SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 43

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 43
9. október 2011 43 um pólitíska ádeilu. Hér eru tímar að breytast, SÚM-arar koma fram og aðrir miðlar en málverkið komast í öndvegi. Hugmyndalistin nær flugi og fjallað er myndarlega um verk listamanna sem kenndir hafa verið við Amsterdam, þeirra Kristjáns og Sigurðar Guðmunds- sona og Hreins Friðfinnssonar. Lokabindið og það þykkasta, Nýtt málverk, gjörningar og innsetningar, er um síðustu þrjá áratugi. Fjallað er um „endurkomu málverksins“ á árunum 1980 til 2000, en einnig vakningu í högg- myndalist, gjörninga, tímatengd verk og myndbandalist, venslalist, sjónvarps- miðilinn, innsetningar og hugmyndalist. Þá er fjallað um nokkur helstu sýn- ingarými á síðustu áratugum. Verk fyrir almenning Í heildina litið má segja að listasagan sé afskaplega vel skrifuð og unnin af alúð. Þetta er verk skrifað fyrir almenning og það hefur tekist án þess að slá af fagleg- um og fræðilegum kröfum. Það er verið að fræða og setja list alls þessa fólks í samhengi; í samhengi við samtíma þess og félagslegar hræringar, innanlands sem utan. Höfundar hafa vissulega á mörgum rannsóknum að byggja, og á fyrr- nefndum bókum Björns Th. auk bóka sem hafa verið skrifaðar um einstaka listamenn. Ánægjulegt er að sjá þegar höfundarnir taka á fyrri söguskýringum, eins og í umfjöllun um Finn Jónsson, en Björn Th., sem var áhrifamikill kennari, leit svo á að þegar Finnur snéri heim til Íslands árið 1925, eftir að hafa málað merkileg geómetrísk verk sín í Þýska- landi, og fór að mála fígúratífar myndir af sjómönnum og á hálendinu, hefði hann snúið sér að þjóðlegri myndlist – og það var ekki jákvæð umsögn. Í Listasögunni nýju eru þessi verk Finns sett í samhengi við nýtt, þýskt raunsæi, og landslagsmyndir hans túlk- aðar sem „tilbrigði við tilvistarlega ein- angrun listamannsins í mannlegu sam- félagi.“ Eins og vera ber prýðir urmull mynd- verka listasöguna, enda er verið að fjalla um þau og lesandinn vill sjá verkin. Yf- irlitt eru myndverkin vel valin, þótt spyrja megi hvort leitað sé um of í geymslur opinberu listasafnanna, en slíkt val í opinbera listasögu þjónar því hlut- verki um leið að staðfesta að söfnin hafi valið „réttu“ verkin þegar þau voru keypt. Þeir sem vel þekkja til umfjöll- unarefnisins hefðu gjarnan viljað sjá meira af myndverkum sem ekki eru „góðkunningjar“ listunnenda. Saga í fjórum, yfirlit í fimmta Eftir að hafa lesið öll bindin, og notið lestrarins, kýs ég að líta á fyrstu fjögur sem „sögu“ en það fimmta sem „yfirlit“ yfir myndlistarsköpun síðustu ára. Og í raun undrast ég þá ákvörðun ritstjóra og höfunda að fikra sig fram yfir árið 2000 í umfjölluninni; því nær sem komið er núinu verður erfiðara að setja hlutina í samhengi. Enda kemur ekki á óvart að það er í fimmta bindinu sem helstu veik- leikar verksins koma í ljós. Nákvæmnin er svo mikil í þessu viða- mikla verki, að reynt hefur verið að tína fram alla helstu fulltrúa þeirra liststefna og stílbrigða sem rætt er um. En þar sem nákvæmnin er svo mikil verður fjarvera þeirra sem skildir eru undan eða „gleym- ast“ í fyrstu fjórum bindunum, enn meira áberandi en ella. Sem dæmi má nefna að ekkert verk er birt eftir Arnar Herbertsson, sem þó er fjallað þrisvar sinnum um í fjórða bindinu. Þá vekur fjarvera Níelsar Hafstein úr þessari sögu athygli, og fleiri nöfn mætti nefna. Í fimmta bindinu er allnokkrum sleppt sem búast hefði mátt við að sjá nefnda þar, á meðan öðrum er gefið vægi sem kemur á óvart. Til að mynda eru aðeins birt tvö verk eftir Georg Guðna og ekkert getið um þau áhrif sem hann hefur haft með nýrri sýn sinni á náttúruna, og eitt verk er birt eftir Eggert Pétursson. Engu að síður er ánægjulegt hvernig reynt hefur verið að ná utan um allar hræringar og stefnur – nema ljósmynda- miðilinn. Ljósmyndaverk eru birt eftir nokkra hugmyndalistamenn, sem not- uðu ljósmyndir til að skrá uppákomur, en engin eftir listamenn sem hafa unnið út frá forsendum miðilsins. Þótt getið sé um Sigfús Eymundsson, Ólaf Magnússon, Vigfús Sigurgeirsson og Jón Kaldal í fyrstu bindunum er ekki nýtt tækifæri til að birta sýnishorn af verkum þeirra í samræðu við aðra list þess tíma og þá er ljósmyndin einn miðla hunsaður í fimmta bindinu. Ekki er hægt að líta á það öðruvísi en sem aðfinnsluverðan skalla á frásögninni. Glæsilegur prentgripur Mikil vinna hefur verið að ljósmynda nær öll verkin sérstaklega fyrir útgáfuna, eða eins og því var við komið. Þar hefur tek- ist glæsilega til og er prentvinnslan öll aðstandendum til mikils sóma. Bækurnar eru stílhreinar í hönnun og sitja letur og myndir vel á síðunum. Það kemur þó á óvart að kosið hafi verið að fræsa bæk- urnar í kjölinn og líma, í stað þess að binda þær eins og vaninn er með stór- virki um myndlist. Þá opnast bækurnar betur og unnt er að binda þær aftur. Skyldueign Þrátt fyrir fyrrnefndar aðfinnslur ætti Ís- lensk listasaga í raun að vera skyldueign á hverju heimili – þótt erfitt sé að gera slíka kröfu þegar svo dýrt verk á í hlut. Hér eru komnar bækur sem mikil þörf hefur verið á; viðamikið og vandað verk, skrifað fyrir almenning, og ætti að mennta og fræða landsmenn, sem hafa upp til hópa furðulega litla þekkingu og takmarkaðan skilning á því mikilvæga listformi sem myndlistin er. Listformi þar sem bestu listamennirnir eru á hverj- um tíma að bregðast við samtíma sínum, og eru um leið í persónulegri samræðu við alþjóðlega strauma og stefnur, en sitja ekki kyrrir í öryggi hins liðna. Einar Falur Ingólfsson „Morgunn á miðinu“, olíumálverk eftir Finn Jónsson (1892-1993) frá árinu 1927. Í Listasögunni eru landslags- og sjávarmyndir Finns túlkaðar á nýjan hátt, en hann hóf ferilinn sem ab- straktmálari. Finnur varð fyrstur hér á landi til að mála sjómennsku og er sagt að í verkum sem þessu felist mörg einkenni nýs, þýsks raunsæis. Þau séu áminningar um hverfulleik lífsins. ’ Viðamikið og vandað verk, skrifað fyrir al- menning, og ætti að mennta og fræða lands- menn, sem hafa upp til hópa furðulega litla þekk- ingu … á því mikilvæga listformi sem myndlistin er.

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.