Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 20

Fréttablaðið - 13.10.2011, Blaðsíða 20
20 13. október 2011 FIMMTUDAGUR FRÁ DEGI TIL DAGS greinar@frettabladid.is FRÉTTABLAÐIÐ Skaftahlíð 24, 105 Reykjavík SÍMI: 512 5000, ritstjorn@frettabladid.is FRÉTTASTJÓRAR: Arndís Þorgeirsdóttir arndis@frettabladid.is, Kristján Hjálmarsson, kristjan@frettabladid.is Trausti Hafliðason trausti@frettabladid.is og Höskuldur Daði Magnússon (dægurmál) hdm@frettabladid.is HELGAREFNI: Sigríður Björg Tómasdóttir sigridur@frettabladid.is MENNING: Bergsteinn Sigurðsson bergsteinn@frettabladid.is ALLT OG SÉRBLÖÐ: Roald Eyvindsson roald@frettabladid.is og Sólveig Gísladóttir solveig@frettabladid.is ÍÞRÓTTIR: Sigurður Elvar Þórólfsson seth@frettabladid.is LJÓSMYNDIR: Pjetur Sigurðsson pjetur@frettabladid.is FRAMLEIÐSLUSTJÓRI: Kolbrún Ingibergsdóttir kolbrun@frettabladid.is ÚTGÁFUFÉLAG: 365 miðlar ehf. STJÓRNARFORMAÐUR: Ingibjörg S. Pálmadóttir FORSTJÓRI OG ÚTGÁFUSTJÓRI: Ari Edwald RITSTJÓRI: Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is AÐSTOÐARRITSTJÓRI: Steinunn Stefánsdóttir steinunn@frettabladid.is Fréttablaðið kemur út í 90.000 eintökum og er dreift ókeypis á heimili á höfuðborgarsvæðinu og Akureyri. Einnig er hægt að fá blaðið í völdum verslunum á landsbyggðinni. Fréttablaðið áskilur sér rétt til að birta allt efni blaðsins í stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Issn 1670-3871 Verum sýnileg, göngum saman upp á Skólavörðuholt undir kjörorðinu “Hreyfing til heilsu” 17.00 - Safnast verður saman á Lækjartorgi 17.20 - Upphitun fyrir gönguna 17.30 - Gengið upp Bankastræti og Skólavörðustíg* 18.05 - Göngufólki er boðið að hlusta á stutt orgelverk í Hallgrímskirkju, Haukur Guðlaugsson spilar. * Hægt er að koma inn í gönguna við Bergstaðastræti. Tökum fjölskylduna með. Gigtarfólk, gigtargangan er í dag 13. október kl. 17.30 HALLDÓR Nýlega hrökk ég upp við vondan draum um að selja ætti Perluna í Reykjavík. Þangað hef ég um árabil farið sem leið- sögumaður með erlenda ferðamenn til að þeir geti á einum stað kynnst borginni, fengið sér í gogginn, keypt minjagripi, séð Sögusýningu og heillast af fögru útsýni ásamt því að fá upplýsingar um allt sem fyrir augu ber á fimm tungumálum. Mér skilst að 600.000 gestir komi í Perluna á ári. Mætti ætla að það væri nokkurs virði. Perlan er kennileiti í Reykjavík, fögur bygging í sjálfu sér, völundarsmíð sem nú verður niðurskurði nýrra herra að bráð sem hafa sett á hana verðmiða, rúma tvo millj- arða króna. Hvað ætli Sigurboginn myndi kosta? Eða dettur einhverjum í hug að Par- ísarbúar leggist svo lágt að selja hann? Þyki tilfinningasemi ótæk rök skulum við athuga fjármálahliðina. Perlan er nauðsyn- legur þáttur í ört vaxandi og gjaldeyris- skapandi ferðaþjónustu og framlag borgar- innar til móttöku á erlendum ferðamönnum. Hvaða ábatasömu starfsemi aðra sjá menn fyrir sér í Perlunni? Varla neina sem stenst lög að óbreyttu. Nema það sé satt sem maður heyrir að húsinu verði breytt í geymslu til að spara fasteignagjöld? Þá væri perlum kastað fyrir svín. Sömu aðilar hafa leigt og annast rekstur- inn með miklum sóma frá því að Perlan var tekin í notkun 1991. Á sama tímabili hafa verið níu borgarstjórar í Reykjavík. Veit- ingamennirnir segja mér að látið sé eins og salan á húsinu komi þeim ekki við. Þó eiga þeir tvö ár eftir af leigutíma sínum og hafa borgað leiguna skilvíslega í 20 ár. Mætti ætla að slíkt viðskiptasamband væri ein- hvers virði. Ég er kannski mest undrandi á því að ferðaþjónustan andmæli ekki þeim hug- myndum hástöfum að selja Perluna hæst- bjóðanda. Sjálfur má ég ekki til þess hugsa að eitthvert bílaumboð eða banki kaupi hana undir starfsemi sína því að ég ótt- ast að aðgangi almennings að henni verði lokað. Á að kasta Perlu fyrir svín? Ferða- þjónusta Friðrik Haraldsson leiðsögumaður Ég er kannski mest undrandi á því að ferða- þjónustan andmæli ekki þeim hugmyndum hástöfum að selja Perluna hæstbjóðanda. S tjórnendur Landspítalans taka þessa dagana óvinsælar og erfiðar ákvarðanir um sparnað í rekstri spítalans. Tilkynnt hefur verið að St. Jósefsspítala í Hafnarfirði