Monitor - 14.04.2011, Blaðsíða 8
8 Monitor FIMMTUDAGUR 14. APRÍL 2011
AGENT FRESCO VERÐA Í HÖRKUSTUÐI
Á REYKJAVIK MUSIC MESS
Tónlistarhátíðin Reykjavik
Music Mess verður haldin
í fyrsta skipti um helgina.
Monitor kynnti sér hvað
verður í boði fyrir gesti.
Messuð
helgi
framundan
HAVARÍ OPNAR BRÍARÍ
Tómstundahúsið Havarí mun opna skammtímaútibú í
húsakynnum Hostel Kex á meðan hátíðinni stendur. Þar
verður boðið upp á tónlist, myndlist, veggspjald vikunnar,
ókeypis tónleika, ódýrar plötur og allskyns gúmmulaði. Þar
mun einnig miðasala og afhending armbanda fyrir Reykjavik
Music Mess fara fram.
STAKIR MIÐAR
Hægt verður að kaupa staka miða á
viðburði Reykjavik Music Mess svo
lengi sem húsrúm leyfir. Miðar verða
seldir við hurð á hverjum stað fyrir
sig og gildir miðinn fyrir viðkomandi
stað. Miðaverð er 1.500 krónur nema
á tónleikana á NASA á sunnudags-
kvöldinu en þar er miðinn á 3.990
krónur. Miðarnir á þá tónleika verða
einnig fáanlegir í Bríarí frá og með
fimmtudeginum 14. apríl.
DAGSKRÁIN
Föstudagur
Tími Norræna húsið Sódóma
20:15 Prinspóló
21:00 Samaris
21:45 Nive Nielsen
22:00 Miri dj sett
22:30 Sóley
22:45 Nolo
23:15 Stafrænn Hákon
23:30 FOSSILS
0:15 Swords Of Chaos
1:00 Einar Örn + SWC
1:45 Æla
2:30 Miri dj sett
Laugardagur
Tími Norræna húsið NASA
20:15 AMFJ
20:30 FM Belfast dj sett
21:00 Hellvar
21:15 Miri
21:45 Tomutonttu
22:00 Borko
22:30 FOSSILS
22:45 Sin Fang
23:15 Orphic Oxtra
23:30 Lower Dens
0:15 kimono
1:00 Reykjavík! + Lazyblood
2:30 Quadruplos
Sunnudagur
Tími Norræna húsið NASA
20:15 Hljómsveitin Ég
20:30 Kippi Kaninus
21:00 Mugison
21:15 Sudden Weather Change
21:45 Lára Rúnars
22:00 Skakkamanage
22:30 Agent Fresco
22:45 Deerhunter
Nive Nielsen
Hin grænlenska Nive Nielsen er
vinsælasti tónlistarmaður Græn-
lands um þessar mundir. Hún var
nýlega tilnefnd til tónlistarverðlauna
Norðurlandaráðs fyrir lagasmíðar og
tónlistarflutning. Nive leikur aðallega
á ukulele og segist elska kúrekastígvél.
FOSSILS
Danski dúettinn FOSSILS gefur
sig út fyrir að skapa tónlistarlega
tjáningu sem sker inn að beini.
Útkoman er hart, þungt og flókið
rokk sem er einungis framkallað
af bassa- og trommuleik. Virkilega
áhugaverð hljómsveit hér á ferð
fyrir pönkara eða þá sem fíla
almennilegan metal.
Tomutonttu
Samkvæmt heimildum Monitor
er tomutonttu finnskt orð yfir
einhvers konar rykveru. Tónlist-
armaðurinn Jan Anderzen skipar
hljómsveitina Tomutonttu sem
skapar hljóðheim úr röddum,
dýrahljóðum, gömlum upptökum
og ýmsu fleiru sem honum lystir.
Borko
Íslenski tónlistarmaðurinn Borko er
líklega með fyndnustu sjálfslýsing-
una á heimasíðu Reykjavik Music
Mess. Þar segist hann vera meðhöf-
undur margra frægra laga á borð
við Last Christmas, Knowing Me
Knowing You og Suicide Is Painless
sem er þemalagið úr kvikmyndinni
Ghostbusters. Ekki er vitað hvort um
sanna staðhæfingu sé að ræða en
það er á hreinu að enginn má missa
af tónleikum hins stórkostlega
Borko sem segist einnig vera mikið
fyrir að pynta hryðjuverkamenn.
Orphic Oxtra
Balkansveitin sem hefur sigrað hug og
hjörtu Íslendinga í vetur treður upp
á Reykjavik Music Mess. Ekki er vitað
hvernig hljómsveitin nær alltaf að
troða sér á eitt svið en meðlimir eru
alls tólf talsins. Þau lýsa tónlist sinni
sem kaótískri og segja hana henta
best í brúðkaup, jarðarfarir, eftirpartí
og drykkjufögnuði í skjóli nætur.
Quadruplos
Hinn rafmagnaði íslenski furðu-
dúett Quadruplos samanstendur
af þeim Tomio Newmilk og
Magnoose og fyrir helgina hafa
þeir fengið frábæran liðsauka.
Þau Marlon og Tanya Pollock eru
svokallaðir MC‘s sem verður að
teljast forvitnilegur titill en um
leið einstaklega spennandi.
Deerhunter
Spaðaásinn á Reykjavik Music Mess
er indísveitin Deerhunter sem er ein
sú alflottasta í dag. Tónlistin er frábær
en allir ættu að skella sér á tónleika
Deerhunter til að sjá söngvarann
Bradford Cox syngja lögin af innlifun
sem á sér varla hliðstæðu.
Lower Dens
Bandaríska hljómsveitin Lower Dens er
einna frægust fyrir forsprakka sinn. Hér er á
ferðinni gífurlega svöl new wave-popp-póst-
pönk-sveit með söngkonuna Jana Hunter
í fremstu víglínu. Gítar, bassi, trommur og
frábær söngkona. Þarf eitthvað fleira?
Sudden Weather Change
Strákarnir í Sudden sýna enga miskunn þegar þeir
hækka vel í gíturunum og spara ekki feedback-ið
á tónleikum. Sviðsframkomu þeirra hefur verið
líkt við pólitískar uppreisnir 8. áratugarins og hið
árlega nautahlaup í Pamplona á Spáni en ekki er
vitað hvort þeir hafi komið þangað.
Mynd/Sigurgeir