SunnudagsMogginn

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Saqqummersitaq pingaarneq:

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 45

SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Qupperneq 45
9. október 2011 45 Lesbók O n Reading“ nefnist lítil bók André Ker- tész, sem kom fyrst út á fæðingarári mínu 1971 – fyrir alltof löngu síðan. Þar má finna fjöl- breytilegt og snoturt samansafn ljósmynda Kerész af fólki að lesa bækur, myndirnar eru teknar á árunum 1915 til 1970 af fólki af öllum stigum og á öllum aldri. Fyrstu myndirnar eru frá upphafi ljósmyndaferilsins heima í Ungverjalandi, en síðan bætast við myndir frá New York og París, þar sem Kertész bjó síðar, og frá ferðalögum um heiminn. Þegar ljósmyndirnar eru skoðaðar er nánast eins og mað- ur sé að stelast til að gægjast, því allar eiga þær sammerkt að fólkið er ekki meðvitað um ljós- myndarann og augnablikin eru afar persónuleg – látbragðið ber með sér að hugurinn er önnum kafinn að skapa heim úr orð- unum á blaðsíðunum og hjartað slær með sögupersónunum. Þetta er nánast ástleitin stund, lesandinn og bókin. – Og ljósmyndari á gægjum. Einar Falur Ingólfsson hefur einnig ljósmyndað bækur og raunar heilu bókahillurnar á heimilum valinna rithöfunda. Fátt þykir mér skemmtilegra en að „njósna“ um bókahillur hjá fólki sem ég heimsæki. Enda er það gluggi í sálarlífið. Ætli það sé ekki sama gægjuþörfin og hjá Kertész! Það er ekki sama hvernig bókum er raðað í hillur og enn síður hvaða bókum. Guð forði því að þær týnist í óreiðunni. „Ég vil nú hafa mínar konur sjálfur“ nefnist ævisaga Ólafs frá Oddhóli. Mér er líkt farið, ég vil raða mínum bókum sjálfur. Og víst er svo um fleiri, ef marka má sýninguna í hátíð- arsalnum á bókastefnunni í Frankfurt, þar sem ljósmyndir af bókaskápum á íslenskum heimilum munu hanga uppi. Það svalar gægjuþörf margra. Bækur og gægju- þörf ’ Látbragðið ber með sér að hugurinn er önnum kafinn að skapa heim úr orð- unum á blaðsíðunum og hjartað slær með sögupersónunum. Orðanna hljóðan Pétur Blöndal pebl@mbl.is Nýjasta skáldverk Bjarna Bjarnason býr vangaveltum um hvað það er að vera ærleg manneskja athyglisverðan bún- ing. Söguhetjan, Starkaður, er úthrópaður útrásarvíkingur sem þráir að bæta mannorð sitt, en eins og þeirra manna er siður fer hann þá einu leið sem hann skilur og kaupir sér mannorð. Í gang fer svo ótrúleg atburðarás sem dansar á mörkum vís- indaskáldsögu og James Bond- myndar þar sem Starkaði er smám saman breytt í annan mann, skáldið Almar sem þráir það heitast að hverfa, öfugt við Starkað sem vill fyrir alla muni komast inn í hringiðu sam- félagsins á nýjan leik. Í gegnum allt þetta ferli fléttar Bjarni pæl- ingum um hvað það sé sem geri okkur að siðlegum verum, jöfn- um höndum í gegnum samtöl og hugsanir Starkaðar og Almars. Bókin hrekkur ekki almennilega í gang að því leytinu til fyrr en hún er rúmlega hálfnuð og Bjarna eru nokkuð mislagðar hendur í að koma þessum hugs- unum sínum á framfæri. Stund- um nær hann að hræra hressi- lega upp í manni með vel til fundnum líkingum og innsæi en á köflum er hann helst til tyrf- inn og textinn rennur þá stíf- lega, eins og um afmarkaðar djúpspekilegar samræður tveggja heimspekinga á kaffi- húsi sé um að ræða. Bjarni á það til að vera launfyndinn og læðir að skemmtilegum athugasemd- um eins og þegar Starkaður rifj- ar upp að þrátt fyrir ríkidæmi hafi hann samt saknað snert- ingar. Lausnin: „Ég fór að sækja í nuddið … Ég efast ekki um að ég sé nuddaðasti maður Íslands- sögunnar.“ Plottið er vissulega hugvitssamlegt, býður upp á mikil ævintýri en fer stundum fram úr sér í fáránlegheitunum. Bókina einkennir sígandi lukka og á síðustu blaðsíðunum er Bjarni bestur; þar kveður við fallegan og áreynslulausan tón og hann nær að hleypa upp smá gæsahúð hjá lesandanum á lokasprettinum. Sjálfsflóttinn mikli BÆKUR Mannorð bbbnn Eftir Bjarna Bjarnason. Uppheimar 2011. 