Fréttablaðið - 05.10.2011, Page 46
5. október 2011 MIÐVIKUDAGUR38
Samtök um sorg og sorgarviðbrögð
NÝ DÖGUN
www.nydogun. is www.sorg. is nydogun@nydogun. is
Vetrarstarf Nýrrar dögunar hefst n.k fimmtudagskvöld
6. október kl 20:30 í safnaðarheimili Háteigskirkju.
Sr. Svavar Stefánsson ræðir um sorg vegna sjálfvígs.
Stuðningshópur byrjar í kjölfarið.
Allir velkomnir.
3. nóv. Makamissir. Stuðningshópar byrja í kjölfarið.
8. des. Sorgin og jólin. Samvera í Grafarvogskirkju.
Samverurnar verða í safnaðarheimili Háteigskirkju kl. 20:30.
Húsið opnar kl 19:00 þar sem fólk getur komið, spjallað og fengið kaffi.
Sorg vegna Sjálfsvígs
Vetrardagskrá 2011
Myndsímtöl
á 0 kr. í dag!
Þú greið
ir f.
sím
an
r. o
g a
ðr
a
no
tk
un
s
kv
. v
er
ðs
kr
á
á
si
m
in
n.
is
Ef þú ert með GSM hjá
Símanum hringir þú
myndsímtöl innan kerfis
Símans fyrir 0 kr. í dag.
Magnaður miðvikudagur!
Konukvöld
Feminin Fashion
Fimmtudaginn 6. október 17.30 – 21.30
Léttar veitingar í boði allt kvöldið.
Stelpurnar frá naglaskólanum Professionails
verða á staðnum og kynna það nýjasta í
naglatískunni í haust.
Feminin Fashion styður Krabbameinsfélagið
í baráttunni gegn krabbameini hjá konum
og býður Bleiku slaufuna til sölu.
25%
AFSLÁTTUR AF ÖLLUM VÖRUM
Glaðningur í frá Nivea, Professionails,
Vivag og Feminin Fashion í boði fyrir allar
þær sem versla hjá okkur þetta kvöld.
Tískuverslunin Feminin Fashion stærðir 40 – 56. | Bæjarlind 4 | 201 Kópavogur | Sími: 544-2222 | www.feminin.is
„Ég myndi segja að bókin fjallaði
meira um samfélagið á Íslandi en
um Björk sjálfa,“ segir norski verð-
launahöfundurinn Mette Karlsvik,
en bók hennar, Bli Björk, kemur út
í Noregi í byrjun nóvember.
Útgáfa bókarinnar hefur
vakið athygli, en fyrir helgi tók
blaðamaður norska dagblaðsins
Dagbladet viðtal við Björk á Íslandi
og greindi henni frá útgáfu bókar-
innar. Söngkonan virtist koma af
fjöllum og sagði: „Þetta er óþægi-
legt. Sérstaklega þar sem ég vissi
ekkert um bókina. Ég vona að það
komi fram að þetta sé skáldskapur
og alls ekki sannleikurinn.“
Ástæðan fyrir því að bók Karls-
vik er um Björk og Ísland er að
hún hefur ávallt heillast af landi
og þjóð. Hún segist bera virðingu
fyrir tónlistarmanninum Björk og
finnst samfélagið hér merkilegt.
„Ég er enginn brjálaður elti-
hrellir og stóð satt að segja í þeirri
trú að Björk vissi um bókina,“
segir Karlsvik í samtali við Frétta-
blaðið, en greinin í Dagbladet kom
rithöfundinum í mikið uppnám.
