Monitor - 07.04.2011, Page 11
11FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Monitor
Eva Longoria Parker er glæsileg í rauða Badgley
Mischka kjólnum sínum. Matreiðsluþáttastjórn-
andinn Sandra Lee tekur sig líka ágætlega
út í kjólnum en Eva hefur sigurinn. Hann fer
senjorítuútliti hennar mun betur, falleg förðun
og skórnir sem Eva hefur valið við kjólinn passa
miklu betur en skórnir hennar Söndru.
Leikkonan Sophia Bush og New York pæjan
Tinsley Mortimer klæðast hér báðar Hervé
Léger kjól frá Max Azria. Kjóllinn sjálfur er
ekkert sérstaklega spes, en burt séð frá því
á Tinsley vinninginn. Það er mun flottara að
vera með hárið niðursett við þennan tube-kjól.
Fylgihlutir Tinsley passa líka betur við kjólinn.
Vá, það sést strax hver rústar þessari keppni.
Victoria‘s Secret engillinn Alessandra
Ambrosio er fáránlega heit í þessum metal-
kjól. Gamla Beverly Hills-stjarnan Tori Spelling,
með sína hnoðuðu litlu bolta framan á sér
og gula hálsmenið á því miður langt í land.
Skórnir hennar Alessöndru eru líka truflaðir!
Bótoxpían Lisa Rinna klæðist hérna gullkjól
eftir Roberto Cavalli, en Kate Hudson klæddist
einmitt sama kjól, nema silfurtýpunni, árið
2005. Sumir aðeins eftir á. Annars tekur Kate
sig miklu betur út í kjólnum en Lisa. Kjóllinn fer
líkamsbyggingu Kate mun betur og Lisa er líka
útúrtönuð sem er aldrei fallegt.
Stjörnustríð
1. Ef einhver mætir í
alveg eins kjól og þú í
gleðskap
Ef þessi umræddi tvífari
þinn er með hárið slegið
þá tekur þú hárið upp í
snúð og öfugt. Ef þú ert
með gollu, hentu þér í
hana. Ef þú ert ekki með
neitt slíkt gætirðu beðið
gestgjafann um að lána þér
sjal til að setja yfir þig. Annars
er kannski sniðugast að púlla
Samönthu í Sex and the City, slá á létta strengi og
heimta að fá mynd af ykkur stöllum saman. Best
að gera grín að sjálfum sér.
2. Ef þú færð svitablett í kjólinn
Farðu inn á bað, taktu klósett-
pappír og láttu hann draga
í sig vökvann. Ennþá
betra ráð er ef það er
handþurrka inni á baði,
settu kjólinn undir hana
þangað til bletturinn
hverfur, en í hæfilegri
fjarlægð svo hann fari
nú ekki að fuðra upp. Ef
þú ert með peysu, sjal eða
eitthvað slíkt vefðu því þá
utan um þig til að fela blettinn
og flýttu þér svo heim að skipta!
3. Ef sólinn undan skónum
þínum losnar
Samkvæmt heimildum
Stílsins notaði ónefnd
dama eitt sinn kítti til
að festa skósólann sinn
á djamminu, grátt kítti.
Gaman að segja frá því
en minna til þess að
mæla með. Ein leiðin er að
taka alltaf með sér tátiljur
í töskunni, líka bara til að
skipta í lok kvöldsins þegar þú ert
að drepast í löppunum. Annars er líka gott að eiga
crazy-glue í töskunni en fáir muna eflaust eftir því
að taka það með. Þá er lítið annað að gera en að
fara heim!
4. Mikilvægur dagur og þú
vaknar með hlussu bólu
Vefðu klaka í þvottapoka
eða viskustykki (enn
betra). Láttu klakann
hvíla á bólunni í ca. þrjár
mínútur. Þetta kemur
í veg fyrir roðann og
bólguna sem myndast
á bólunni og í kringum
hana. Þegar þessu er
lokið er gott að setja smá
sótthreinsandi á bóluna. Í apóteki
fást svona litlir sótthreinsandi XXX sem Stíllinn
mælir með. Næst notarðu bólufelarann þinn til
þess að fela kvikindið.
Elite Model Look fyrirsætukeppnin fór fram síðast-
liðinn laugardag í Listasafni Reykjavíkur. Stúlkan sem
sigraði keppnina heitir Magdalena Sara Leifsdóttir, 15
ára mær úr Álfhólsskóla í Kópavogi. Hún segist hafa
verið stressuð á keppninni og úrslitin komu henni á
óvart. „Ég bjóst alls ekki við þessu, en þetta var ótrúlega
skemmtilegt,“ segir Magdalena. Hún var einnig fyrirsæta
á RFF og fannst gaman að fá þá reynslu og fá að kynnast
því hvernig tískusýningar fara fram. „Næst er það
bara Elite keppnin úti, sem verður haldin í nóvember
en ekki er alveg vitað hvar hún verður haldin,“ segir
Magdalena spennt en Elite keppnin er meðal stærstu
fyrirsætukeppna í heimi enda fyrirtækið eitt stærsta
sinnar tegundar.
M
yn
di
r/
G
ol
li
og
pr
es
sp
ho
to
s.
bi
z
strembnar
aðstæður
tæklaðar4
Magdalena
er ELITE
stúlkan
Vel heppnuð helgi að baki
Reykja-
vík Fashion
Festival fór fram
síðustu
helgi. Hátíðin gek
k einstaklega
vel og hefur tekið
stórt þroska-
stökk frá því í fyr
ra. Sýningarnar
voru fjölbreyttar
og skemmtilegar
og gaman að sjá
hvað Ísland er að
ala af sér efnilega
og glæsilega
fatahönnuði. Myn
dir segja
meira en þúsund
orð.
Live-
project.is var
á staðnum og sló ræki-lega í gegn. Gestir RFF voruduglegir að senda inn myndirog vídjó bæði frá Listasafninuen einnig frá tónleikumhelgarinnar. Um að gera aðkíkja á síðuna og sjá
hvað er í boði.
ROYAL EXTREME STENDUR
ÁVALLT FYRIR SÍNU
GULLFALLEG OG
SVÖRT SNIÐ HJÁ REY
YR VAR DJÖRF OG
VIRKILEGA TÖFF
HLÝIR OG
FALLEGIR
LITIR HJÁ
SONJU
BENT
SPAKSMANNS
SPJARIR ÁTTU
KVÖLDIÐ
MUNDI VAR SKEMMTILEGUR
ENDA EKKI VIÐ ÖÐRU AÐ BÚAST