Monitor - 30.06.2011, Blaðsíða 10
10 Monitor FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Stjörnurnar fara líka að rífast eins og venjulegt
fólk en oft og tíðum vilja rifrildi þeirra rata í fjöl-
miðla. Hér eru nokkur fræg rifrildi úr bransanum.
Það gerist oft í Hollywood að leikarar falli fyrir mótleikkonum sínum og sú var svo sann-
arlega raunin hjá Brad Pitt og Angelinu Jolie er þau léku saman í kvikmyndinni Mr. & Mrs.
Smith. Það var bara eitt vandamál, Brad Pitt var þá giftur Jennifer Aniston. Eftir að hafa
neitað sögusögnum um ástarsamband sitt lengi viðurkenndu Pitt og Jolie að hafa átt náin
kynni en fullyrtu að ekkert hefði gerst fyrr en eftir skilnað Pitt við Aniston. Mánuðum
seinna viðurkenndi Jolie þó að hafa byrjað að sænga með Pitt meðan hann var enn giftur
Aniston. Fjölmiðlar æstust mjög við þessar fréttir og fékk Aniston aragrúa af spurningum
í kjölfarið um líðan sína eftir allt vesenið. Hún opnaði sig loks í viðtali við Vanity Fair þar
sem hún lét í ljós tilfinningar sínar til Jolie. Í viðtalinu var hún til dæmis spurð út í viðtal
þar sem Jolie sagðist hafa verið yfir sig spennt á hverjum degi að hitta Pitt við tökur á Mr.
& Mrs. Smith. Aniston sagði að á þeim tíma hafi hún ekki vitað mikið um framhjáhaldið
og því hafi slíkar yfirlýsingar frá Jolie verið óþarflega harkalegar. Í dag segist Aniston þó
vera sátt við Jolie en þær séu þó langt frá því að vera vinkonur.
Angelina Jolie og Jennifer Aniston
Frægasta framhjáhald Hollywood
fræga fólksins
Deilur
Tom Cruise og South Park
Enginn abbast upp á Tom Cruise
Tom Cruise tekur sjálfan sig aðeins of
alvarlega miðað við aðgerðir hans eftir
að gert var grín að leikaranum í South
Park. Þættirnar hafa tekið næstum
allt frægt fólk fyrir í gegnum tíðina og
þykir yfirleitt ekki tiltökumál að birtast
í teiknimyndunum kaldhæðnu. Árið
2005 var þátturinn Trapped In
A Closet sýndur og var
þar til dæmis vísað
í sögusagnir þess
efnis að Cruise
sé samkyn-
hneigður en
þær hafa fylgt
honum lengi.
Einnig var
gert grín að
þátttöku hans í
Vísindakirkjunni
og var leikarinn
John Travolta sem
er líka meðlimur í
kirkjunni tekinn fyrir í þætt-
inum. Cruise hótaði sjónvarpsstöðinni
sem ákvað þá að sýna þáttinn aftur til
að svara fyrir sig og allt fór í háaloft. Um
tíma leit út fyrir að hætta þyrfti fram-
leiðslu á South Park en svo varð ekki.
Donald Trump og Rosie O´Donnell
„Þú ert feitt svín!“
Móðganir flugu milli þeirra Rosie O‘Donnell og Donald
Trump eftir að rifrildi hófst milli þeirra vegna fegurð-
arsamkeppninnar Miss USA árið 2006. Donald Trump
á keppnina og eftir að hafa krýnt Tara Conner birtust
svæsnar myndir af fegurðardísinni á Netinu. Trump
ákvað þá að svipta hana titlinum og O‘Donnell var ekki
par sátt með ákvörðun hans. Leikkonan skapstóra lét
skoðanir sínar í ljós í beinni útsendingu þáttarins
The View og sagði það vera hræsni af Trump
að svipta Conner titlinum. Eftir þáttinn var
Trump spurður út í athugasemdir O‘ Donnell
og þá hófst rifrildið með kjafti og klóm. „Þú
ert fífl!“ lét
O‘ Donnell
hafa eftir
sér og
Trump
var ekki
lengi
að
svara
fyrir
sig í
fjöl-
miðlum.
„Þú ert
feitt svín!“
sagði hann við
leikkonuna.
Eminem og Mariah Carey
Voru þau saman eða ekki?
Hann segir þau hafa verið kærustupar, hún segir ekki. Í laginu
Superman sem Eminem gaf út árið 2002 kemur fyrir texta-
brotið „Hvað ertu að reyna að vera? Nýja eiginkonan mín? Þú
Mariah?“ og á rapparinn þá við Carey sem hann hatar innilega
eftir að hún niðurlægði hann með því að neita meintu
ástarsambandi þeirra. Fleiri textabrot beindust að Carey á
plötunni The Eminem Show en Carey hélt þó áfram að
neita sambandinu. Árið 2003 gerði Carey grín að
Eminem í spjallþætti Larry
King og sagði fáránlegt
af honum að halda
að þau gætu
nokkurn tímann
orðið par.
Einnig gerði
hún lítið úr
rapparanum
á tónleika-
ferðalagi sínu
sama ár. Árið
2005 spilaði Em-
inem upptökur
af símsvaranum
sínum á tónleikum.
Þar heyrðist kvenmanns-
rödd sem hann sagði vera Carey og svona hefur
þetta haldið áfram alveg síðan. Vonandi lætur
Eminem hana samt í friði núna þar sem hún er
nýgift og nýbökuð móðir.
Madonna og Courtney Love
Efni í baneitruð slagsmál
Á tónlistarverðlaunahátíð MTV árið
1995 var Madonna í viðtali í beinni
útsendingu þegar Courtney Love
kastaði málningardótinu sínu í
hana. Atriðið vakti mikla athygli og
mikill ófriður hefur verið milli söng-
kvennanna síðan. „Courtney Love
þarf greinilega á einhverri
athygli að halda
núna,“ sagði
Madonna eftir
atvikið og
benti á að
Love ætti
að fara
að hætta
í eitur-
lyfjunum.
Árin hafa
liðið en
skvísurnar
tvær eru greini-
lega enn ósáttar
þar sem Courtney
Love tísti um Madonnu á Twitter-
síðu sína á síðasta ári. „Madonna er
góð í viðskiptum en hún er lélegur
listamaður og við vitum það öll.
Þetta er brandari.“
ÞAÐ ABBAST ENGINN
UPP Á TOM CRUISE
MARIAH HEFUR SENNILEGA EKKI NEFNT
BARN SITT Í HÖFUÐIÐ Á EMINEM
DONALD TRUMPAÐIST
ALVEG ÚT Í O’DONNELL
ENGIN ÁST MILLI
MADONNU OG LOVE