Fréttablaðið - 05.10.2011, Síða 23

Fréttablaðið - 05.10.2011, Síða 23
Ágætu kennar- ar, til hamingju með daginn. Alþjóðadagur kennara er helgaður jafn- rétti. Á aðal- fundi Alþjóða- sambands kennara, EI, var sam- þykkt ný stefna samtakanna í skólamálum. Í stefnunni er lögð mikil áhersla á jafnrétti til náms á öllum skólastigum. Samtökin vara sterklega við áhrifum ný- frjálshyggjunnar á skólamál sem birtast í aukinni áherslu stjórn- valda víða um heim á einka- framtak og einkarekstur innan skólakerfisins. Þetta leiðir til auk- ins ójafnréttis til náms, en slík er reynsla þeirra þjóða sem fetað hafa út á þá braut. Einnig er varað við að mælistokkar viðskiptalífsins séu yfirfærðir á menntakerfi án þess að innihald og forsendur í menntamálum séu skoðaðar eða hafðar sem leiðarljós. Krafa um hagræðingu á kostnað gæða í skólastarfi er slæmur kostur og bent er á að stöðluð próf segja ekki allan sannleikann um innhald skólastarfs. Í stefnu EI er einnig lögð mikil áhersla á kennarann sem fagmann og sérfræðing í kennslu. Í því sam- hengi er bent á mikilvægi þess að kennarinn þarf tíma til að undirbúa hverja kennslustundi sem og tíma til þess að vinna úr úrlausnum nemenda. Verum stolt af starfinu okkar kennarar, því við menntum Íslendinga. Á rið 1994 var Alþjóðadagur kennara haldinn hátíðleg-ur í fyrsta sinn. Við hljót- um öll menntun og það er okkar hagur að búa að góðum kennur- um sem láta sér annt um okkur og menntun okkar. Í þeim skilningi er þetta dagur sem við getum öll gert að okkar. Þann 5. október gefst kær- komið tækifæri til að vekja athygli á starfi kennara og þrýsta á um al- þjóðlegar umbætur í skólamálum. Alþjóðasamband kennara, EI, nýtir sér daginn í þessu skyni og hvetur aðildarsamtök sín til að gera slíkt hið sama. Menningar málastofnun Sameinuðu þjóðanna, Unesco, vekur athygli á 5. október af sömu ástæðu. Kennarar eru burðarás menntunar. Á Alþjóðadegi kennara ár hvert er lögð sérstök áhersla á einn stór- an og mikilvægan málaflokk í þágu menntunar og mannréttinda. Ein- kennisorð okkar í ár eru: Kenn- arar berjast fyrir kynjajafnrétti. Þrennt er sérstaklega mikilvægt í þessu samhengi: Jafnrétti karlkenn- ara og kvenkennara, þar með talið launajafnrétti, aðgengi stúlkna að hágæðamenntun og loks hlutverk kennara og skóla í að kveða niður staðalímyndir um stráka og stelpur, konur og karla. Jafnrétti er í deiglunni á fleiri vígstöðvum í alþjóðlegri kenn- arasamræðu. Á sjötta heimsþingi kennara í Höfðaborg í Suður-Afr- íku í sumar samþykkti þingið að leggja mikla áherslu á skólann sem jöfnunartæki í samfélaginu. Allir eiga að geta notið góðrar og fjölbreyttrar menntunar og skóla- göngu, burtséð frá kyni, þjóð- erni, félagslegri stöðu, aldri, fötl- un og svo framvegis. Skólunar þar sem tekið er mið af þörfum okkar fyrir að vinna saman í hópi, skapa, læra, nota huga og hönd, iðka list- ir, styrkja okkur sem einstaklinga og sem siðaða samfélagsþegna. En nýfrjálshyggjan lifir enn í skóla- kerfinu víða um lönd þótt henni hafi verið hafnað að margra mati sem hugmyndafræði þegar krepp- an skall á. Vegið er að velferðar- kerfi og menntakerfi og barátt- an fyrir raunverulegu jafnrétti allra til góðrar menntunar hefur harðnað gríðarlega, meira að segja í Norðrinu, þ.e. hinum (fram að þessu) ríku löndum. Stjórnvöld eru í lykilhlutverki í skólamálum í hverju landi og menntun má aldrei mæta afgangi, eins og til dæmis með því að afhenda hana einkaaðilum, skera endalaust niður í skólum og sinna ekki menntun og símenntun kennara. Hvort er mikilvægara að beina fjármunum til skólanna eða verja þeim til eftirlitsaðgerða, lang- vinnra fundarhalda og skýrslutöku í anda Thatcherismans? Skólinn snýst um heill og hamingju allra barna og ungmenna, ekki bara fárra. Til hamingju með daginn! Kristin Elfa Guðnadóttir, útgáfustjóri KÍ Kennarar burðarás menntunar Raunverulegt jafnrétti! Kennarasamband Íslands Alþjóðadagur kennara 5. október 2011 Þórður Hjaltested, formaður KÍ KENNARAR SKULU VERA STOLTIR KYNJAJAFNRÉTTI Í NÁMI OG KENNARASTARFI Í Alþjóðasambandi kennara eru um fjögur hundruð landssamtök kennara í yfir hundrað og sjötíu löndum. Alþjóðadagur kennara er haldinn hátíðlegur þann 5. október ár hvert með ýmsum hætti víða um lönd. Athygli er þá jafnan vakin á stórum og mikil- vægum málaflokkum sem tengj- ast menntun. Í ár er það kynja- jafnrétti, bæði í námi og kenn- arastarfi. Áhersla er lögð á þrennt: 1. Jafnrétti karlkennara og kven- kennara, þar með talið launa- jafnrétti. 2. Fullt aðgengi stúlkna að hágæðamenntun til jafns við drengi. 3. Mikilvægi kennara og skóla í að kveða niður kynja- staðalímyndir.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.