Monitor - 27.10.2011, Qupperneq 8
Monitor FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
stíllinn
Hvernig myndir þú lýsa stílnum þínum í fimm
orðum?
Klassík, 20’s, glys, rómantísk og stundum
svolítið drungaleg.
Hver er uppáhaldshönnuðurinn
þinn?
Karl Lagerfeld, án efa. Þessi
maður er ekki aðeins frábær
fatahönnuður, heldur er
hann líka æðislegur
ljósmyndari og er
alltaf flottur á því.
Hversu mörg skópör
átt þú?
Á alls ekki mörg skópör
miðað við fólk sem ég þekki. Á
held ég um 10-12 skópör og á það
til að eyðileggja þau jafnóðum.
Hvaða snyrtivöru gætir þú ekki
verið án?
Fyrir þá sem þekkja mig þá
er það frekar augljóst. Rauður
varalitur.
Ef þú yrðir að fá þér tattú, hvað
myndir þú fá þér og hvar?
Í fyrsta lagi myndi ég fá mér
kaffibolla á ökklann í tilefni
þess að eitthvað kanadískt
kaffihús ætti afmæli. Svo
myndi ég fá mér tölustafinn
13 á lærið.
Katrín Þóra Bragadóttir er á sínu síðasta ári í Menntaskólanum við
Hamrahlíð. Katrín hefur mikinn áhuga á tísku og vinnur hún í vintage-
búðinni Rokki og Rósum með skólanum. Einnig hefur Katrín mikinn áhuga
á ljósmyndun og er hún dugleg að sinna því áhugamáli. Það var margt
spennandi að sjá þegar Stíllinn kíkti í fataskápinn hennar Katrínar.
fataskápurinn
Gæti ekki verið án
rauða varalitarins
BESTA OG
ÞÆGILEGASTA
Kjóllinn minn frá Munda og
peysa sem ég fékk í Rokki &
Rósum. Get ekki valið á milli.
Flíkurnar eiga það báðar sameig-
inlegt að vera rosa þægilegar og
með æðislegt munstur.
NÝJASTA
Gervifeldur sem ég fékk í Rauða krossinum.
Finnst hann svo æðislegur og fullkominn
fyrir veturinn sem er óðum að nálgast.
FLOTTASTA
Hvítt vesti sem ég
fékk í einhverri búð
á Laugaveginum
sem ég hafði aldrei
farið inn í áður, og
samfestingur sem
ég fékk í Rokk og
Rósum. Ég dýrka
þessar flíkur.
DÝRASTA
Flauelsjakki sem ég fékk í Nostalgíu.
Honum fylgir mikið tilfinningalegt gildi
og er ein fallegasta flík sem ég á.
SKRÍTNASTA
Korselett sem ég
fékk í Nostalgíu fyrir
svona tveimur árum. Hún
er úr svörtu flaueli, alsett
gullperlum og lýtur svolítið
út eins og brynja. Þessi flík
heillaði mig svo mikið að ég
varð að kaupa hana.
ELSTA
Tásíður hvítur náttkjóll sem
ég fékk í Kolaportinu fyrir
óralöngu. Það er enginn miði
á honum og hef ég grun um að hann
hafi verið sérsaumaður. Þessi kjóll er algjört gull.
Myndir/Kristinn
8