SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 13
9. október 2011 13
M
ikið var um dýrðir á tískuvikunni í París er þar sýndi
m.a. franska tískuhúsið Givenchy fatalínu sína fyrir
komandi vor og sumar. Listrænn stjórnandi tískuhúss-
ins, hinn ítalski Riccardo Tisci, var ekki mynsturóður
eins og svo margir aðrir hönnuðir um þessar mundir. Alklæðnaðirnir
voru yfirleitt í einum lit eða að minnsta kosti sama tóninum, eins og
sést á meðfylgjandi myndum. Hann sagðist í samtali við Style.com
hafa orðið fyrir áhrifum af brimbrettafólki og haf-
meyjum við hönnun fatalínunnar. Hafmeyju-
áhrifin endurspeglast ef til vill í pífunum sem
einkenndu fatnaðinn og brimbrettaáhrifin í
stuttbuxunum og efnanotkun en eitthvað
af fatnaðinum var úr neopreni.
Givenchy hefur verið á góðri siglingu að
undanförnu og notið vinsælda hjá
stjörnunum. Á meðal þeirra sem
mættu og sátu í fremstu röð voru leik-
konurnar Liv Tyler ogt Juliette Bin-
oche, fyrirsætan Naomi Campbell og
tónlistarfólkið Kanye West og
Ciara. Til viðbótar voru óvenju-
lega margar þekktar fyrir-
sætur í sýningu hans af „eldri
kynslóðinni“ eins og Natalia
Vodianova, Karolina Kurkova
og Gisele Bündchen, sumsé
hann var ekki með flokk af fjór-
tán ára sviplausum nýliðum í
fyrirsætuheiminum.
Franska tískuhúsið Givenchy sýndi
fatalínu komandi vors og sumars
fyrir framan stjörnufjöld á tískuvikunni
í París.
Inga Rún Sigurðardóttir ingarun@mbl.is
Brasilíska fyr-
irsætan Gisele
Bündchen var
mætt til leiks.
Hafmeyjar á
brimbrettum
Eins og hafmeyja á landi. Góður kjóll yfir bikiníið á ströndinni. Glansandi pallíetturnar minna á hreistur.
Reuters
Jakki með sítt að aftan.
Laxableikur litur kallast á við sjávarþemað.
Dásamleg
dragt.
Einstaklega skemmtilegar pífur.
’
Hönn-
uðurinn
Riccardo
Tisci var ekki
mynsturóður
eins og svo
margir aðrir
um þessar
mundir.