Monitor - 07.04.2011, Síða 16
Source Code
Leikstjóri: Duncan Jones.
Aðalhlutverk: Jake Gyllenhaal,
Michelle Monaghan og Vera
Farmiga.
Dómar: IMDB: 8,1
/ Metacritic: 7,3 /
Rotten Tomatoes:
89%
Aldurstakmark: 16
ára.
Lengd: 90 mínútur.
Kvikmyndahús: Sambíóin.
Hermaðurinn Colter (Gyllenhaal)
vaknar upp í líkama óþekkts
manns og uppgötvar að hann er
hluti áætlunar um að leita uppi
aðila sem ber ábyrgð á sprengju-
tilræði um borð í farþegalest.
Yfirvofandi er önnur sprengjuárás
sem Colter þarf að koma í veg fyrir.
Barney’s
Version
Leikstjóri: Richard J.
Lewis.
Aðalhlutverk: Paul
Giamatti, Dustin
Hoffman, Rosamund
Pike og Minnie Driver.
Dómar: IMDB: 7,4 /
Metacritic: 6,7 / Rotten
Tomatoes: 79%
Aldurstakmark: 12 ára.
Lengd: 134 mínútur.
Kvikmyndahús: Sambíóin.
Barney Panofsky er sjónvarpsfram-
leiðandi sem hefur komið víða við á
ævi sinni. Hann er að fara að kvæn-
ast en í brúðkaupsveislunni hittir
hann konu sem hann fellur fyrir og
stingur af til að eltast við hana.
kvikmyndir
16 Monitor 7. APRÍL 2011
Danny McBride, sem leikur í Your Highness, fer með aðalhlutverkið í sjónvarps-
þáttunum Eastbound & Down. Mjög fyndnir þættir sem óhætt er að mæla með.
Your Highness
Leikstjóri: David Gordon Green.
Aðalhlutverk: Danny McBride, Natalie Port-
man, James Franco og Zooey Deschanel.
Dómar: Engir komnir.
Aldurstakmark: 12 ára.
Lengd: 102 mínútur.
Kvikmyndahús: Smárabíó, Háskólabíó
og Laugarásbíó.
Þegar tilvonandi eiginkonu prinsins Fabious (Franco)
er rænt af seiðmanninum Leezar leggur hann í
björgunarleiðangur með hinum vesæla og gagns-
lausa bróður sínum, Thadeous (McBride) og hinni
undurfögru Isabellu (Portman). Mynd eftir sama
leikstjóra og gerði Pineapple Express.
ÉG BERST Á FÁKI
FRÁUM FRAM UM VEG
Frumsýningar
helgarinnar
Tegund: Hasarleikur
PEGI merking: 3+
Útgefandi: Sony Computer
Dómar: Game Informer: 8,5 /
IGN: 5 / GamePro: 5
Heroes
Hetjur á hreyfingu
TÖ LV U L E I K U R
Síðan að Move-hreyfigræjan kom út fyrir PlayStat-
ion 3 hafa nokkuð margir leikir komið út þar sem
leikmenn nota græjuna til að stýra. Hafa gæði leikj-
anna verið æði misjöfn, allt frá hinum stórkostlega
Sports Champions að hinum afleita Kung Fu Rider.
Á dögunum kom út nýr leikur fyrir græjuna eða
PlayStation Move Heroes á PlayStation 3, en hér er
á ferðinni safn mini-leikja sem saman mynda eina
heild bundna saman með söguþræði.
Í þessum leik hafa Sony-menn ákveðið að
sameina margar af sínum allra stærstu hetjum, en
leikmenn fá tækifæri á að stýra Ratchet & Clank, Jak
& Daxter, Sly Cooper og vini hans Bentley. Undarleg
geimvera hefur sameinað alla kappana og eru verð-
launin að þeir fá allir að snúa aftur til síns heima.
Spilun leiksins er sæmilega fjölbreytt, en leik-
menn þurfa að nota Move-stýripinnana til að sveifla
svipum, kasta diskum, fella hluti líkt og í keilu,
skjóta á alls kyns kvikindi og fljúga um á geimskipi
svo fátt eitt sé nefnt. Move-græjan virkar ágætlega
í þessum leikjum og sýna þeir að vissu marki
hversu nákvæm og sniðug græjan er, en það vantar
eitthvað aðeins uppá að spilun leiksins gangi upp
og verði skemmtileg til lengdar.
Hinir eldri þurfa betri líkamsrækt
Grafíkin í PlayStation Move Heroes er ágæt, en
ekkert stórkostleg. Í raun er hér allt í ágætu
meðallagi og ekkert betra en það. Sama á við um
hljóð og tónlist leiksins en þar er allt í meðallagi og
litlu bitastæðu bætt við.
Þegar öllu er á botninn hvolft er PlayStation Move
Heroes góð skemmtun fyrir 12 ára og
yngri þar sem spilun er öll miðuð
við þann aldur, en þeir sem eru
mikið eldri en það ættu að finna sér
aðrar aðferðir til að hreyfa sig – ja,
eins og til dæmis að skokka.
Það er klárt að Sony hefur ekki
nýtt þetta tækifæri sitt næstum
nógu vel og vonum við að
framhaldið verði töluvert betra.
Ólafur Þór Jóelsson
A Woman,
a Gun and
a Noodleshop
Leikstjóri: Yimou Zhang.
Aðalhlutverk: Dahong Ni, Ni Yan og
Xiao Shen-Yang.
Dómar: IMDB: 5,8 /
Metacritic: 5,7 / Rotten
Tomatoes: 32%
Lengd: 90 mínútur.
Kvikmyndahús: Bíó
Paradís.
Endurgerð af mynd
Coen-bræðra, Blood Simple. Eigandi
núðluhúss í Kína leggur á ráðin um
að myrða ótrúa eiginkonu sína og
elskuhuga hennar en ráðabruggið fer
vægast sagt úr böndunum. Sögusviðið
er lítill bær í Gansuhéraði í Kína.
„Aðsamþykkja
samninginner
einsogaðgiftast
leiðinlega
gæjanum
til aðhann
hætti að
böggaþig.“
ADVICE hópurinn telur hagsmunum Íslands best borgið með því að fella
Icesave-lögin þann 9. apríl. Auglýsingar og annað starf hópsins er greitt með
frjálsum framlögum og vinnuframlagi sjálfboðaliða. Tölvupóstur: advice@advice.is
www.advice.is
„Við samþykkt samningsins mun vesenið fyrst hefjast fyrir
alvöru. Nú þegar er verið að skera allt inn að beini hér á landi
til að ná inn nokkrum tugum eða hundruðum milljóna króna.
Icesave umræða dagsins í dag verður eins og vögguljóð í
minningunni við hliðina á þeim sársauka og efnahagslegu
áhrifum sem greiðslurnar munu valda okkur næstu 35 árin.“
Lára Björg Björnsdóttir - Pressupenni
FREYJUHEIMUR.IS
VINNINGARNIR
42” PANASONIC SJÓNVARP
PANASONIC LUMIX G10 MYNDAVÉL
FULLT AF BÍOMIÐUM FYRIR 2 Á RIO
FINNDU SKAFMIÐANN ÞINN Í FREYJU PÁSKAEGGJUM
OG FARÐU SVO Á FREYJUHEIMUR.IS Á PÁSKADAG.
DREGIÐ VERÐUR 28. APRÍL 2011