SunnudagsMogginn - 09.10.2011, Blaðsíða 47
9. október 2011 47
H
aldið var námskeið í ljós-
myndatækni, sem nefnist
bromoil, í Ljósmyndasafni
Reykjavíkur á dögunum.
Kanadíski ljósmyndarinn David W.
Lewis hélt námskeiðið en honum hafði
verið boðið til landsins af ljósmynd-
aranum Jónu Þorvaldsdóttur. Jóna lauk
námi frá European Institute of Photog-
raphy árið 2000 og hefur síðan þá haldið
margar sýningar hér á landi og í mörg-
um löndum Evrópu. Hún hefur sótt
fjölda námskeiða erlendis til að tileinka
sér gamaldags ljósmyndunaraðferðir,
meðal annars bromoil-aðferðina.
Ljósmynd sem listaverk
„Ég hafði sótti námskeið hjá Lewis í
Oregon fyrir 2 árum og gat talið hann á
að koma hingað til Íslands og kenna
þessa mjög svo einstöku ljósmyndaað-
ferð sem alltof fáir vita af,“ segir Jóna.
„Sjálf hef ég alltaf þurft að leita út fyrir
landsteinana til að læra gamlar og
spennandi ljósmyndunaraðferðir þar
sem handbragðið skiptir miklu máli og
hver og ein ljósmynd er einstök. Auk
þess að vinna mínar ljósmyndir í
bromoil þá reyni ég að ná fram listræn-
um áhrifum með því að ljósmynda á
stóra blaðfilmu (19 x 24 cm). Ég ber ljós-
næma vökva eins og til dæmis platinum
og palladium á hágæða bómullarpappír
og framkalla í útfjólubláu ljósi. Ég að-
hyllist svokallaðan „piktorialisma“, því
ég hef mikið álit á verkum Edwards
Steichens og Alfreds Stieglitz sem ásamt
fleiri meðlimum hinnar svokölluðu
„Photo Session“ börðust fyrir því að
staða ljósmyndunar yrði í samræmi við
fagrar listir en á sínum eigin forsendum.
Mér finnst ég vera á sama stað núna og
þeir á árunum 1880-1920 þegar þeir
vildu greina sig frá iðnvæðingunni og
litu á sig sem listamenn og unnu að því
að gera stöðu ljósmyndunar að þeirri
sömu og málverkið hafði. Mér finnst því
vera mikill munur á ljósmynd sem unn-
in er frá upphafi til enda í myrkra-
herberginu og handunnin á hágæða fi-
berpappír og ljósmynd sem prentuð er
úr góðum bleksprautuprentara. Ástæðan
fyrir því að stafræn tækni hentar mér
ekki er sú að mér finnst handbragðið
ekki skila sér á þann hátt sem ég vil.
Möguleikarnir í stafrænu tækninni eru
ekki takmarkaðri en einfaldlega öðru-
vísi. Fyrir mér er ljósmyndun ástríða og
það skiptir mig miklu máli að ljós-
myndin sé einstök. Á sýningunni minni
í Art Photos í Skipholti 5 er ég með ljós-
myndir sem unnar eru í palladium og
einnig silfurgelatin-ljósmyndir á gamlan
hágæða fiber-pappír. Sumar myndanna
eru tónaðar og handmálaðar með vatns-
litum og bleki. Ég stefni auðvitað að því
að sýna ljósmyndir á næstunni unnar
með bromoil-aðferðinni en hún krefst
mikillar vinnu og nákvæmni. Ég keypti
eina bromoil-ljósmynd af David W.
Lewis sem er núna til sýnis í Art photos.
En á námskeiðinu voru auk mín 7 frá-
bærar og hæfileikaríkar konur sem allar
eru góðir ljósmyndarar. Þær náðu góð-
um tökum á tækninni og höfum við nú
þegar stofnað með okkur vinnusmiðju
þar sem við munum koma saman reglu-
lega og vinna bromoil-myndir og
stefnum að því að fá David hingað að ári
liðnu til þess að kenna okkur enn meiri
tækni í bromoil,“ segir Jóna.
Bromoil-ljósmyndaaðferðin var fund-
in upp árið 1907 og var ein af sjaldgæf-
um aðferðum, svokölluðum „pigment
processes“. Bromoil-ljósmynd er upp-
haflega silfurgelatin-ljósmynd unnin á
sérstakan ljósnæman fiber-pappír, sem
lögð er í bleikivökva sem eyðir silf-
urmyndinni og úr verður svokallað
matrix. Því næst er myndin kölluð fram
með litho-bleki sem borið er á matrix-
inn með sérstökum bursta, borið á lag
fyrir lag.
Að ljósmynda Ísland
David W. Lewis er þekktur lista-
ljósmyndari frá Kanada og hefur einbeitt
sér að bromoil-aðferðinni og telur það
skyldu sína að miðla þessari einstöku
ljósmyndatækni áfram svo aðferðin deyi
ekki út.
Hann hefur haldið fjöldann allan af
námskeiðum og kennt víðsvegar um
heiminn. Hann vinnur nú að því að ljós-
mynda verkefni um gamlar myllur í
Norður-Ameríku. Aðspurður hvort
hann sé ekki á vitlausum stað að vera
hér á Íslandi, því hér séu svo fáar myll-
ur, segir hann námskeiðið vera að-
almarkmið sitt með verunni hér. „Ég hef
líka séð svo undurfagra staði eins og
Djúpavík og Eyri við Ingólfsfjörð sem
hefur verið virkilega gaman að ljós-
mynda,“ segir Lewis. Hann segist alls
ekki hafa hafnað stafrænu byltingunni
heldur tvinna saman gamlar og nýjar
aðferðir því hann útbýr stafrænar nega-
tívur bæði út frá filmum sem skannaðar
eru inn í tölvu eða út frá „hráfælum“.
Stafræna filman er því kontakt-prentuð
á fiber-pappírinn í myrkrarherberginu.
Hann segist hafa haft mjög gaman af því
að kenna þessum hópi hér á Íslandi.
„Það er alveg merkilegt hvað Íslend-
ingar eru alltaf tilbúnir að leggja mikið á
sig til að hjálpa manni, það hefur verið
sérstök ánægja fyrir mig og konuna
mína að vera hérna,“ segir David.
Endurnýjuðu
yfir 100 ára
gamla tækni
Listaljósmyndun. David W. Lewis er hér lengst til vinstri að leiðbeina Jónu Þorvaldsdóttur sem fékk hann til Íslands til að leiðbeina þeim með sjaldgæfa ljósmyndatækni.
Bromoil tæknin var fundin upp árið 1907. Það þarf natni til að búa til góða mynd.
Ljósmyndun er bæði iðngrein og listgrein, þótt hún
sé hérlendis frekar þekkt sem iðngrein. Námskeið
var haldið hér á landi í ljósmyndtækni sem nefnist
bromoil og mættu nokkrir listaljósmyndarar á
þetta námskeið til að kynna sér tæknina.
Texti: Börkur Gunnarsson borkur@mbl.is
Myndir: Árni Sæberg saeberg@mbl.is