Fréttablaðið - 03.10.2011, Blaðsíða 4
3. október 2011 MÁNUDAGUR4
DANMÖRK Helle Thorning-Schmidt
gekk í gær á fund Margrétar Dana-
drottningar og skýrði frá því að
nýtt ríkisstjórnarmynstur lægi
fyrir. Sósíaldemókrataflokkurinn,
sem hún er í forsvari fyrir, hefur
gert stjórnar sáttmála með Sósíal-
íska þjóðarflokknum og Róttæka
flokknum.
Sjálf verður Thorning-Schmidt
forsætisráðherra, fyrsta konan í
sögu Danmerkur sem gegnir því
embætti, en Margrethe Vestager,
leiðtogi Róttæka flokksins, verður
efnahags- og innanríkisráðherra og
Villy Søvndal, formaður Sósíalíska
þjóðarflokksins, verður utanríkis-
ráðherra.
Thorning-Schmidt ætlar ekki að
skýra opinberlega frá efnisatriðum
stjórnarsáttmálans fyrr en í dag.
Danskir fjölmiðlar höfðu þó kom-
ist á snoðir um nokkur helstu atriði
sáttmálans. Meðal annars fullyrða
þeir að stjórnin ætli að sætta sig
við breytingar fráfarandi stjórnar
á eftirlaunakerfi landsins, þannig
að smám saman verði fallið frá því
fyrirkomulagi að fólk geti komist á
eftirlaun þegar það verður sextugt
í stað þess að bíða til 65 ára aldurs,
þegar ellilífeyrisréttur tekur við.
Að kröfu Róttæka flokksins
verður fallið frá hátekjuskatti sem
sósíal demókratar og sósíalistar
höfðu boðað fyrir kosningar. Ekk-
ert verður heldur úr húsnæðis-
pakka sem Sósíaldemókratar lofuðu
til að ýta undir fasteignaviðskipti.
Aftur á móti verður útlending-
um gert auðveldara að flytja til
Danmerkur en hin umdeilda 24 ára
regla verður þó ekki felld niður.
Einnig verða gerðar breytingar
á skattkerfinu og skilgreind verða
opinber fátæktarmörk, svo nokkuð
sé nefnt af áformum nýju stjórnar-
innar.
„Þetta verða erfiðir tímar sem
við þurfum að fara í gegnum næstu
árin. En við getum gert Danmörku
nútímalegri,“ hafði dagblaðið Berl-
ingske Tidende eftir Thorning-
Schmidt í gær.
Í fréttaskýringu danska ríkis-
útvarpsins er stjórnin sögð vera
mynduð á „rauðum grunni með
bláum röndum“, þar sem frjáls-
lyndur miðjuflokkur verður í
stjórn með vinstriflokkunum
tveimur.
Samtals hafa þessir þrír flokk-
ar ekki meirihluta á þingi og þurfa
því stuðning annarra flokka til að
koma málum í gegn. Vinstra megin
hafa þeir stuðning af Einingar-
listanum en um sum mál þurfa þeir
væntanlega stuðning hægriflokks-
ins Venstre, sem var í forystu fyrir
síðustu ríkisstjórn.
Þar njóta þeir samkomulags sem
Róttæki flokkurinn og Venstre
gerðu með sér skömmu fyrir kosn-
ingarnar um að hafa náið samstarf
eftir kosningar jafnvel þótt annar
flokkurinn kæmist í stjórn en hinn
yrði í stjórnarandstöðu.
gudsteinn@frettabladid.is
ÍS
LE
N
SK
A
S
IA
.I
S
S
FG
4
20
40
0
4.
20
08
Þetta verða erfiðir
tímar sem við þurfum
að fara í gegnum næstu árin.
HELLE THORNING-SCHMIDT
FORSÆTISRÁÐHERRA DANMERKUR
BANDARÍKIN, AP Meira en sjö hundr-
uð manns voru handtekin á laugar-
dagskvöld og aðfaranótt sunnudags
á Brooklyn-brú í New York þegar
til átaka kom við lögreglu, hálfum
mánuði eftir að dagleg mótmæli hóf-
ust gegn kaupsýsluvaldinu á Wall
Street. Mótmælendur voru engu að
síður mættir niður á Wall Street í
gær, staðráðnir í að halda áfram
aðgerðum sínum.
