Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 18
13. október 2011 FIMMTUDAGUR18
Æskudýrkun í íslensku atvinnu-
lífi á árunum fyrir hrun var mikil
og einsleitni stjórnendahópa var
að margra mati orðin til vansa.
Eftir hrun má hins vegar segja
að aftur hvarf hafi orðið þar sem
eldri og reyndari stjórnendur tóku
á ný við stjórn fyrirtækja.
Þetta eru helstu niðurstöður
nýlegrar meistararitgerðar Unu
Eyþórsdóttur, vinnumarkaðssér-
fræðings og framkvæmdastjóra
rágjafaþjónustunnar Framför, en
hún segir í viðtali við Fréttablaðið
að margt megi læra af feilsporum
síðustu ára.
„Það sem sótti á mig var spurn-
ingin hvort fólk á vinnumarkaði
væri með eins konar skilastimpil
á sér þegar það næði ákveðnum
aldri. En ég spurði mig: Af hverju
getur unga fólkið ekki ákveðið að
læra af hinum eldri og eldra fólk-
ið af þeim yngri? Af hverju reyn-
um við ekki að þroskast saman.
Við virðumst alltaf vera að gera
sömu mistökin.“
Þessar vangaveltur Unu urðu
grunnurinn að rannsókn þar sem
hún leitaðist meðal annars við að
svara því hvort miðaldra stjórn-
endur, yfir 50 ára aldri, séu í betri
stöðu á vinnumarkaði nú en fyrir
hrun. Í þeim tilgangi gerði hún
úttekt á lífaldri og starfsaldri
stjórnenda 50 stærstu fyrirtækja
landsins síðustu 20 ár.
„Í stuttu máli er svarið já,“
segir Una. „Núna er sóst eftir
meiri reynslu og gömlu góðu gild-
in eru farin að skipta máli á ný.“
Una segir mikla æskudýrkun
hafa ríkt í íslensku atvinnulífi á
árunum fyrir hrun. Fyrirtæki
fylltust af ungum, áköfum og
metnaðarfullum karlmönnum sem
komust fljótt í stjórnunarstöður.
„Þeir komu þarna inn ungir og
testósteróndrifnir, en áttuðu sig
ekki á því að þeir réðu til sín aðra
unga menn sem hugsuðu alveg
eins og komu úr sama reynslu-
heimi. Þarna vantaði víðtækari
menntun og reynslu til þess að
koma í veg fyrir einsleitni.“
Því til áréttingar vísar Una
til rannsóknar sem gerð var
árið 2006 þar sem dregin var
upp mynd af hinum dæmigerða
íslenska stjórnanda sem sýndi
mikla einsleitni hvað varðaði bak-
grunn, skoðanir, hugmyndafræði
og framtíðaráætlanir.
„Stjórnendur voru alltof eins-
leitir, en við höfum í raun aldrei
gert nóg af því að blanda saman
ólíkum hópum, það sýnir bara vel
hvað við lifum að mörgu leyti í
þröngum ramma.“
Niðurstöður Unu eru þær að
meðalaldur stjórnenda hefur
hækkað í kjölfar hrunsins þar
sem eldra og reyndara fólk hefur
tekið við stjórnartaumum í aukn-
um mæli, meðal annars í bönk-
unum.
„Ef það er einhver einn lær-
dómur sem má draga af þessu,“
segir Una, „er það sá, að við verð-
um að vera óhrædd við að blanda
saman fólki á ólíkum aldri með
ólíka reynslu í hópa til þess að
koma í veg fyrir þá einstefnu og
einsleitni sem um hríð var alls-
ráðandi hjá okkur.“
thorgils@frettabladid.is
Stjórnendur voru
alltof einsleitir, en
við höfum í raun aldrei gert
nóg af því að blanda saman
ólíkum hópum.
UNA EYÞÓRSDÓTTIR,
VINNUMARKAÐSSÉRFRÆÐINGUR
Æskudýrkun úthýst og
gömlu gildin tóku við
Rannsókn Unu Eyþórsdóttur leiðir í ljós að miðaldra stjórnendur eiga nú aftur
upp á pallborðið. Una segir að einsleitni í stjórnendahópum sé skaðleg og
vænlegra sé að blanda saman fólki á mismunandi aldri og með ólíka reynslu.
REYNSLAN AFTUR ORÐIN KOSTUR Samkvæmt rannsókn Unu Eyþórsdóttur hefur
meðalaldur stjórnenda í íslensku atvinnulífi hækkað eftir hrun. FRÉTTABLAÐIÐ/GVA
Afkoma MP banka hefur batnað
stórum frá því að nýir eigendur
tóku við í aprílmánuði síðastliðn-
um og er stefnt að því að afkom-
an muni enn batna jafnt og þétt
og verði jákvæð á síðasta árs-
fjórðungi.
