Að gamansögunni lokinni
fór Annan beint í alvarlegri
málefni. Annan skýrði frá því
að hann telur að fjár-
málakreppan sé samfélagslegt
vandamál, í kjölfar hennar hafi
almenningur misst alla trú og
allt sitt traust á stjórn-
málamönnum og fyrirrenn-
urum alþjóðlegra stofnana.
Þetta traust þurfi að end-
urheimta og byggja upp. Ann-
an fjallaði um nauðsyn þess að
stjórnvöld kæmu jafnvægi á
milli þeirra sem sköpuðu tekj-
urnar og þeirra sem minna
mega sín og að bil milli þeirra
ríku og fátæku sé brúað. Hann
telur það hættulega þróun að
atvinnuleysi sé að flytjast upp
með kynslóðum en hann sagði
það kaldhæðnislegt að unga
fólkið sem býr yfir þeirri
tæknikunnáttu sem við þurf-
um á að halda er fyrst látið
fara í uppsögnum.
Mikilvægi þess að mennirnir
læri að lifa með náttúrunni er
Annan hugleikið en hann
ítrekaði að hugsun mannsins
og lifnaðarhættir þurfi að
verða grænni til að unga fókið
eigi einhverja framtíð. Hann
sagði áhrif slíkra breytinga
gætu verið eins mikil og iðn-
byltingin á sínum tíma. „Við
getum ekki haldið áfram að
lifa eins og enginn sé morg-
undagurinn,“ sagði Annan.
Í lok ræðu sinnar sagði Ann-
an: „Ég vanmet ekki hversu
stór og yfirgripsmikil verkefni
eru fyrir höndum en við verð-
um að koma á trausti fyrir
sameiginlega framtíð okkar.
Við sjáum nú þegar að unga
fólkið stígur fram og hefur
umtalsverð áhrif. Unga fólkið
veit að það mun erfa heiminn
og ákvarðanirnar í dag munu
hafa meiri áhrif á það en aðra.
Ég segi því: vertu breytingin
sem þú vilt sjá. Ekki standa
hjá og horfa á. Ábyrgðin á
þátttöku er þín. Unga fólkið
spyr, hvað á ég að gera? Ég
svara: það byrjar í þínu eigin
samfélagi, á þínu heimili. Ef
þú sérð eitthvað rangt, gerðu
þá eitthvað í því og leiðréttu
það. Ef allir leggja sitt af
mörkum verður framlagið ansi
stórt. Svo farið út og verið hin
nauðsynlega breyting.“
Vertu
breytingin
Kofi Annan flutti
ræðu á hátíðar-
málþingi Háskóla
Íslands á 100 ára
afmæli skólans
Kofi Annan ræðir við Ólaf Ragnar Grímsson, forseta og Kristínu Ingólfsdóttur, rektor.
Morgunblaðið/Kristinn
Vikuspegill
Signý Gunnarsdóttir
signý@mbl.is
Það var viðhafnarmikil
dagskrá í Háskólabíói
föstudaginn 7. sept-
ember í tilefni af ald-
arafmæli Háskóla Ís-
lands.
Að lokinni setningu
Kristínar Ingólfsdóttur,
rektors, steig aðalfyr-
irlesari málþingsins á
svið, Kofi Annan. Fyr-
irlesarar voru að auki
Carol Carmichael, Frey-
steinn Sigmundsson og
Ole Petter Ottersen. Að
lokum tók Ólafur Ragnar
Grímsson, forseti Ís-
lands, saman helstu
niðurstöður málþings-
ins.
100 ára
afmæli