Monitor - 27.10.2011, Qupperneq 14
14 Monitor FIMMTUDAGUR 27. OKTÓBER 2011
Þetta er dálítið eins og málverk, ég mála mann, hús og bíl á
meðan aðrir mála kannski einhverja reiti og eitthvað dót og fólk á
að leggja skilning í það og túlka eftir eigin höfði. Mitt dót er bara
aðgengilegt en ég reyni kannski að segja einhverjar sögur, þá er
svo auðvelt að fl ytja lögin. Svo er þetta ósköp einfalt, ef þetta er
eitthvað sem kemur frá þér sjálfum og þú ert ekki að reyna að
herma eftir einhverjum þá virkar þetta yfi rleitt alltaf. Það er sama
hvort það sé Steindi eða Björk, ef þetta kemur frá hjartarótum, þá
virkar það. Ég er bara svona einfaldur gæi, sem lifi r einföldu lífi og
syngur um einfalda hluti og þá skilur fólk það og tengir við.
Hvað er það besta við líf tónlistarmanns á Íslandi og hvað er
það sísta?
Þetta er stundum of mikið frelsi og það er spurning hvernig það
fer með þig, það er hellingur af tækifærum og freistingum sem er
kannski það versta fyrir mann sem er eirðarlaus að eðlisfari. Það
fylgir þessu lífi lítil reglufesta en það getur líka verið það besta,
það er rosalega gaman að vakna einn daginn á Seyðisfi rði og svo
næsta daginn á Bolungarvík, geta sofi ð út þegar þig langar. Þú ert
með miklar tekjur en stuttan vinnutíma og hvort er það kostur
eða galli? Það getur verið beggja blands því það kemur fyrir að
manni leiðist og þá er stutt í að maður fari að spila póker eða að
maður venji sig á eitthvað sem getur þess vegna verið hættulegt.
Það má segja að kostirnir og gallarnir geti verið þeir sömu.
Hefur þú brennt þig á einhverjum af þessum freistingum?
Já já, það má alveg segja það. Ég hef gert mína skandala hér
og þar en á kannski engar sögur til að segja. Svo er auðvitað
hellingur af kjaftasögum sem magnast upp þegar maður gefur
færi á sér. Ef maður gerir ein mistök, þá er miklu auðveldara fyrir
fólk að trúa öðrum sögum um mann líka.
Finnur þú mikið fyrir kjaftasögunum?
Já, ég fi nn nú frekar mikið fyrir því en læt þær hafa lítil áhrif
á mig. Í lok dags þá veit ég sjálfur hvað ég hef gert og hvað ég
hef ekki gert. Af þessum kjaftasögum sem maður hefur heyrt þá
tekur maður nú lygarnar ekki inn á sig en manni fi nnst kannski
leiðinlegt að fólk hafi frétt af einhverju þegar maður var að gera
eitthvað sem maður hefði betur sleppt en það fylgir þessu. Með
tímanum hef ég lært að loka á alla þessa hluti og halda áfram
að gera mína hluti og reyna að standa mig í því án þess að vera í
einhverju rugli. Helsta kúnstin er að forðast allar freistingar.
Hvers vegna
ákvaðst þú að gefa
út sólóplötu í stað
annarrar plötu
með Veðurguðun-
um?
Það er kannski
aðallega vegna þess að
þegar það eru fi mm, sex manns
að vinna saman að svona plötu þá vilja allir hafa eitt-
hvað um málið að segja. Allir vilja skipta sér af því hvernig
trommurnar eru, hvernig bassinn er og svo framvegis. Ég er
frekar meðvirkur að eðlisfari þannig að ég hef oft farið einhverj-
ar leiðir sem ég hef kannski ekki verið sáttur við eftir á að hyggja,
sem er dálítið vitlaust. Stundum hefur maður kannski ekki verið
nógu harður á sinni skoðun þannig að það er aðallega sú ástæða,
að prófa að ráða öllu á einni plötu og sjá hvernig það kemur út.