Þetta kemur fram í tilkynningu
frá bankanum í tilefni af birt-
ingu árshlutauppgjörs fyrir fyrri
helming ársins, en þar segir jafn-
framt að nú þegar á þriðja fjórð-
ungi hafi afkoma verið umfram
áætlanir og jákvæð í september-
mánuði.
Í uppgjörinu kemur fram að
bankinn tapaði 560 milljónum
króna, sem skýrist helst af því
að hefðbundin starfsemi bank-
ans, til að mynda lánastarfsemi,
lá niðri að mestu á meðan undir-
búningur að hlutafjáraukningu
stóð yfir.
Sigurður Atli Jónsson, forstjóri
bankans, segir í tilkynningunni
að bæði innri og ytri aðstæður
séu vissulega krefjandi.
„Hins vegar er ánægjulegt
að sjá að við erum að koma MP
banka hratt út úr byrjunarstöð-
unni. Við erum að stofna til fjölda
nýrra viðskiptasambanda við fyr-
irtæki og einstaklinga, útlána-
safn okkar er að stækka sam-
kvæmt áætlunum og við erum í
leiðandi stöðu á verðbréfamark-
aði,“ segir Sigurður Atli. - þj
MP banki birtir fyrsta árshlutauppgjörið eftir eigendaskipti og hlutabréfaaukningu:
Segja afkomu batna jafnt og þétt
BATNANDI AFKOMA Sigurður Atli Jónsson, bankastjóri MP banka, segir útlitið gott
þrátt fyrir að aðstæður séu ekki eins og best verður á kosið.
nánar á visir.is
780 VAR FJÖLDI ÞINGLÝSTRA LEIGUSAMNINGA fyrir íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu í september.
Greining Íslandsbanka spáir 2,5
prósenta hagvexti á þessu ári
og 2,2 prósenta hagvexti á því
næsta. Þetta kemur fram í nýrri
þjóðhagsspá sem kynnt var á
Fjármálaþingi Íslandsbanka í
gær.
Í spánni segir að íslenska hag-
kerfið hafi verið að rétta sig við
eftir fjármálakreppuna. Hag-
vöxtur sé kominn á ný eftir sam-
drátt síðustu ára, fjárfesting,
neysla og útflutningur fari vax-
andi og störfum sé að fjölga.
Þrátt fyrir það séu kerfislæg
vandamál mörg í íslensku hag-
kerfi. Skuldsetning heimila,
fyrirtækja og hins opinbera sé
mikil, virkni fjármálamarkaðar-
ins takmörkuð og traust á stofn-
unum lítið. Þá sé atvinnuleysi
stórt vandamál og titringur á
erlendum mörkuðum áhyggju-
efni. Við þessar aðstæður sé lík-
legt að hagvöxtur verði hægur
næstu misserin.
Í spánni er gert ráð fyrir að
einkaneysla muni halda áfram
að aukast á næsta ári en þó ögn
hægar en á þessu ári. Þá er því
spáð að kaupmáttur launa muni
vaxa og störfum fjölga.
Því er spáð að fjárfesting á
þessu ári verði 13 prósent af
landsframleiðslu en fari vax-
andi. Hlutfallið er borið saman
við 20 prósenta meðaltal í þró-
uðum ríkjum. Helstu ástæður
lítillar fjárfestingar eru nefndar
mikil skuldsetning, gjaldeyris-
höft, óvissa og tortryggni í garð
erlendra fjárfesta ásamt óvissu
um framtíð kvótakerfisins.
Loks er gert ráð fyrir að verð-
bólguskot síðustu mánaða hafi
náð hámarki og að verðbólga
muni hjaðna hratt á næsta ári.
Greiningin spáir því svo að Seðla-
bankinn muni halda stýrivöxtum
óbreyttum um sinn og að gjald-
eyrishöft muni áfram tryggja
stöðugleika krónunnar. - mþl
Þjóðhagsspá Greiningar Íslandsbanka:
Spá hægum hag-
vexti næstu misseri
Meiri Vísir.
FRÉTTIR VIÐSKIPTI ÍÞRÓTTIR LÍFIÐ UMRÆÐAN
Meira sjónvarp, meira útvarp, meiri fréttir,
meiri upplýsingar, meiri umræða, meira líf,
meiri íþróttir, meiri virkni, meira úrval.
Þú færð meira af öllu á vísi.
Á Veiðivísi, nýjum veiðivef Vísis, getur þú nálgast helstu
fréttir, ítarlega umfjöllun og gagnlegar upplýsingar um
veiði, hvort heldur sem er stangveiði eða skotveiði.
Fylgstu með í sumar og nýttu þér allt sem Vísir hefur
upp á að bjóða.
Alla virka daga kl. 18.00
Disovery Channel er fáanleg í ALLT FRÆÐSLA TOPPUR LANDSBYGGÐ