Fréttablaðið - 05.10.2011, Side 32

Fréttablaðið - 05.10.2011, Side 32
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR24 Eiginmaður minn, Sveinbjörn Markússon kennari, er látinn. Fyrir hönd aðstandenda, Anna Jónsdóttir. Innilegar þakkir sendum við öllum sem sýndu okkur hlýhug og samúð við andlát og útför ástkærrar móður minnar, tengdamóður og ömmu, Sveinbjargar Eiríksdóttur Frostafold 14, Reykjavík. Fyrir hönd aðstandenda, Sigríður Ósk Lárusdóttir Þorsteinn Alexandersson Logi Guðjónsson Valgerður Ragnarsdóttir og barnabörn. Ástkær faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, Jógvan Hansen (Joen Edvard Jacob Hansen), Vestmannaeyjum, sem andaðist laugardaginn 17. september síðastliðinn, verður jarðsunginn frá Landakirkju laugardaginn 8. október kl. 11. Börn, tengdabörn, barnabörn og barnabarnabörn. Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför ástkærs eiginmanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, Árna Árnasonar fyrrv. forstjóra, Sóltúni 10, Reykjavík. Hjartans þakkir til lækna, hjúkrunarfólks og starfs- fólks á B-4 Landspítala í Fossvogi sem annaðist hann og okkur af einstökum kærleik og fagmennsku. Einnig þökkum við Heimahjúkrun fyrir alla þeirra umönnun og hjálp sem var ómetanleg. Stórfjölskyldan og vinir fá innilegar þakkir og allir þeir, sem heiðruðu minningu hans. Við biðjum Guð að blessa ykkur öll. Guðrún Pálsdóttir Árni Þór Árnason Guðbjörg Jónsdóttir Þórhildur Árnadóttir Valdimar Olsen Guðjón Ingi Árnason Sigríður Dögg Geirsdóttir barnabörn og barnabarnabörn. Systir mín, Anna Hallsdóttir frá Steinkirkju, Þórunnarstræti 108, Akureyri, lést á Dvalarheimilinu Hlíð þriðjudaginn 27. september. Útför hennar fer fram frá Illugastaðakirkju föstudaginn. 7. október kl. 14. Elín Hallsdóttir og aðrir aðstandendur. timamot@frettabladid.is ROBERT FREDERICK ZENON „Bob“ Geldof, söngvari og aðgerðasinni, er 60 ára í dag „Stjórnmálamönnum er ekki treystandi. Það skiptir engu hver það er sem flytur pólitíska ræðu, hann fer með eintómar lygar – og það á líka við um rokksöngvara sem flytja pólitískar ræður.“ „Sigursveinn fékk lömunarveiki þegar hann var tólf ára og sagan af því hvern- ig hann braust til mennta og varð fjár- hagslega sjálfstæður er mjög merkileg,“ segir Sigursveinn Magnússon, systur- sonur Sigursveins D. Kristinssonar tón- skálds, inntur eftir því hvaða þætti í lífi móðurbróður hans beri hæst. Tilefni spurningarinnar er að í kvöld verður Sigursveinsvaka í Hörpu til að minnast þess að í apríl voru 100 ár frá fæðingu Sigursveins D. Á tónleikunum kemur fram fjöldi listamanna og flytur tón- list eftir Sigursvein D., auk þess sem stiklað verður á stóru í lífshlaupi hans. „Hann braust ekki aðeins áfram fyrir sjálfan sig heldur hjálpaði hann öðrum til sjálfsbjargar líka,“ heldur Sigursveinn áfram. „Það er ekki hægt að segja að hann hafi verið stofnandi Sjálfsbjargar, félags fatlaðra, en þegar maður les þá sögu alla er greinilegt að það var hann sem skynjaði kall tímans og gaf merkið.