Þú fórst í stjórnmálafræði í háskóla og hættir. Er planið að klára
stjórnmálafræðina seinna?
Ég hugsa að ég færi í eitthvað annað ef ég færi aftur í háskólann
þótt þetta hafi verið allt í lagi. Ég hef mikinn áhuga á stjórnmál-
um. Það er kannski af því að ég hef mikinn frítíma en ég stend
mig oft að því klukkan þrjú um nótt að vera á netinu og vera
búinn að lesa allar fréttir á Eyjunni, DV og öll kommentin, horfa
á Silfur Egils þrisvar og Kastljósið tvisvar, þannig að maður er
þokkalega vel inni í þjóðfélagsmálum. Þess vegna fannst mér
heillandi að fara í stjórnmálafræði upp á að fá ákveðinn grunn ef
maður færi til dæmis seinna út í stjórnmál.
Er stefnan sett á að komast á þing?
Ég gæti alveg hugsað mér að fara í stjórnmál seinna meir. Ég
gæti kallað mig Þingó eða Alþingó, það hljómar dálítið eins og
eitthvað spænskt. Ég hef mínar skoðanir og hugsjónir í hinu og
þessu og þá held ég að það sé alveg eins grundvöllur fyrir mann í
stjórnmálum.
Heimildir Monitor herma að þú sért að sækja fótboltaþjálfara-
námskeið. Ert þú að róa á önnur atvinnumið en popparabrans-
ann?
Já, ég held að ég hefði mjög gaman af því að þjálfa. Ég er að
taka fyrstu stigin sem gefa réttindi til að þjálfa yngri fl okka en
ég hefði áhuga á að þjálfa bara meistarafl okkslið. Ég gæti hugsað
mér að gera það fl jótlega, ég gæti tekið við einhverju liði og verið
spilandi þjálfari með einhvern góðan aðstoðarþjálfara með
mér. Það er kannski eins með þetta og með leiklistina að ég hef
ákveðna oftrú á sjálfum mér, mig langar mjög mikið að prófa
að þjálfa fótboltalið. Af því að hafa verið með svona marga
þjálfara í gegnum tíðina hefur maður lært ýmislegt í sambandi
við hvernig á að þjálfa lið og hvernig á ekki að gera það. Ég er
tuttugu og fi mm ára í dag og ég segi það í fullri alvöru að ef
mér yrði boðið að vera meistarafl okksþjálfari hjá einhverju
liði þá væri ég ekkert smeykur við það.
Sérð þú fram á að vera að stússast í poppbransanum fram á
elliárin?
Ég sé fyrir mér að ég verði sextugur í golfferð á einhverri
framandi eyju og þá verði ég kannski búinn að gefa út tólf plötur.
Er síðan ekki klassískt að taka Ingó og Gospelkórinn einn daginn
og Ingó og Sinfó eftir það? Maður er alltaf að semja eitthvað, ég
byrjaði á því löngu áður en ég byrjaði í hljómsveit. Þá var maður
byrjaður að semja lag um gangavörðinn í skólanum en þörfi n
fyrir að skapa fylgir manni alltaf.
ÞETTA EÐA HITT
Upptroðsla sem trúbador eða
með bandi á sveitaballi? Trú-
bador fyrir yngri áheyrendur
en ballið fyrir eldri.
Pylsuvagninn á Selfossi eða
Bæjarins beztu? Pylsuvagninn
á Selfossi, þeir sem hafa
prófað hann vita af hverju.
Boltinn eða poppið? Poppið í
dag og boltinn í sumar.
Af tvennu slæmu, hvort myndir þú frekar
vilja verða gjörsamlega laglaus eða verða
útlægur frá Íslandi til æviloka? Laglaus.
Þá myndi ég spila bara á gítar og láta
bróður minn syngja.
Svo sat ég fyrir
utan höfuð-
stöðvar þeirra þegar
þeir spiluðu lagið svona
ellefu sinnum í röð. Þá
vissi ég að eitthvað
væri að fara að gerast.