Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 2

Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 2
13. október 2011 FIMMTUDAGUR2 FÓLK Hörmulegar afleiðingar olíumengunarslysa urðu kveikj- an að nýrri fatalínu Kolbrúnar Ýrar Gunnarsdóttur. Útkoman er svartir kjólar sem minna á olíu- blauta fugla. „Dýrin fara auðvitað mjög illa út úr þessu og í framhaldi ákvað ég að nota fugla sem fyrirmynd að línunni,“ segir Kolbrún. Fatalínan hefur hlotið mikið lof við skólann Istituto Europeo di Design Barcelona þar sem Kol- brún er að hefja lokaár í fata- hönnun. - rve / sjá Allt í miðju blaðsins Fetar ótroðnar slóðir: Olíuslys kveikja að kvenfatalínu Hlynur, er kalt á toppnum? „Það var allavega kalt á botninum.“ Heimsmetabók Guinness hefur staðfest að Arctic Trucks hafi sett hraðamet á leið sinni yfir Suðurskautslandið í fyrra. Hlynur Bjarki Sigurðsson var í leiðangrinum. Erlingur E. Halldórsson rit- höfundur er látinn, 81 árs að aldri. Erling- ur fædd- ist 26. mars 1930 á Arn- gerðareyri við Ísafjarð- ardjúp. For- eldrar hans voru Hall- dór Jónsson, bóndi þar, og eiginkona hans, Steinunn Jónsdóttir. Erlingur nam forspjallsvís- indi og norrænu við Háskóla Íslands og leiklistarfræði í París og Vín árin 1952 til 1959. Erlingur starfaði sem leik- stjóri og rithöfundur í Reykja- vík frá 1960 og setti upp fjölda sviðsverka. Þá var hann mikil- virkur þýðandi og hlaut til dæmis Íslensku þýðingarverð- launin í ár fyrir þýðingu sína á Gleðileiknum guðdómlega eftir Dante. Erlingur Hall- dórsson látinn Vilhjálmur Þór Vilhjálmsson hársnyrtir er látinn, 58 ára að aldri. Vilhjálmur fæddist í Reykjavík 6. janúar 1953. Foreldrar hans voru Valgerð- ur Oddný Ágústsdóttir og Vilhjálm- ur Pálsson. Vilhjálm- ur lauk hárskeranámi frá Iðn- skólanum í Reykjavík. Hann hafði nýlega opnað rakarastofu sína á nýjum stað í Grafar- holti með tónleikum nokkurra listamanna. Hann var einnig kunnur fyrir störf að félags- og líknarmálum, meðal annars fyrir JC-hreyfinguna, og sem knattspyrnudómari. Í lífsreynslusögu sinni, Meðan hjartað slær, sem kom út fyrir þremur árum, fjallaði Vilhjálmur meðal annars um baráttu dóttur sinnar, Ástu Lovísu, við ólæknandi krabba- mein. Vilhjálmur lætur eftir sig þrjú uppkomin börn. Vilhjálmur rakari látinn STJÓRNSÝSLA Steingrímur J. Sigfús- son fjármálaráðherra segir mjög óheppilegt ef ekki ríkir traust og friður um ráðningar í lykilemb- ætti í stjórnsýslunni. Þetta kom fram á opnum fundi efnahags- og viðskiptanefndar Alþingis í gær- morgun, þar sem Steingrímur var spurður um afstöðu sína til ráðn- ingar Páls Magnússonar sem for- stjóra Bankasýslu ríkisins. Steingrímur sagðist hafa kall- að eftir upplýsingum og rökstuðn- ingi fyrir ráðningunni frá stjórn Bankasýslunnar. „Það var niður- staða okkar að það væri eðlilegt fyrsta skref af okkar hálfu í mál- inu og við bíðum eftir því að fá þau gögn frá Bankasýslunni áður en ákvörðun verður tekin um eitt- hvað frekar,“ sagði Steingrímur. Hann kvaðst vænta svara mjög fljótlega, en auk upplýsingabeiðn- innar frá ráðuneytinu hefðu ósátt- ir umsækjendur um stöðuna óskað eftir rökstuðningi fyrir ráðning- unni. Hann sagði