„Ég vil að það komi skýrt fram að
þetta er skáldskapur frá upphafi til
enda. Mig langaði að búa til nýja
bókmenntastefnu og skrifa skáld-
sögu um fræga manneskju sem er
á lífi í dag. Það sló mig hins vegar
þegar Björk sagði að sér fyndist
þetta óþægilegt en hún þarf ekk-
ert að óttast. Þetta er skáldskapur
og mitt listaverk.“
Karlsvik dregur í efa að
Björk hafi ekki vitað af útgáfu
bókarinnar. Hún kveðst til að
mynda hafa verið í miklu sambandi
við föður hennar, Guðmund Gunn-
arsson, en upphaflega átti hann að
vera aðalpersóna bókarinnar. „Það
var hins vegar fyrir tilstilli yfir-
manns míns hjá forlaginu sem ég
ákvað að hafa bókina um Björk,“
segir Karlsvik, sem hafði samband
við Guðmund, aðallega vegna þess
að hún hafði áhuga á stéttarfélög-
um, en Karlsvik er í stjórn rithöf-
undasambands Noregs. „Ég hringdi
í hann og spurði hvort ég mætti
nota persónu hans í skáldsögu.
Hann samþykkti það og ég flaug til
Íslands og tók við hann nokkur við-
töl, og afraksturinn af þeim hefur
birst í norskum fjölmiðlum en þau
voru aðallega um stéttarfélög og
pólitík.”
Karlsvik segist aftur hafa haft
samband við Guðmund þegar hún
breytti viðfangsefninu yfir í Björk,
auk þess sem hún hafði samband
við aðstoðarmann hennar, James
Merry. „Við skiptumst á nokkrum
tölvupóstum og ég stóð í þeirri trú
að þau samskipti hefðu farið fram
með vitund Bjarkar. Þess vegna
trúi ég tæpast að Björk hafi ekki
vitað af útgáfu bókarinnar.“
alfrun@frettabladid.is
LÖGIN VIÐ VINNUNA
„Þetta er voðalega gott gengi miðað
við litla íslenska stuttmynd,“ segir
Jón Gústafsson.
Stuttmyndin In a Heartbeat,
sem Jón framleiddi og konan hans,
Karolina Lewicka, leikstýrði, hefur
verið sýnd víða um heim að undan-
förnu við góðar undirtektir. Mynd-
inni hefur verið boðið á fjórtán
hátíðir til þessa og meðal annars
hefur hún verið sýnd á Ítalíu, í Kan-
ada og Úrúgvæ þar sem hún var
valin besta dramatíska stuttmynd-
in. Sömuleiðis fékk hún aukaverð-
laun á Columbus-hátíðinni í Ohio.
In a Heartbeat verður sýnd á
alþjóðlegri barnamyndahátíð í
Chicago í næsta mánuði og einnig
er búið að bjóða Jóni til Indlands í
nóvember. „Hún er að fara á allar
topp tíu barnamyndahátíðirnar,“
segir Jón, sem tekur þó fram að
myndin hafi ekki verið gerð sér-
staklega fyrir börn. Hún fjallar um
níu ára stelpu sem öðlast kjark til
að rísa upp á móti ódæðismönnum.
Með hlutverk stelpunnar fer Elín
Perla Stefánsdóttir. In a Heartbeat
var frumsýnd á Alþjóðlegri kvik-
myndahátíð í Reykjavík í fyrra og
var í framhaldinu tilnefnd til Eddu-
verðlaunanna.
Aðspurður segir Jón viðbrögðin
við myndinni hafa verið miklu betri
en hann þorði að vona. „Ég var sátt-
ur við að hún færi bara á hátíðina
í Reykjavík, ekki meira en það,
en nú er hún búin að vinna þessi
verðlaun.“
Síðasta mynd Jóns, Reiði guð-
anna, sem fjallar um gerð myndar-
innar Bjólfskviðu, var einnig sýnd
á fjölda kvikmyndahátíða og vann
hún til margra verðlauna. - fb
Boðið á fjórtán erlendar hátíðir
VINSÆL MYND Stuttmyndin In a Heart-
beat sem Jón Gústafsson framleiddi
hefur fengið mjög góðar viðtökur.
„Þetta verður stærsti staðurinn, í fermetrum
talið,“ segir Friðrik Weisshappel, athafna-
maður í Kaupmannahöfn. Hann opnar
þriðja Laundromat-staðinn sinn í höfuðborg
Danmerkur þann 6. desember en þá á hann
einmitt afmæli, verður 44 ára.
