Monitor - 07.04.2011, Page 7
7FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Monitor
Margir af þekktustu listamönnum landsins tóku sín
fyrstu bransaskref í Söngkeppni framhaldsskólanna
sem verður haldin á Akureyri laugardaginn 9. apríl.
Stökkpallur
hæfileikafólk
fyrir
Mynd/Golli
Stór vísbending
um framtíðina
Margrét Eir sigraði fyrir 20 árum síðan fyrir
Flensborgarskólann í Hafnarfirði með laginu Glugginn.
Hafðir þú einhverja reynslu í að koma fram
fyrir keppnina? Ég hafði verið eitthvað í
leiklist og kór og svona en árið 1991 voru ekki
jafn mörg tækifæri fyrir ungt fólk eins og í
dag. Söngskólar og karaókí voru ekkert til þá.
Varstu stressuð fyrir að stíga á svið? Ég var
mjög stressuð en það er alltaf einstaklings-
bundið hvernig stressið fer með mann og
hvernig maður nýtir það. Hjá mér kom það
út sem kraftur sem skilaði sér vel. Ekki að ég
hafi haft hugmynd um það meðan á laginu
stóð því ég var svo ofboðslega stressuð.
Hvernig var tilfinningin að sigra keppnina?
Þetta hljómar kannski klisjulega en ég
átti alls ekki von á að sigra, það hafði ekki
hvarflað að mér. Mér þótti alveg nóg að prófa
að taka þátt og mér fannst eins og þetta hafi
verið stór vísbending um hvað ég ætti að gera
í lífinu. Þetta var mikil viðurkenning og gott
tækifæri.
Ertu með einhverja skemmtilega sögu frá
keppninni? Ég hafði aldrei sungið í míkrófón
áður en ég tók þátt í keppninni en fílaði þetta
alveg rosalega vel. Fyrir mér var þessi keppni
einskonar uppljómun og ég veit ekki hvort
sigurinn hafi verið tilviljun eða einfaldlega
örlögin að verki.
Opnuðust fyrir þér margar dyr eftir sigur-
inn? Já, ekki spurning. Keppninni er alltaf
sjónvarpað og á þessum tíma var það frekar
óvenjulegt og vakti mikla athygli. Ég byrjaði í
hljómsveit skömmu síðar og komst í Hemma
Gunn sem var náttúrulega æðislegt.
Hvert er að þínu mati eftirminnilegasta at-
riðið úr keppninni? Ég man til dæmis vel eftir
því þegar Sverrir Bergmann vann, hann var
flottur. Svo man ég eftir fullt af söngvurum
sem hafa tekið þátt annað hvort í bakröddum
eða sem aðalsöngvarar eins og til dæmis
Selma Björns, Birgitta Haukdal og Magni.
MARGRÉT EIR KOMST
Í ÞÁTT HEMMA GUNN
Hafðir þú einhverja reynslu í að
koma fram fyrir keppnina? Nei,
eiginlega enga. Ég tók reyndar fyrst
þátt í undankeppninni á Króknum
þegar ég var á fyrsta árinu mínu í
framhaldsskóla. Þá hafði bróðir minn
sigrað árið áður svo ég ætlaði að taka
við titlinum. Því miður komst ég ekki
í úrslitakeppnina það árið.
Varstu stressaður fyrir að stíga á
svið? Ég var með mikinn fiðring
í maganum og mjög stressaður.
Það hjálpaði samt að hafa marga
stuðningsmenn að norðan í salnum
sem hvöttu mig og voru með svaka
læti þegar ég steig á svið.
Hvernig var tilfinningin að sigra
keppnina? Mér fannst það geðveikt
og var mjög sáttur. Ég gerði mér
ekki alveg grein fyrir hversu stórt
þetta var á sínum tíma. Við félag-
arnir vorum aðallega spenntir að fá
okkur pítsu fyrir eftir keppnina.
Ertu með einhverja skemmtilega
sögu frá keppninni? Það var mjög
fyndið að árið sem ég sigraði kom
stelpa og söng í dómarahléinu. Hún
var nýbúin að sigra Samfés, söngva-
keppni grunnskóla, og var langbest
af öllum sem höfðu komið fram um
kvöldið. Þarna var á ferðinni engin
önnur en Ragnheiður Gröndal.
Opnuðust fyrir þér margar dyr eftir
sigurinn? Tvímælalaust, því þarna
heyrði fólk mann syngja. Lagið varð
líka svo gríðarlega vinsælt eftir
keppnina.
Hvert er að þínu mati eftirminni-
legasta atriðið úr keppninni? Ég
man til dæmis eftir Jóa úr tvíeykinu
Jóa og Góa sem var að keppa á sama
tíma og ég. Hann mætti í korselett
og tók eitthvað lag úr Rocky Horror.
Það vildi svo skemmtilega til að Gói
var líka að keppa þarna í einhverj-
um gulum jakkafötum.
Pítsan eftir keppni
mest spennandi
Sverrir Bergmann sigraði árið 2000 fyrir Fjölbrautaskóla
Norðurlands vestra með laginu Án þín.
ALLIR KANNAST VIÐ
SIGURLAGIÐ ÁN ÞÍN
Mynd/Árni Sæberg
SÖNGKEPPNI
FRAMHALDSSKÓLANNA