Handtökurnar voru gerðar þegar
hópar mótmælenda fóru út fyrir þá
leið sem lögreglan hafði heimilað
þeim að ganga á laugardag. Marg-
ir mótmælenda segja lögreglu hafa
sett gildru fyrir mótmælendur, því
ekki hafi allir gert sér grein fyrir
því hvar leyfilegt hafi verið að mót-
mæla og aðrir hafi einfaldlega hrak-
ist út af leið. Lögreglan segist hins
vegar ítrekað hafa bent fólki á að
halda sig innan leyfilegra marka.
Mótmælendur hafa komið saman
daglega síðustu tvær vikur til að
mótmæla græðgi kaupsýslumanna
og krefjast úrlausna fyrir þá sem
fóru illa út úr kreppunni. Um 200
manns hafa hafst við á Wall Street
en halda reglulega í kröfugöngu um
götuna og hrópa: „Svona lítur lýð-
ræðið út.“ - gb
Átök við lögreglu í New York eftir hálfs mánaðar mótmælaaðgerðir gegn kaupsýsluvaldinu:
Hundruð manna handtekin um helgina
SLYS Ekið var á tvo gangandi veg-
farendur, karlmann og konu, í
Lækjargötu um hálffjögurleytið
aðfaranótt sunnudags. Karlmaður-
inn fékk höfuðáverka en konan fót-
brotnaði. Engar grunsemdir eru
um að ökumaður hafi verið undir
áhrifum áfengis eða fíkniefna.
Mikið myrkur var þegar atvikið
átti sér stað og vill lögreglan beina
því til ökumanna, jafnt sem gang-
andi vegfarenda, að fara gætilega
nú þegar farið er að rökkva á
kvöldin. - fb
Ekið á gangandi vegfarendur:
Höfuðáverki og
fótbrot í myrkri
MANILA, AP Að minnsta kosti
59 manns hafa látist af völdum
tveggja fellibylja sem hafa gengið
yfir norðausturhluta Filippseyja.
Fellibylurinn Nesat gekk yfir
landið á föstudag. Að minnsta kosti
56 manns létust og 28 er saknað
af hans völdum. Annar fellibylur,
Nalgae, gekk yfir landið á laugar-
dag og banaði að minnsta kosti
þremur manneskjum. Hundruð
manna hafa þurft að hafast við
uppi á húsþökum vegna flóða sem
fylgdu í kjölfar byljanna. Nalgae
gerði vart við sig í suðurhluta Kína
í gær og var almenningur hvattur
til að halda sig inni við. - fb
Fellibyljir á Filippseyjum:
Að minnsta
kosti 59 létust
GRÁTUR Ung stúlka í úthverfinu Mala-
bon, norður af Manila, grætur í fanginu
á móður sinni. FRÉTTABLAÐIÐ/AP
1. 2. 3. 4. 5. 6. 7. 8. 9.
10. 11.
12. 13.
14. 15.
16.
17.
18.
19.
21. 22. 23. 24. 25.
27.
29. 30.
31. 32. 33.
34.
35.
36.
37.
38. 39.
20 26 28
Þrjú númer féllu niður í krossgátu
Fréttablaðsins um helgina. Eins og
meðfylgjandi mynd sýnir þá voru það
20 lóðrétt en þar var vísbendingin:
Sending sem enginn vill fá styrkir og
skiptir skjá (12), 26 lárétt þar sem vís-
bendingin var: Skrifa mín ljóð sjálf því
ég vinn ekki með öðrum (7) og 28
lárétt en þar var vísbendingin: Axlaði
hirslu fyrir flösku og glös. Beðist er
velvirðingar á þessum mistökum.
LEIÐRÉTT
DÓMSMÁL Tæplega þrítugur karl-
maður hefur verið dæmdur í
tveggja mánaða skilorðsbundið
fangelsi fyrir að ráðast á tvær
stúlkur á veitingastað. Héraðs-
dómur Reykjavíkur dæmdi
manninn fyrir brotið, sem átti
sér stað í janúar á síðasta ári.
Stúlkurnar hlutu nokkur
meiðsl er maðurinn réðst að
þeim.