“ Sigursveinn D. fór til endurhæfingar og náms í Kaupmannahöfn, stund- aði tónsmíðanám í Berlín, var ötull baráttumaður fyrir réttindum fatl- aðra, átti sæti á landsþingum ASÍ sem fulltrúi Verkalýðs- og sjómannafélags Ólafsfjarðar auk þess að stofna Tón- skóla Sigursveins árið 1964. „Það var reyndar atrenna að því,“ segir Sigur- sveinn. „Hann stjórnaði tónlistarskóla á Siglufirði í fimm ár eftir að hann kom heim frá Berlín. Þar fékk hann verkalýðsfélögin í lið með sér og þau beittu sér fyrir tónlistarfræðslu sem þá átti sér enga hliðstæðu hér á landi. Hann var alla tíð virkur í verkalýðs- hreyfingunni og eftir að hann flutti hingað suður hafði hann frumkvæði að stofnun bæði Söngfélags verkalýðs- samtaka í Reykjavík og Lúðrasveitar verkalýðsins sem er í fullu fjöri enn í dag og er meðal þeirra sem koma fram á tónleikunum í kvöld undir stjórn Kára Húnfjörð Einarssonar.“ Meðal annarra sem fram koma eru Sigrún Valgerður Gestsdóttir sópran og Einar Jóhannesson klarínettuleik- ari, auk þess sem geisladiskur með flutningi þeirra á lögum Sigursveins D. Kristinssonar verður til sölu. Aðrir sem fram koma eru: Finnur Bjarnason tenór og Örn Magnússon píanóleikari, Karla- kór Reykjavíkur undir stjórn Friðriks S. Kristinssonar, Strengjasveit Tón- skólans undir stjórn Gunnsteins Ólafs- sonar, Ólöf Sigursveinsdóttir sellóleik- ari og Hrönn Þráinsdóttir píanóleikari og Ágúst Ólafsson barítón og Ástríður Sigurðardóttir píanóleikari. Tónleikarnir hefjast klukkan 20 og aðgangur er ókeypis. fridrikab@frettabladid.is SIGURSVEINSVAKA Í HÖRPU: TÓNLIST SIGURSVEINS D. KRISTINSSONAR Baráttumaður og brautryðjandi MINNAST SIGURSVEINS Sigursveinn Magnússon og Kristinn Sigursveinsson, sonur Sigursveins D. Kristinssonar, vinna saman að undirbúningi Sigursveinsvökunnar í kvöld. FRÉTTABLAÐIÐ/VALLI 60 Merkisatburðir 5. október 1615 Spánverjavígin: Hópur baskneskra hvalveiðimanna er drep- inn við Skaganaust yst í Dýrafirði. 1897 Barnablaðið Æskan hefur göngu sína. 1946 Alþingi samþykkir að veita Bandaríkjunum afnot af landi á Miðnesheiði. Samningurinn veldur miklum deilum. 1946 Melaskóli hefur starfsemi sína. 1963 Hljómsveitin Hljómar frá Keflavík kemur fram opinberlega. Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir og afi, Stefán M. Gunnarsson fyrrverandi bankastjóri, sem andaðist 26. september, verður jarðsungin frá Kópavogskirkju föstudaginn 7. október kl. 13.00. Þeim sem vilja minnast hans er bent á Minningarkort Kópavogskirkju, s. 554 6820, eða Heimahlynningu Landspítalans, s. 543 1159. Hertha W. Jónsdóttir Jón Gunnar Stefánsson, Tracey E. Stefánsson Sigríður Þrúður Stefánsdóttir, Benjamín Gíslason og barnabörn. Sprengjur sprungu í tveimur krám í bænum Guildford á Englandi að kvöldi hins 5. október 1974. Fyrri sprengjan sprakk rétt fyrir hálf níu og sú seinni um hálftíma síðar. Fimm manns fórust í sprengingunum; fimm hermenn í leyfi frá störfum sínum á Norður-Írlandi og einn óbreyttur borgari. Sextíu og fimm manns særðust. Árið 1975 voru þrír ungir karl- menn og ein kona dæmd fyrir sprengju- tilræðið og fengu öll lífstíðardóma. Árið 1977 var reynt að áfrýja málinu en því var hafnað. Það var ekki fyrr en tíu árum síðar, 1987, sem málið var tekið upp aftur á grundvelli nýrra sönn- unargagna. Hinn 18. október 1989 voru dómarnir yfir fjórmenningunum, sem gengu undir nafninu Guildford-fjórmenn- ingarnir, úrskurðaðir ógildir og kallaðir „stórkostleg réttarafglöp“. Fjórmenn- ingarnir voru látnir lausir eftir fjórtán ára veru í fangelsi. Síðar voru þrír lögreglumenn ákærðir fyrir að hafa falsað sönnunargögn við rannsókn sprenginganna í Guildford en málinu gegn þeim var vísað frá. ÞETTA GERÐIST: 5. OKTÓBER 1974 Tvær krár sprengdar í Guildford

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.