Monitor - 30.06.2011, Blaðsíða 20
kvikmyndir
Shia
LaBeouf
Hæð: 176 sentímetrar.
Besta hlutverk: Sam Witwicky í
Transformers.
Staðreynd: Seldi pylsur í
trúðabúningi ásamt foreldrum
sínum í æsku.
Eitruð tilvitnun: „Ef ég á næga
peninga fyrir mat er ég góður.“
1986Fæðist þann 11.júní í Los Angeles.
LaBeouf ólst upp í skuggalegu
hverfi og átti furðulega æsku að
eigin sögn.
1996Byrjaði meðuppistand í
hverfinu sínu og reddaði sér
umboðsmanni sem hann fann á
gulu síðunum með því að þykjast
vera sinn eigin umboðsmaður.
LaBeouf sló í gegn með uppi-
standinu sínu tíu ára gamall með
dónalegum húmor og var sagður
hafa orðaforða fimmtugs manns
þrátt fyrir að vera svo ungur.
2000Lék hinn eig-ingjarna Louis
Stevens í þáttunum Even Stevens
á Disney-stöðinni. Þátturinn
vakti mikla lukku og var sýndur
í þrjú ár.
2003Sló í gegn í kvik-myndinni Holes og
lék í nokkrum minna þekktum
Hollywood-kvikmyndum á
næstu árum.
2004Byrjaði með ChinaBrezner, stúlku
sem hann kynntist á setti fyrir
kvikmyndina The Greatest Game
Ever Played. Þau hættu saman
þremur árum seinna þar sem
LaBeouf varð of upptekinn til að
geta sinnt sambandinu.
2007Negldi fyrsta stórahlutverkið sitt í
Transformers-kvikmyndunum
þar sem LaBeouf fer með
aðalhlutverkið. Sama ár lék hann
í hryllingsmyndinni Disturbia.
2008Lék hinn ungaog efnilega Mutt
Williams í fjórðu kvikmyndinni
um Indiana Jones. Sama ár var
hann handtekinn fyrir að keyra
undir áhrifum áfengis eftir að
hafa lent í bílslysi. LaBeouf þurfti
að gangast undir fjölda aðgerða.
2009Byrjaði með breskuleikkonunni Carey
Mulligan sem lék á móti honum í
Wall Street: Money Never Sleeps.
Þau hættu saman ári seinna.
2010Fór með aðalhlut-verkið í myndinni
Wall Street: Money Never Sleeps.
FERILLINN
20 Monitor FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011
Frumsýningar
helgarinnar
Enska nærfatamódelið Rosie Huntington-Whiteley birtist í sínu fyrsta stóra hlutverki í
Transformers 3. Nú bíða menn spenntir eftir því að sjá hvort hún standist Megan Fox snúning.
Popp-
korn
Stórleikarinn Michael
Caine sagði frá því í
nýlegu viðtali að leikstjórinn
Christopher
Nolan hefði
skammað
hann fyrir að
leka upplýs-
ingum um
nýjustu
Batman-
myndina, The
Dark Knight Rises. „Ég er
heppinn að geta sagt frá titli
myndarinnar. Ég er þegar búinn
að lenda í vandræðum fyrir að
segja að við séum að vinna að
myndinni og taka hana upp,“
sagði Caine.
Transformers-stjarnan
Shia LaBeouf greindi frá
því fyrir skemmstu að það sem
var á milli
hans og Megan
Fox, mótleik-
konu hans í
fyrri Transfor-
mers-
myndunum
tveimur, hafi
ekki einungis verið leikur.
Hann segir gagnkvæma
hrifningu hafa náð út fyrir
hvíta tjaldið og segir það fylgja
því þegar fólk leikur ástfangnar
persónur í sex mánuði.
Nýverið voru frumbirtar
ljósmyndir úr The
Hobbit, væntanlegri kvikmynd
Peter Jackson og lofa þær
vægast sagt
góðu. „Ég er
nákvæmlega
sami kvik-
myndagerða-
maður og ég
var fyrir tíu
árum. Ég er
bara að reyna að gera það sama
og í fyrri myndunum, að segja
söguna,“ segir Jackson sem er
alsæll með gang mála.
Félagarnir Adam Sandler
og Kevin James eru að
öllum líkindum að fara að leika
saman í bíómynd í þriðja skipti.
Sandler og James hafa áður
leikið í I Now
Pronounce You
Chuck & Larry
og Grown Ups,
en nú hefur
James skrifað
handrit að
nýrri grín-
mynd sem kallast Valet Guys.