Önnur þeirra fékk áverka í
andlit þegar maðurinn sló hana.
Hin rifbrotnaði og fékk fleiri
áverka þegar hann hrinti henni
niður stiga. Hann var dæmdur
til að greiða annarri stúlkunni
150 þúsund krónur í skaðabætur
og hinni 250 þúsund.
- jss
Tveir mánuðir á skilorði:
Réðst á stúlkur
á veitingastað
VEÐURSPÁ
Alicante
Basel
Berlín
Billund
Frankfurt
Friedrichshafen
Gautaborg
Kaupmannahöfn
Las Palmas
London
Mallorca
New York
Orlando
Ósló
París
San Francisco
Stokkhólmur
HEIMURINN
Vindhraði er í m/s.
Hitastig eru í °C.
Gildistími korta er um hádegi.
27°
25°
22°
18°
24°
22°
18°
18°
27°
24°
28°
15°
27°
18°
26°
19°
15°Á MORGUN
Víðast 5-13 m/s,
hvassast NV-til.
MIÐVIKUDAGUR
Stíf NA-átt NV-til og við
SA-ströndina.
9
9
9
4
7
7
8
6
10
10
8
6
3
4
3
8
6
4
5
15
5
4
8
10
23
4
33
4
9
7
NORÐANÁTTIR
Stíf norðaustanátt
norðvestanlands
í dag en norð-
lægar áttir verða
ríkjandi í nýrri
vinnuviku og kólnar
smám saman í
veðri. Dregur úr
úrkomu syðra og
léttir aðeins til en
fyrir norðan verður
rigning eða slydda
með köfl um næstu
daga.
Elísabet
Margeirsdóttir
veður-
fréttamaður
Thorning-Schmidt
myndar nýja stjórn
Sósíaldemókrataflokkurinn, Sósíalíski þjóðarflokkurinn og Róttæki flokkurinn
hafa náð samkomulagi um myndun nýrrar minnihlutastjórnar í Danmörku.
Fallið verður frá hátekjuskatti en útlendingalögin verða milduð nokkuð.
HELLE THORNING-SCHMIDT Ný stjórn verður tilbúin þegar nýtt þing kemur saman á
morgun. NORDICPHOTOS/AFP
MÓTMÆLENDUR Á WALL STREET
Hundruð manna hafa hafst við í miðju
fjármálahverfis New York dag og nótt.
FR
ÉTTA
B
LA
Ð
IÐ
/A
P
GENGIÐ 30.09.2011
GJALDMIÐLAR KAUP SALA
HEIMILD: Seðlabanki Íslands
214,5985
GENGISVÍSITALA KRÓNUNNAR
117,83 118,39
183,70 184,60
159,01 159,89
21,365 21,491
20,139 20,257
17,163 17,263
1,5327 1,5417
183,89 184,99
Bandaríkjadalur
Sterlingspund
Evra
Dönsk króna
Norsk króna
Sænsk króna
Japanskt jen
SDR
AUGLÝSINGADEILDIR FRÉTTABLAÐSINS – AUGLÝSINGASTJÓRI: Jón Laufdal jonl@frettabladid.is ALMENNAR SÍMI 512-5401: Guðmundur Steinsson gudmundurs@365.is, Hjördís Zoëga hjordis@frettabladid.is, Hlynur Þór Steingrímsson hlynurs@365.is, Laila Awad laila@365.is, Örn Geirsson orn.geirsson@365.is
ALLT SÍMI 512-5402: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is SÉRBLÖÐ SÍMI 512-5016: Sigríður Dagný Sigurbjörnsdóttir sigridurdagny@365.is, Sigríður Hallgrímsdóttir sigridurh@frettabladid.is, Þórdís Hermannsdóttir thordish@365.is, Ívar Örn Hansen ivarorn@365.is RAÐAUGLÝSINGAR/FASTEIGNIR SÍMI 512-5403:
Hrannar Helgason hrannar@365.is, Viðar Ingi Pétursson vip@365.is ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 512-5407: Sigurlaug Aðalsteinsdóttir sigurlaug@365.is, Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@365.is, Guðný Gunnlaugsdóttir gunny@365.is, KYNNINGARSTJÓRI: Einar Skúlason einar.skulason@365.is