239 bls. Bjarni Bjarnason rithöfundur Arnar Eggert Thoroddsen LISTASAFN ÍSLANDS Söfn • Setur • Sýningar ÞÁ OG NÚ 22.9.-31.12. 2011 SUNNUDAGSLEIÐSÖGN kl. 14 í fylgd Halldórs Björns Runólfssonar safnstjóra. HÖFUNDAKYNNING, miðvikudaginn 12. okt. kl. 12.10 - Kynning á 3. bindi Íslenskrar listasögu, Hanna Guðlaug Guðmundsdóttir listfræðingur og Jón Proppé listheimspekingur SAFNBÚÐ Listaverkabækur, kort, plaköt, íslenskir listmunir og gjafavara. SÚPUBARINN, 2. hæð Fríkirkjuvegi 7, 101 Reykjavík, sími 515 9600, OPIÐ daglega kl. 11-17, lokað mánudaga. Allir velkomnir! www.listasafn.is ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ Þúsund ár - fjölbreytt verk úr safneign Listasafns Íslands frá 19. öld til nútímans. Fyrsti áfangi nýrrar grunnsýningar um þróun íslenskrar myndlistar. „Óskabarn – Æskan og Jón Sigurðsson“ Sýning um æsku og lífsstarf þjóðhetjunnar, undirbúin í samvinnu við Afmælisnefnd Jóns Sigurðssonar. Sýn- ingin höfðar sérstaklega til barna og ungs fólks á skólaaldri. Áhugaverður viðburður fyrir alla fjölskylduna. Handritin – Saga þeirra og hlutverk um aldir. ÞJÓÐMENNINGARHÚSIÐ, Hverfisgötu 15, Reykjavík Opið daglega kl. 11.00-17.00. www.thjodmenning.is Listasafn Reykjanesbæjar Dúkka. Valgerður Guðlaugsdóttir. 1. sept. – 16. okt. Óvættir og aðrar vættir. Grafík. 1. sept.- 16. okt. Byggðasafn Reykjanesbæjar Bátasafn Gríms Karlssonar Opið virka daga 12.00-17.00 helgar 13.00-17.00 Aðgangur ókeypis reykjanesbaer.is/listasafn ÞJÓÐMINJASAFN ÍSLANDS Síðasta sýningarhelgi: Ásfjall - Ljósmyndir Péturs Thomsen Leiðsögn um sýninguna sunnudaginn 9. október kl. 14:00 Þetta er allt sama tóbakið! Kurt Dejmo: Ljósmyndir úr Íslandsheimsókn 1955 Ljósmyndir Emils Edgrens Þjóð verður til – Menning og samfélag í 1200 ár Guðvelkomnir góðir vinir! Útskorin íslensk horn Útskornir kistlar Glæsileg safnbúð og Kaffitár Þjóðminjasafn Íslands, Suðurgötu 41, s. 530 2200, www.thjodminjasafn.is, thjodminjasafn@thjodminjasafn.is Opið þriðjudaga-sunnudaga kl. 11-17. Lokað á mánudögum ALMYNSTUR Arnar Herbertsson JBK Ransu Davíð Örn Halldórsson Sunnud. 9. okt. kl. 15 Sigríður Melrós Ólafsdóttir með sýningarstjóraspjall Opið fim.-sun. Kl. 12-18 AÐGANGUR ÓKEYPIS www.listasafnarnesinga.is Hveragerði 26. ágúst – 23. október Í bili Bryndís Snæbjörnsdóttir & Mark Wilson, Daníel Björnsson, Gretar Reynisson, Haraldur Jónsson, Hildigunnur Birgisdóttir, Hugsteypan, Ingirafn Steinarsson, Jeannette Castioni, Magnús Árnason, Olga Bergmann, Ólöf Nordal og Skyr Lee Bob Sýningarstjóri, Ólöf Gerður Sigfúsdóttir. 29. september – 23. október Yfirsýn – Sigurgeir Sigurjónsson Sunnudag 9. október kl. 15 - Listamannaspjall Sigurgeir Sigurjónsson Opið 12-17, fim. 12-21, lokað þri. www.hafnarborg.is sími 585 5790 - Aðgangur ókeypis Opið samkvæmt samkomulagi í vetur Farandsýningin Ekki snerta jörðina! Smíðað á lokadegi 2. október kl. 14-17 Sjóminjasafnið www.husid.com 17. september til 9. október 2011 Síðasta sýningarhelgi HILDUR HÁKONARDÓTTIR „þar sem ég bjó og það sem ég lifði fyrir“ Opið 13-17, nema mánudaga. Freyjugötu 41, 101 Rvk www.listasafnasi.is Aðgangur ókeypis. LISTASAFN ASÍ HLUTIRNAR OKKAR – úr safneign safnsins Fyrirlestrar laugardag 8. okt. kl. 14: Pia Holm, textílhönnuður hjá Marimekko þriðjudag 11. okt. kl. 20: Arndís Árnadóttir um Helga Hallgrímsson húsgagnaarkitekt (1911-2005) Ókeypis aðgangur á fyrirlestra safnsins Opið alla daga nema mán. kl. 12-17. Verslunin KRAUM í anddyri. Garðatorg 1, Garðabær www.honnunarsafn.is

x

SunnudagsMogginn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: SunnudagsMogginn
https://timarit.is/publication/785

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.