Staðurinn stendur á sólríku horni á Gam-
mel Kongevej 96 en þar var áður að finna
teppabúð. Friðrik fékk húsnæðið afhent á
laugardaginn og hefur síðan þá unnið daga
og nætur við að rífa niður og byggja aftur
upp. „Vinnudagarnir hafa verið sirka 17
tímar síðustu þrjá eða fjóra daga,“ segir
Friðrik en hann auglýsti meðal annars eftir
nýju starfsfólki á nýja staðinn í Frétta-
blaðinu. „Af hverju ekki? Ef einhvern langar
til að koma út og gera eitthvað skemmtilegt.
Ég þarf að ráða 25 manns,“ segir Friðrik
og bætir því við að honum finnist líka bara
gaman að gera auglýsingar.
Laundromat-staðirnir eru því orðnir fjórir
en Friðrik segir að staðurinn við Austur-
stræti í miðborg Reykjavíkur gangi mjög
vel, þeir séu meðal annars búnir að kaupa
eldhúsið á La Primavera til að anna eftir-
spurn. „Þetta gengur vel, það er ekkert
launungarmál og lykilatriðið að þessu er
gott starfsfólk og góður endurskoðandi, ég
fæ ekki að kaupa neitt nema hún sé búin að
gefa mér leyfi.“ Friðrik vildi hins vegar ekk-
ert tjá sig um hvort staðurinn við Gammel
Kongevej væri sá síðasti. „Ég bara veit það
ekki, ef það kæmi æðisleg staðsetning við
Islandsbrygge þá er aldrei að vita. Maður
á aldrei að hætta ef manni finnst eitthvað
skemmtilegt.“ - fgg
Opnar nýjan stað á afmælisdaginn
STÓRTÆKUR Friðrik Weisshappel er að opna fjórða
Laundromat-staðinn og þann þriðja í Kaupmannahöfn við
Gammel Kongevej. Hann segist geta gert þetta vegna þess
hversu heppinn hann sé með starfsfólk og endurskoð-
anda. FRÉTTABLAÐIÐ/STEFÁN
METTE KARLSVIK: SKRIFAR BÓK MEÐ BJÖRK Í AÐALHLUTVERKI
Ég er enginn eltihrellir
HEILLUÐ AF LANDI OG ÞJÓÐ Norski rithöfundurinn Mette Karlsvik ætlar að senda
Björk eintak af Bli Björk og vonast til að hún sjái sér fært að lesa hana.
Hver er skoðun þín á bókinni?
„Ég hef ekki lesið hana svo það er erfitt að vera
með skoðun. Ég get ekki neitað því að það er
erfitt að fara ekki í varnarstöðu þegar fólk skrifar
heila bók um mann og manns nánustu, einhver
sem maður hefur aldrei hitt.“
Karlsvik segir að hún hafi verið í sambandi
við meðal annars Guðmund Gunnarsson föður
þinn og James aðstoðarmann þinn, og að þeir
hafi vitað af ritun bókarinnar. Vissir þú ekkert
um bókina áður en blaðamaður frá Dagbladet
greindi frá því fyrir helgi?
„Hún tók tvisvar viðtal við hann um verkalýðs-
mál og pólitík og þess lags, ekki um
persónulega hluti eða fjölskylduna. Hún
hitti hann í þriðja sinn og bað hann að
lesa handritið sem hann vildi ekki gera,
þannig að það er ekki satt. Hún hafði
samband við James þar sem hún
sagðist vera að skrifa bók um Ísland og
pólitík, ekki persónulega bók um mig
og fjölskyldu mína. Hún sendi mjög
pólitískan spurningalista sem ég svaraði
ekki þar sem ég var að einbeita mér að
tónlist á því tímabili. Þannig að mér finnst
hún ekki hafa verið heiðarleg.“
SVAR FRÁ BJÖRK
Fréttablaðið hafði samband við Björk sem gaf eftirfarandi svör.
„Ég hlusta voða mikið á Johnny
Cash og Bob Marley. Reyndar
ratar Emilíana Torrini mjög oft
á fóninn líka.“
Eyrún Ósk Jónsdóttir, leikstjóri myndar-
innar Hrafnar, sóleyjar og myrra.