Monitor - 07.04.2011, Blaðsíða 22
Kvikmynd Thin Red Line
er ein svakalegasta mynd
sem ég hef séð. Þetta er ekki
stríðsmynd, þetta er mögnuð
hugleiðing um mannlega
tilvist, tilgang lífsins o.s.frv. Besta mynd sem
ég hafði séð þar til ég sá Brokeback
Mountain.
Sjónvarpsþáttur Var
að klára Mad Men
og mæli hiklaust
með þessum þáttum.
Ótrúlega flott sett og
skemmtilegar pælingar
um samfélagsgerð
Bandaríkjanna á
sjöunda áratugnum.
Annars er það bara
Twin Peaks, bestu sjón-
varpsþættir sem gerðir hafa verið.
Plata Var að hugsa
um Songs of Love,
tónleikaplötu Mark
Eitzel, leiðtoga
American Music Club
fyrir stuttu. Hann er
einn með gítarinn og flutningurinn er
svo einlægur, ástríðufullur og alvöru
að maður hreinlega kemst við þegar
maður hlustar.
Bók Var að garfa í
ævisögu Ozzy Osbourne
nú fyrir stuttu. Það er
ekki sama hvernig svona
bækur eru gerðar,
sumar geta verið
ansi litlausar en
kallinn er helvíti
góður, bráðfyndinn
en einlægur líka.
Hann er greinilega með mjög
góðan draugapenna með sér!
Vefsíða Var í New York
fyrir stuttu og var
mikið að prufa alls kyns
sælgætisstangir sem
eru ófáanlegar hérlend-
is. Rakst í kjölfarið inn á
Candyblog.net þar sem er farið mjög
svo nákvæmlega í alls kyns nammi
með djúpum og löngum pistlum.
Magnað “sjitt”.
22 Monitor FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011
fílófaxið
MIÐ-ÍSLAND
OG PÉTUR JÓHANN
Þjóðleikhúskjallarinn
20:30 Vegna mikillar eftirspurnarverður þessi aukasýning
haldin á uppistandskvöldi Mið-Íslands.
Sérstakir gestir verða Pétur Jóhann Sigfússon
og nýkjörinn fyndnasti Verzlingurinn Margét
Björnsdóttir. Miðaverð er 2.000 krónur.
FIST FOKKERS
Bakkus
21:00 Útgáfutónleikar til að fagnaútkomu fyrstu breiðskífu
hljómsveitarinnar Fist Fokkers, Emilio Esta-
vez. Brasstríóið Baunirnar hitar upp og ásamt
Fist Fokkers koma fram sveitirnar Muck og
White Boys With Attitude. Frítt inn.
RAFMAGNSLAUST Á
NORÐURPÓLNUM
Norðurpóllinn
21:00 Hljómsveitin Valdimar ogLára Rúnars koma saman
í tónleikaröðinni rafmagnslausu. Á tónleikun-
um flytja þau sameiginlegt verk. Miðaverð er
1.500 krónur.
URMULL
Sódóma
22:00 Ísfirska hljómsveitin Urmullsló í gegn með plötunni Ull
árið 1994 og kom aftur saman á Aldrei fór
ég suður í fyrra við frábærar undirtektir. Þeir
hafa ákveðið að slá upp tónleikum á mölinni
og fá Hafnfirðingana í The Vintage Caravan til
að hita upp. Aðgangseyrir er 1.000 krónur.
NO TO SELF / GANON
Dillon
22:00 Ókeypis skemmtun á Dillonþar sem hljómsveitirnar No
To Self og Ganon halda uppi fjörinu.
fimmtud7apríl
HJÁLMAR
Faktorý
22:00 Reggísveitin Hjálmar leikurfyrir tónleikagesti. Húsið
opnar kl. 22 en tónleikarnir hefjast kl. 23.
Aðgangseyrir er 1.500 krónur.
föstudag8apríl
SKVÍSUFATAMARKAÐUR
Prikið
14:00 Þórunn Antonía, HildurSelma og Anna Kristín selja
föt, skart og skó á góðu verði. Einnig verður til
sölu fatnaður frá Starstruck design.
GLYMSKRATTINN – VAGG-
ANDI OG VELTANDI
Sódóma
22:00 Fram koma The 59‘s, TheJohnny Cash Kid, El Camino
og DJ Gísli Veltan & Smutty Smiff. Hárvörurn-
ar frá Smutty Smiff verða til sölu á staðnum
ásamt fötum frá Wildcat Vintage. Gestir eru
hvattir til að mæta á rockin‘ skónum með
pónlagað hárið til að dansa tryllt í nafni
guðföður rokksins. Aðgangseyrir er 1.000
krónur.
ÁRSTÍÐIR
Café Rósenberg
22:00 Hljómsveitin Árstíðir snýraftur á Rósenberg eftir nokk-
urt hlé. Meðlimir eru um þessar mundir að
máta ný lög á næstu breiðskífu sveitarinnar
og lofa góðu gamni. Aðgangseyrir er 1.500
krónur.
laugarda9apríl
Síðast en ekki síst
» Arnar Eggert, tónlistargúrú, fílar:
LOKAPRÓFIÐ
| 7. apríl 2011 |
skólinn
Hljómsveitin Amiina heldur sína síðustu tónleika í nokkurn tíma á
Faktorý í kvöld. „Við munum spila nýtt og gamalt efni í bland,“ segir
Magnús Tryggvason Eliasson, trommuleikari hljómsveitarinnar. „Þetta
verða samt aðallega lög af nýju plötunni,“ útskýrir hann en nýjasta
plata sveitarinnar, Puzzle, kemur út á vínyl um helgina. Það er búið
að vera mikið um að vera hjá Amiina í vetur en nú ætla þau að taka
sér smá pásu. „Það eru barneignir, skólaannir og allskonar svoleiðis
rugl í gangi,“ segir Magnús en bendir þó á nokkra tónleika sem eru
bókaðir á árinu. „Við förum til Singapúr í maí að spila og svo til
Þýskalands að spila á festivali þar í júlí,“ segir hann og virðist sem
það sé alltaf brjálað að gera hjá hljómsveitinni. „Svo erum við líka
að vinna nokkur remix af gömlum lögum og munum flytja tvö þeirra
á tónleikunum,“ segir hann spenntur fyrir síðasta gigginu fyrir pásu.
„Hinn goðsagnakenndi Borko mun hita upp svo þetta verða flottir
tónleikar.“ Aðgangseyrir er 1.000 krónur og hægt verður að nálgast
nýjustu plötu Amiina, Puzzle, á tilboðsverði á tónleikunum.
Síðustu tónleikar
fyrir pásu
TÓNLEIKAR AMIINA + BORKO
Faktorý
Fimmtudagur kl. 21.