Monitor - 30.06.2011, Blaðsíða 9
9FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011 Monitor
„Viltu bítta?“
Á árunum 1992-1996 hófu Íslendingar að
safna NBA-körfuboltamyndum í stórum
stíl. Körfuboltamyndirnar höfðu verið
framleiddar í Bandaríkjunum í marga
áratugi en vinsældir þeirra jukust mjög
bæði hér á landi sem og vestanhafs á
tíunda áratugnum. Myndirnar sýna hina
ýmsu körfuboltaleikmenn frá mismunandi
tímum í NBA og eru sumar þeirra mjög
verðmætar. Ungmenni Íslands fengu
algjört æði fyrir myndunum og þú varst
ekki maður með mönnum nema þú ættir
að minnsta kosti 100 stykki. Sumir gengu
langt í söfnuninni og hörðustu safnararnir
áttu þúsundir mynda á hápunkti æðisins.
Árið 1994 opnaði sérstakur markaður í
Skeifunni fyrir körfuboltamyndasafnara
þar sem myndirnar voru til sölu og hægt
var að skiptast á myndum.
„Er þitt stelpa
eða strákur?“
Upprunalegu tölvugæludýrin nefnast Tamagotchi og
voru fyrst framleidd í Japan árið 1996. Síðan þá hafa yfir
76 milljónir slíkra verið seld um heim allan og fjölmörg
fyrirtæki hafa framleitt
eftirlíkingar. Tölvugælu-
dýrin voru geysivinsæl hjá
grunnskólabörnum á Íslandi
undir lok síðustu aldar. Sumir
áttu mörg gæludýr og höfðu
í umsjá sinni hunda, ketti
og fugla en flestir létu sér
nægja að fæða, svæfa og
fara út að ganga með eitt
tölvugæludýr.
Tölvugæludýrin eru öll
svipuð að gerð. Þau eru egglaga, með einum skjá og þremur
hnöppum sem gera eigandanum kleift að halda lífi í
gæludýrinu sínu. Ef eigandinn vanrækir dýrið er hætta á að
það láti lífið sem getur verið mikið áfall fyrir samviskusama
dýravini. Ef allt fer til fjandans er samt alltaf hægt að ná
sér í blýant og endurræsa tölvugæludýrið með því að ýta á
þartilgerðan hnapp aftan á því.
Dracco–karlarnir eða Dracco–hausarnir eru litlar
plastfígúrur sem urðu fyrst vinsælar í Dan-
mörku. Dracco voru ekki lengi að gera innrás
á Íslandi og þeir sem voru orðnir leiðir
á að safna Pokémon fengu nýtt æði á
silfurfati til að taka ástfóstri við.
Til að eignast fleiri Dracco–
karla brugðu margir á það
ráð að harka upp á þá, oft
í frímínútum. Þá kepptu
tveir í einu og lögðu undir
ákveðna Dracco–karla
sem notaðir voru í
harkinu. Harkið virkar
þannig að sá sem getur
kastað Dracco–karlin-
um sínum nær
tilteknum vegg,
sigrar og fær
Dracco–karl hins
leikmannsins að
launum. Einfalt og
þægilegt.
Flottustu
Dracco–karlarnir
voru glanshúðaðir
eða „í foili“ og þóttu
þeir verðmætustu.
Oft var harkað upp á
foil–karlana en flestir sem
eignuðust slíkan tóku aldrei
áhættuna á að missa hann.
DRACCO
„Hvað ertu með marga í foili?“
VONANDI LEYNIST
EINHVER Í FOILI Í
ÞESSUM POKUM
ÞVÍ MINNA RISPAÐIR,
ÞVÍ BETRI ERU DRACCO–KARLARNIR
TÖLVUGÆLUDÝR
ÞAÐ ÞARF AÐ ÞRÍFA
UPP EFTIR ÞETTA DÝR
TAMAGOTCHI-
ÁHRIFIN
Sálfræðingar nefndu sér-
stakt hugtak í sálfræði eftir
tölvugæludýrunum vinsælu.
Tamagotchi-áhrifin lýsa sér
sem tilfinningaleg tengsl
manneskju við vélmenni,
tölvur eða vélar.
KÖRFUBOLTAMYNDIR
ÁTT ÞÚ KÖRFUBOLTAMYNDIR
Í KJALLARANUM?
Þeir lesendur sem luma enn á gömlum og góðum körfuboltamynd-
um ættu að kíkja á Netið því hægt er að selja sumar þeirra fyrir
háar fjárhæðir. Það sem safnarar líta mest á þegar myndirnar eru
verðlagðar er ástand myndanna, aldur þeirra, hversu sjaldgæfar
þær eru og auðvitað hver er á myndinni.
VERÐMÆT MYND
AF JORDAN Á
GULLÁRUNUM
DÝRASTA KÖRFUBOLTAMYND
SÖGUNNAR SELDIST FYRIR
RÚMA 219 ÞÚSUND DOLLARA
Á UPPBOÐI ÁRIÐ 2008