ófriðinn og van- traustið sem ríkti vegna ráðning- arinnar vera sjálfstætt mál að tak- ast á við, óháð því hvað mönnum fyndist nákvæmlega um viðkom- andi ráðningu. - sh Fjármálaráðherra um ráðningu Páls Magnússonar: Kallar eftir rökstuðningi STEINGRÍMUR J. SIGFÚSSON PÁLL MAGNÚSSON SLYS Stúlka á átjánda ári lést í bílslysi á Fagradal á níunda tím- anum í gærmorgun. Stúlkan ók fólksbíl sem hafnaði framan á vörubíl á veg- inum, sem var mjög háll. Með stúlk- unni í bíln- um var jafn- aldra hennar og var sú flutt til Reykjavíkur með sjúkraflugi en reyndist ekki alvarlega slösuð. Ökumaður vörubílsins var flutt- ur lítið meiddur á heilsugæslu á Egilsstöðum. Hin látna hét Þorbjörg Henný Eiríksdóttir, fædd 3. mars 1994 og gekk í Menntaskólann á Egils- stöðum. Þar var kennsla felld niður í gær. Bænastund var haldin í Eskifjarðarkirkju í gær- kvöldi. - sh Mikil hálka á veginum: Stúlka lést í slysi á Fagradal ÞORBJÖRG HENNÝ EIRÍKSDÓTTIR SAMFÉLAGSMÁL „Ég er auðvitað ekki sátt við þetta. Það er farið að líða á mánuðinn og mínir peningar farn- ir að minnka verulega. Mig nauð- synlega vantar þennan pening sem þau höfðu engan rétt til að taka af mér,“ segir Lilja Rós Sigurðardótt- ir, 23 ára gömul einstæð móðir sem segir farir sínar ekki sléttar eftir samskipti við stjórnsýslu Reykja- víkurborgar. Lilja er með barn á leikskóla í borginni og borgar rúmar 17 þús- und krónur á mánuði fyrir leik- skólaplássið. Um síðustu mánaða- mót var henni hins vegar sendur reikningur upp á rúmar 32 þúsund krónur sem var greiddur sjálfkrafa af bankanum hennar. Um mis- tök var að ræða en þegar Lilja bað Skóla- og frístundasvið borgarinn- ar um að bakfæra reikninginn fékk hún þau svör að það væri ekki hægt. „Ég fékk þau svör að þau gætu ekki lagað þetta fyrir mig heldur yrði þetta leyst þannig að næsti reikningur yrði upp á rúmar 2 þús- und krónur. Ég fengi sem sagt end- urgreitt með lægri reikningi um næstu mánaðamót,“ segir Lilja og heldur áfram: „Þessi lausn hins vegar gerir afskaplega lítið fyrir mig. Ég þarf þennan pening núna til að lifa út þennan mánuð, ég má ekki við neinu svona. Ég hef 30 þúsund krónur til ráðstöfunar við hver mánaðamót þegar ég er búin að borga mína reikninga og þarna er búið að taka af mér pening fyrir tvær vikur mánaðarins. Og þegar ég spyr hvað ég eigi eiginlega að gera, svelta síðari hluta mánaðar- ins? Þá fæ ég þau svör að það sé ekkert sem þau geti gert í því.“ Lilja segir að henni hafi liðið mjög illa í kjölfar þessara sam- skipta og haft miklar áhyggjur af því hvernig eigi nú að láta enda ná saman í mánuðinum. Hún segist eiga góða að en að það séu takmörk fyrir því hversu mikið fjölskylda sín geti hjálpað sér. Fréttablaðið spurðist fyrir um málið hjá skóla- og frístundasviði borgarinnar og fékk þau svör að um misskilning væri að ræða. „Það er ekkert mál að hún fái þetta bak- fært óski hún eftir því,“ sagði Sig- rún Björnsdóttir upplýsingafulltrúi og bætti við: „Það kannast enginn við að hafa hafnað þessari beiðni hennar og því ætti hún bara að hafa samband og gefa upp bankaupplýs- ingar. Þá væri hægt að ganga frá þessu.