Monitor - 30.06.2011, Síða 21
21FIMMTUDAGUR 30. JÚNÍ 2011 Monitor
„Við höfum verið á tónleikaferðalagi
síðustu tvær vikur og það hefur verið
vægast sagt skrautlegt og skemmtilegt.
Við höfum spilað á allt frá litlum pöbbum
til stærri tónleikahátíða og bæði gist á
fínum hótelum og í sprengjubyrgi,“ segja
strákarnir í Agent Fresco en þeir hafa
undanfarið verið á flakki um Evrópu.
„Við höfum oft farið út í styttri tíma en
þetta er okkar fyrsta alvörutónleikaferð.
Við ferðumst á lítilli rútu sem er meðal
annars búin sjónvarpi, PlayStation-tölvu
og mjög þéttlegnu rúmi. Þetta kemur sér
vel þar sem vegalengdirnar eru ansi langar og venju-
legur dagur inniheldur um tíu tíma keyrslu. Viðbrögðin
hjá áhorfendum eru búin að vera mjög góð og það hefur
komið okkur mjög mikið á óvart hversu margir þekkja
tónlistina okkar og syngja með á tónleikum.“
Fulltrúar Íslands á Hróarskeldu
Ferðalag hljómsveitarinnar felur meðal annars í sér
viðkomu á Roskilde Festival þar sem þeir stigu á stokk á
Pavillion Junior-sviðinu í gær. Þegar Monitor náði tali af
þeim voru fjórmenningarnir að gíra sig upp fyrir giggið.
„Það er auðvitað mikill heiður að spila á Hróarskeldu
og getur verið mikill stökkpallur fyrir okkur. Bókarinn
fyrir hátíðina sá okkur á síðustu Iceland Airwaves-hátíð
og hafði svo samband við okkur. Við ætlum að taka
nokkurn veginn sama prógrammið og við höfum verið
að spila á túrnum. Við höfum einbeitt okkur að því að
hafa tónleikana okkar fjölbreytilega, sveitta og blóðuga.“
Strákarnir verða þó ekki aðeins á meðal tónlistar-
manna á hátíðinni heldur ætla þeir einnig að njóta
hennar sem gestir. „Við náum fimmtudeginum og
föstudeginum og ætlum að reyna að sjá sem mest af
böndunum á þeim dögum en þurfum
svo að fara því við erum að spila í Berlín
á laugardeginum. Vignir er mjög mikill
Iron Maiden-aðdáandi og er ekki búinn
að tala um annað en það síðasta hálfa
árið. Annars langar okkur að sjá bönd
eins og Oh Land, Veto, PJ Harvey, Swans og
Mastodon.“
Íslendingar eiga tvo aðra fulltrúa á
Hróarskelduhátíðinni í ár en það eru
Who Knew, sem spiluðu á mánudaginn
síðastliðinn, og Ólöfu Arnalds sem kemur
fram á föstudaginn.
Stemningin
í beinni
Heimasíðan Live Project, www.liveproject.me, fór í loftið fyrir skemmstu í
sérstakri Hróarskeldu-útgáfu í opinberu samstarfi við aðstandendur tónlist-
arhátíðarinnar. Live Project er verkefni sem var sett á laggirnar af Íslending-
unum Herði Kristbjörnssyni, Daníel Frey Atlasyni og Arnari Yngvasyni fyrir
Airwaves í haust ásamt öðrum viðburðum hérlendis. Vefurinn er miðstöð
fyrir myndir og myndskeið frá gestum hátíðarinnar sem þeir geta uppfært
beint inn á síðuna í gegnum snjallsíma. Fyrir vikið getur fólk hérlendis
fengið stemninguna í Danmörku beint í æð í gegnum vefinn. Íslendingar
koma því ekki einungis að hátíðinni stóru í gegnum tónlistina eina og sér
þetta árið.
Agent Fresco er um þessar mundir á ferðalagi um Evrópu
og koma við á Hróarskelduhátíðinni til að troða upp.
Sveitt og blóðugt
á Hróarskeldu
MONITORTV
Þeir sem hafa farið á
Hróarskeldu vita að oftar
en ekki mætir maður heim
með eina ef ekki mun fleiri
góðar partísögur. Kíktu á
MonitorTV á mbl.is þar sem
Atli Fannar Bjarkason, fjöl-
miðlamaður, segir sína sögu
sem inniheldur mannasaur
og brenninetlur.
HVAÐ ERU MARGIR MEÐLIMIR
AGENT FRESCO Á MYNDINNI?
HVER VISSI AÐ WHO KNEW
YRÐU Á HRÓARSKELDU?
ÓLÖF ARNALDS VERÐUR
Á HRÓARSKELDU
HVAR ER
VALLI?