Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 12

Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 12
13. október 2011 FIMMTUDAGUR12 Borgartún 26 » 105 Reykjavík Hafnarstræ 102 » 600 Akureyri Sími: 545 3200 » Fax: 545 3201 sala@maritech.is » www.maritech.is Gold Enterprise Resource PlanningSilver Independent Software Vendor (ISV) TM - tryggir þér samkeppnisforskot Sveitarstjóri í áskrift Sveitarstjóri í áskrift er hagkvæm og þægileg nýjung sem gefur kost á sveitarfélagalausnum í mánaðarlegri áskrift. Greitt er mánaðarlegt gjald fyrir hugbúnað, uppfærslu- og þjónustugjöld. Innifalið er vistun á gögnum, afritun, öryggisvarnir og SQL gagnagrunnur. Síminn sér um vistun og afritun á gögnum í fullkomnu tækniumhverfi. Maritech býður Microsoft Dynamics NAV sveitarfélagalausnir til sveitarfélaga af öllum stærðum. Maritech tryggir þér samkeppnisforskot. » Fjárhagur » Áætlanir » Viðskiptamenn » Lánardrottnar Það sem fylgir: Ný og sveigjanleg lausn FRÉTTASKÝRING: Framvinduskýrsla ESB um aðildarferli Íslands Önnur framvinduskýrsla fram- kvæmdastjórnar ESB um aðildarferli Íslands var gefin var út í gær. Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, kynnti skýrsluna og sagði við það til- efni að ferlið gengi vel fyrir sig og skýrslan undirstrikaði jákvæða þróun mála. Ekki kemur á óvart að Ísland er talið uppfylla mörg aðildarskilyrði, þá sérstaklega þau sem lúta að málum sem heyra undir samninginn um Evrópska efnahagssvæðið og Schengen-sam- starfið. Varðandi pólitísk skilyrði aðildar segir skýrslan að Ísland uppfylli kröfur ESB, en þó er sérstaklega vikið að því að Ísland hafi styrkt regluverk sitt gegn spillingu með því að sam- þykkja sáttmála Sameinuðu þjóðanna gegn spillingu, auk þess sem unnið hafi verið gegn ýmis konar hagsmunaárekstrum í stjórnsýsl- unni. Þá hafi margir dómarar verið skipaðir eftir endurbættum reglum þar um, en um það fjallaði ein af helstu athugasemdunum í fram- vinduskýrslunni í fyrra. Varðandi efnahagsskilyrði segir í skýrslunni að Ísland eigi að geta staðið sig innan reglu- verks ESB, að því gefnu að framhald verði á umbótum til styrktar efnahagslífinu. Þegar hafi margt unnist til að ná efnahagslegum stöð- ugleika sem sé undirstaða hagvaxtar en þó sé skuldastaða fyrirtækja og heimila og atvinnu- leysi áhyggjuefni, sem og gjaldeyrishöftin, sem gangi í berhögg við lög ESB. Loks eru talin upp erfiðustu álitamálin í áframhaldandi samningaviðræðum og kemur varla á óvart að þar eru tiltekin sjávarútvegur, landbúnaður, hvalveiðar og tollar. Næsta samningalota milli Íslands og ESB hefst í Brussel í næstu viku, þar sem tveir samningakaflar verða opnaðir, en næsta lota eftir það hefst 19. desember. thorgils@frettabladid.is Jákvæð þróun í stuttum skrefum milli ára Timo Summa, sendiherra ESB á Íslandi, segir margt hafa unnist í aðildar- ferlinu á milli ára og erfitt sé að nefna eitthvert eitt atriði öðrum fremur. „Það má frekar tala um mörg stutt skref í rétta átt,“ sagði Summa aðspurður. „Það var ekkert meiriháttar, enda bjuggumst við ekki við því þar sem Ísland uppfyllir þegar stóran hluta af skilyrðunum með aðild sinni að Evrópska efnahagssvæðinu. Inntur eftir því hvort andstaða við ESB-aðild, sem mælist í skoð- anakönnunum hérlendis, hefði áhrif á viðhorf innan ESB til viðræðna við Ísland sagði Summa að svo væri ekki. „Við höfum séð mörg slík tilfelli áður, til dæmis í Svíþjóð í aðdraganda þjóðaratkvæðagreiðslunnar þar. Það jákvæða er þó að sex af hverjum tíu Íslendingum segjast vilja fræðast frekar um ESB og tveir þriðju vilja ljúka samningaferlinu og fá að taka upplýsta ákvörðun á þeirri for- sendu. Þá erum við viss um ágæti þeirrar ákvörðunar Alþingis að auka upplýsingagjöf til almennings, til dæmis með því að opna upplýsingavef um málið og styrkja bæði andstæðinga og fylgismenn aðildar til að koma sínum rökum á framfæri. Svo er ESB líka að hefja upplýsingagjöf þar sem við munum meðal annars skipuleggja fundaferð um landið þar sem við munum svara því sem fólk vill vita um Evrópusambandið. Þar eru þarfirnar að mörgu leyti allt aðrar en hér á höfuðborgarsvæðinu.“ Hann segir að umræðan hefði getað verið virkari hingað til, en hún sé að komast af stað fyrir alvöru núna. ESB muni hins vegar ekki taka þátt í umræðunum sjálfum. „Það sem við getum gert er að útvega upplýsingar, en ríkisstjórnin, stjórnmálaflokkarnir, félagasamtök og almenningur þurfa svo að taka við og ræða málið áfram.“ Jákvæð þróun í stuttum skrefum SENDIHERRANN Timo Summa kynnir framvinduskýrslu framkvæmda- stjórnar ESB um Ísland. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA Evrópusambandið færði Serbíu í gær upp um flokk í aðildarferlinu. Stefan Füle, stækkunarstjóri ESB, lýsti því þá yfir að framkvæmdastjórnin mæltist til þess að samningaviðræður yrðu hafnar, en þó ekki fyrr en samskiptum við Kosovo yrði breytt til betri vegar. Serbía hefur um árabil fikrast nær ESB, meðal annars með því að taka virkari þátt í að handsama meinta stríðsglæpamenn sem leynst hafa innan landamæranna. Boris Tadic, forseti landsins, fagnaði yfirlýsingu ESB þó að ekki væru tilteknar neinar tímasetningar um upphaf viðræðna. Tadic sagði hana til marks um umbæturnar sem Serbar hefðu lagt í á síðustu árum. Kosovo er nú undir alþjóðlegri stjórn, eftir að héraðið sagði sig úr lögum við Serbíu árið 2008. Serbar vilja ekki viðurkenna sjálfstæði Kosovo, og þó að ESB hafi ekki krafist þess af Serbum er engu að síður skýlaus krafa sam- bandsins að samskipti þar á milli verði góð. Hefja viðræður við Serbíu, en með skilyrðum þó MÓTMÆLI „Við viljum ekki ganga í ESB“ stendur á þessu spjaldi sem einn mótmælenda hélt á á mótmælafundi í Belgrad í gær.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.