Sandler er sagður vera að lesa
handritið og íhuga málið.
Nú er verið að ljúka við
að ráða í hlutverk fyrir
nýjustu kvikmynd Ben Affleck,
Argo. Myndin er byggð á sannri
sögu og fjallar
um útsendara
CIA sem
reyna að
smygla
Bandaríkja-
mönnum frá
Teheran,
höfuðborg
Írans. Affleck sjálfur leikur aðal-
hlutverkið, Alan Arkin og John
Goodman munu einnig fara
með hlutverk og nú er verið að
ræða við Bryan Cranston úr
Breaking Bad um að taka að sér
hlutverk.
Transformers 3
MENN SVITNA ÞEGAR ÞEIR
BERJAST VIÐ VÉLMENNI
Leikstjóri: Michael Bay.
Aðalhlutverk: Shia LaBeouf, Rosie Huntington-
Whiteley og Tyrese Gibson.
Lengd: 154 mínútur.
Aldurstakmark: Bönnuð innan 12 ára.
Kvikmyndahús: Sambíóin Álfabakka og
Kringlunni, Smárabíó og Laugarásbíó.
Í þriðju Transformers-myndinni, Dark of the
Moon, komast hin góðviljuðu Autobot-vélmenni, sem
hafa unnið hörðum höndum að því að vernda mann-
kynið að því að hin illskeyttu Decepticon–vélmenni ætla
að taka yfir Jörðina. Þegar vélmennin komast svo
að því að á tunglinu leynist gríðarstórt geimskip
frá Cybertron, sem gæti haft úrslitaáhrif í stríði
Autobot- og Decepticon-fylkinganna um Jörðina,
upphefst mikið kapphlaup um að komast yfir
þann búnað sem þar er. Decepticon–liðar eru á
undan og eru ekki lengi að byrja að nota hann til
ills og hefjast umsvifalaust handa við að leggja
heila borg í rúst. Autobot-liðar verða því að taka til
sinna ráða og reyna að finna einhverja leið til að klekkja á
illmennunum áður en mannkynið í heild verður þurrkað
út.
Mr. Popper’s Penguins fjallar um fjölskyldumanninn
Tom Popper. Tom er giftur vinnunni sinni og vanrækir
fjölskyldu sína mikið. Hann svíkur loforð sín og er
aldrei mættur á neina viðburði hjá börnunum sínum.
Ef einhverjum finnst hann kannast við þennan
söguþráð þá einmitt lék Jim Carrey í Liar Liar hér um
árið en þar var hann einmitt sama týpan. Eftir að
Tom Popper erfir nokkrar mörgæsir frá föður sínum
breytist líf hans svo um munar. Myndin fylgir for-
múlublaðinu alveg fram í ystu æsar og eru klisjurnar
á sínum stað eins og við var að búast.
Góð skemmtun fyrir börnin
Jim Carrey er auðvitað hrikalega fyndinn
þegar hann nennir því en í þessari mynd
fær hann ekki beint að njóta sín. Hans
helstu augnablik í þessari mynd voru
þegar einhver sparkaði í punginn á
honum eða ein mörgæsin pissaði á hann.
Þannig var húmorinn í þessari mynd. Þeir
sem sáu trailerinn og vonuðust eftir fínni
skemmtun geta alveg gleymt því. Þessi
mynd er sorp og ekkert annað. Mér fannst
ég í raun vera heimskari eftir að hafa
horft á hana. En svona til að enda þetta
á jákvæðum nótum þá mæli ég með
þessari mynd fyrir alla helgarpabbana
þarna úti sem vilja gera eitthvað með
börnunum sínum. Krakkarnir munu
elska þetta því mörgæsir eru sætar og
skemmtilegar.
Tómas Leifsson
Sorp! Mr. Popper’sPenguins
K V I K M Y N D
• Quantum of Solace
• Kill Bill
• Old Boy
• Ocean‘s Eleven
• The Mask of Zorro
• Cruel Intentions
• Leon
• The Crow
• Falling Down
• Mad Max
• I Spit on Your Grave
• Get Carter
• Point Blank
• High Plains Drifter
• Hamlet
15 góðar um hefnd
Kvikmyndavefurinn Rotten Tomatoes hefur tekið sam-
an 15 góðar kvikmyndir sem fjalla um hefnd. Þessar
klikka ekki þegar maður er blóðþyrstur og reiður.