“ Í kjölfarið hafði Lilja samband við borgina aftur en fékk sömu svör og í fyrra skiptið. „Ekkert endur- greitt en næsti reikningur lækk- aður. Þetta voru bara sagðar regl- ur hjá þeim sem ekki væri hægt að fara fram hjá,“ segir Lilja. magnusl@frettabladid.is Tölvan segir nei við móður í fjárhagsklípu Einstæð móðir var fyrir mistök rukkuð um of há leikskólagjöld. Stjórnsýsla borgarinnar hefur ekki fengist til að bakfæra reikninginn þrátt fyrir óskir konunnar og sér hún nú ekki fram á að peningar sínir endist út mánuðinn. LILJA ÁSAMT SYNI SÍNUM Lilja segist ekki mega við því að missa þær 15 þúsund krónur sem mistök við rukkun vegna leikskólagjalda kostuðu hana. Leiðrétting um næstu mánaðamót komi of seint. RÁÐHÚSIÐ Misvísandi upplýsingar fengust frá skóla- og frístundasviði borgarinnar um hvort hægt væri að bakfæra reikninginn sem var sendur til Lilju. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA SAMFÉLAGSMÁL „Ég hata þig ekki. Ég vil miklu frekar elska þig.“ sagði Sigurður Guðmundsson, 88 ára, við þýska kafbáta- hermanninn Horst Koske þegar þeir hitt- ust í sýningarskála Íslands á bókamess- unni í Frankfurt í gær. Koske, sem er 84 ára, er eini eftirlifandi meðlimur áhafnar þýska U300 kafbáts nasista sem skaut á og sökkti Goðafossi út af Garðskaga hinn 10. nóvember 1944. Sigurður er einn af þeim fjórum úr áhöfn Goðafoss sem enn eru á lífi. Sigurður og Koske voru leiddir saman þegar bók Óttars Sveinssonar, Útkall – árásin á Goðafoss, var kynnt. Óttar segir stundina hafa verið tilfinningaþrungna. ,,Þetta var óendanlega hjartnæm stund. Ég held að meirihluti þeirra sem sátu í salnum þéttskipuðum hafi fellt tár,“ segir Óttar. Sigurður og Koske féllust í faðma og tárfelldu sjálfir þegar þeir hittust fyrir framan salinn. Goðafoss átti ekki langt í land þegar þýski kafbáturinn skaut á hann. Skip Eim- skipafélagsins var hluti af skipalest á leið frá Bandaríkjunum. Tuttugu og fimm Íslendingar fórust og nítján björguðust. Jafnframt týndu nokkrir breskir skip- brotsmenn lífinu. Árásin á Goðafoss er talin vera eitt mesta áfall íslensku þjóðar- innar í seinni heimsstyrjöldinni. - jmi Komst lífs af þegar Goðafoss sökk og hitti í gær eftirlifandi skipverja kafbátsins sem sökkti skipinu: Féllust í faðma og felldu tár þegar þeir hittust KOSKE OG SIGURÐUR Það var tilfinningarík stund þegar Sigurður og Koske hittust. Þeir féllust í faðma og felldu báðir tár. MYND/ÞORSTEINN J. SLYS Alvarlegt vinnuslys varð við höfnina á Djúpavogi rétt fyrir klukkan þrjú í gær. Slysið varð þegar verið var að losa salt úr skipi og krani sem notaður var til verksins féll á mann sem var við vinnu á hafnarbakkanum. Maður- inn lést við höggið. Hinn látni var rúmlega fertug- ur. Lögreglan á Eskifirði fer með rannsókn málsins í samstarfi við Vinnueftirlit ríkisins. - mþl Krani féll á mann: Lést í vinnuslysi á Djúpavogi Hundagerði í Laugardal Hverfisráð Laugardals segir í svari til umhverfissviðs borgarinnar sem vildi fá tillögur um mögulega staði fyrir hundagerði í Laugardalnum að ráðið leggi til svæði milli tennishallar TBR og Fjölskyldu- og húsdýragarðsins. REYKJAVÍK SPURNING DAGSINS

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.