SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 29

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Page 29
9. október 2011 29 Námsmenn í Aþenu hrópa slagorð gegn fyrirhuguðum aðgerðum og niðurskurði í menntamálum. Erfiðir tímar eru framundan á Grikklandi. Mótmælendur í Aþenu settu í sumar mynd í gálga af Georgios Papandreou forsætisráðherra þar sem hann var málaður eins og trúður. Ólguna á Grikklandi þessa dagana má ekki síst rekja til þess að aðstoð Evrópusambandsins er bundin skilyrðum um umbætur og niðurskurð. Opinbera þjónustu á að draga sam- an um fimmtung og losa um höft á markaði til að örva hag- vöxt. Á Grikklandi er fjöldi starfa bundinn leyfi. „Kleista epagel- mata“ heitir samfélag hinna lokuðu starfsgreina og félagar í þeim hafa verið hvað atkvæðamestir í mótmælum í landinu, enda eru forréttindi þeirra í húfi. Í þessum hópi eru lögfræð- ingar, endurkoðendur, arkitektar, leigubílstjórar og vörubíl- stjórar. Í Grikklandi eru 33.500 flutningabílstjóraleyfi. Þau voru veitt í upphafi áttunda áratugar tuttugustu aldar þegar her- foringjastjórnin var við völd. Nýjum leyfum hefur ekki verið bætt við þótt grískt efnahagslíf sé nú margfalt umfangsmeira en þá. Vörubílstjóraleyfi eru því mjög eftirsótt á Grikklandi. Þau eru ávísun á áhyggjulaust ævikvöld eða geta tryggt atvinnu kynslóð fram af kynslóð á tímum óöryggis á vinnumarkaði. Gangverð leyfis til að keyra stóran flutningabíl var komið upp í 350 þúsund evrur. Nú virðast dagar þessa fyrirkomulags vera taldir. Samkvæmt skuldaáætluninni, sem Evrópusambandið og Alþjóðagjald- eyrissjóðurinn hafa sett fram, á hver sem er að geta fengið leyfi til að keyra flutningabíl í síðasta lagi ár- ið 2014. Leyfið til að keyra flutningabíl er nú komið niður í 12.000 til 15.000 evrur. Mótmæli vörubílstjóra hafa verið kröftug. Þeir hafa nánast getað lamað flutninga í landinu. Herinn hefur þurft að taka að sér bensínflutninga. Afleiðingarnar hafa blasað við umheiminum á myndum af tómum hillum og örvingluðum ferðalöngum. Reiði vörubílstjóranna

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.