Monitor - 07.04.2011, Blaðsíða 17
Hæð: 174 sentímetrar.
Besta hlutverk: Miles í
Sideways.
Staðreynd: Á stóran bróður,
Marcus, sem er einnig leikari.
Eitruð tilvitnun: „Mér finnst
ég ekki vera mjög áhugaverð
persóna. Ég er fæddur til að
vera aukaleikari.“
1967Fæðist þann 6.júní í New Haven í
Connecticut í Bandaríkjunum.
1989Útskrifaðist meðBA-gráðu í ensku
frá Yale-háskóla. Giamatti
var mjög virkur í leiklistarlífi
skólans ásamt þeim Ron
Livingston og Edward Norton
sem gengu líka í Yale. Á síðasta
ári grunnnámsins var hann
valinn í hið eftirsótta Skull and
Bones-leynifélag.
1991Útskrifaðist fráleiklistardeild
Yale-háskóla með mastersgráðu
í leiklist. Giamatti lék mikið
í leikhúsum og á Broadway í
upphafi tíunda áratugarins
ásamt því að koma fram í
nokkrum sjónvarpsþáttum og
kvikmyndum.
1997Fékk fyrsta stórahlutverkið sitt í
kvikmyndinni Private Parts. Lék
í mörgum stórum kvikmyndum
á næstu árum eins og til dæmis
The Truman Show og Man
On The Moon. Sama ár giftist
Giamatti Elizabeth Giamatti.
1998Lék mann semhafði umsjón með
talandi apa í kvikmyndinni Dr.
Dolittle. Þremur árum seinna
fór hann með hlutverk apa sem
hafði umsjón með manneskjum
í kvikmyndinni Planet Of The
Apes.
2001Eignaðist soninnSamuel Paul.
2003Sló í gegn hjágagnrýnendum
eftir að hafa leikið í kvikmynd-
inni American Splendor.
2004Túlkaði eftirminni-lega þunglynda
rithöfundinn í Sideways.
Giamatti var tilnefndur til
Golden Globe verðlaunanna
fyrir frammistöðuna.
2005Var tilnefndurtil bæði Golden
Globe og Óskarsverðlauna sem
besti leikari í aðalhlutverki fyrir
frammistöðu sína í kvikmynd-
inni Cinderella Man.
2011Fékk Golden Globeverðlaun fyrir leik
sinn í kvikmyndinni Barney‘s
Version.
Paul
Giamatti
FERILLINN
17FIMMTUDAGUR 7. APRÍL 2011 Monitor
Galdraheimur
Harry Potter
til sýnis
Aðdáendur galdrastráksins Harry Potter og félaga hans
í Hogwarts geta glaðst því nú hefur verið opnuð sérstök
sýning tileinkuð sögunum. Til sýnis eru fjölmargir leikmunir
og leikmyndir úr kvikmyndunum um Potter og geta gestir
sýningarinnar lifað sig inn í ævintýraheiminn.
Meðal annars er hægt að heimsækja heimavist Harry, Gryff-
indor, fara inn í herbergi hans og Ron og leggjast í rúm Harry.
Einnig er hægt að heimsækja kofa Hagrid, setjast í risavaxinn
hægindastólinn og ganga svo inn í Forboðna skóginn þar sem
einhyrningar og fleiri furðuverur halda sig.
„Þetta er eins og að vera nemandi við Hogwarts í einn dag,“
útskýrði Eddie Newquist, yfirmaður sýningarinnar, fyrir Reut-
ers-fréttastofunni. Hönnun sýningarinnar hefur staðið yfir
í mörg ár en hún tekur heljarinnar pláss, um 1300 fermetra.
Sýningin verður í New York fram til 5. september á þessu ári
en mun þá flytja sig um set til Evrópu.
DANIEL RADCLIFFE OG
GALDRAFÉLAGAR HANS