verði lokað um áramótin og sjúklingunum dreift á aðrar deildir spítalans. Þá hefur verið ákveðið að loka réttargeðdeildinni á Sogni í Ölfusi og flytja starfsemina að Kleppi í Reykjavík. Þessar ákvarðanir verður að skoða í ljósi þeirrar kröfu, sem áfram er gerð til Landspítalans í fjárlagafrumvarpinu að kostn- aður við reksturinn lækki. Stjórn- endur spítalans hafa áður sagt að til þess gæti komið að loka yrði óhagkvæmustu einingunum. Sömuleiðis er gott að hafa í huga þá staðreynd að þrátt fyrir margvíslegar skattahækkanir duga tekjur ríkisins enn ekki fyrir útgjöldunum. Það er engin önnur leið en að halda áfram að skera ríkisútgjöldin niður. Það er sömuleið- is óraunhæft að halda að það sé hægt án þess að meira verði sparað í kostnaði Landspítalans, svo stór hluti er hann af útgjöldum ríkisins. Viðbrögðin láta þó ekki á sér standa. Samtök sunnlenzkra sveit- arfélaga mótmæla lokuninni á Sogni harðlega, annars vegar með vísan til þess að sparnaður af aðgerðinni sé óviss og hins vegar á þeim forsendum að störf glatist á Suðurlandi. Í gær hófu þingmenn Suðurkjördæmis (sem í hinu orðinu vilja náttúrlega allir stefna að jafnvægi í ríkisfjármálum) upp sama kjördæmissönginn í þingsal. Bæjarstjórn Hafnarfjarðar mótmælir líka; að þessu sinni ekki með þeim rökum að störf hverfi úr Hafnarfirði (sem hún hefur þó gert áður þegar málefni St. Jósefsspítala hafa verið til umræðu) heldur að spítalinn sé hluti af nærþjónustu í Hafnarfirði og sam- komulag hafi verið um að starfsemi verði haldið áfram í bænum. Það eru gild rök gegn flutningi ef það er raunin að ekkert sparist við hann. Þó verða menn að gera ráð fyrir að stjórnendur Land- spítalans hafi eitthvað fyrir sér í því að hagkvæmara og öruggara verði að reka réttargeðdeildina á Kleppi. Það er líka slæmt ef spítalanum í Hafnarfirði er lokað í trássi við fyrra samkomulag. En það samkomulag hefur hugsanlega verið gert í von um að ekki þyrfti að skera meira niður hjá Landspítalanum – og hefur þá verið óraunsætt. Ef peningarnir eru ekki til, eru þeir ekki til. Það verður að nýta það fé sem Landspítalinn hefur úr að spila sem bezt og þá er ekki frágangssök að sjúklingar úr Hafnar- firði þurfi að liggja á spítala í Reykjavík. Sveitarfélögin á Suðurlandi segja að lokun á Sogni gangi þvert á byggðastefnu stjórnvalda. Fjölgun ríkistarfsmanna á Suðurlandi um meira en helming áratuginn fyrir hrun var hluti þeirrar ábyrgðar- lausu útþenslu ríkisrekstrarins sem við súpum enn seyðið af. Það er ekkert annað hægt en að vinda ofan af þeim ákvörðunum – þótt það sé að sjálfsögðu sársaukafullt. Bæjaryfirvöld í Hafnarfirði og í sveitarfélögum á Suðurlandi líta sjálfsagt ekki á það sem hlutverk sitt að koma með aðrar tillögur að sparnaði hjá Landspítalanum. En auðvitað er það þannig að verði deildum í Hafnarfirði og í Ölfusi ekki lokað þarf að loka og segja upp fólki einhvers staðar annars staðar. Af því að peningana vantar. Hreppapólitík á ekki að ráða í hagræðingaraðgerðum Landspítal- ans, hvorki á höfuðborgarsvæðinu né á landsbyggðinni. Hreppapólitík á ekki að stjórna hagræðingaraðgerðum hjá Landspítalanum. Peningana vantar Ólafur Þ. Stephensen olafur@frettabladid.is SKOÐUN Bókagjöfin Einhverjum hefur þótt kapítalisminn liggja undir óþarfa ámæli eftir efnahagshrunið og sumir hafa fundið sig knúna til að stíga fram honum til varnar. Þessa dagana er verið að dreifa 700 eintökum af bókinni Peningar, græðgi og guð. Hvers vegna kapítal- isminn er lausnin en ekki vandamálið. Það eru stjórnmálamenn, blaðamenn, prestar, álitsgjafar og fleiri sem verða þess heiðurs aðnjótandi að fá bókina til eignar. Skafti Harðarson ritar línu með gjöfinni, þar sem hann segir bókina hafna auknum ríkisafskipt- um sem lausn vandamálanna. Bókin vitnar í Biblíuna og ýmsa trúarleiðtoga og þykir Skafta hún taka öðrum klass- ískum ritum um ágæti kapítalismans fram, einmitt vegna siðferðisboð- skaparins. Hugmyndastríðið er hafið. Hreppapólitíkin Landspítalinn þarf að skera niður, líkt og aðrar ríkisstofnanir, og fagfólk þar metur það svo að rétt sé að færa réttargeðdeild frá Sogni í Ölfusi og að Kleppi. Þingmenn Suðurkjör- dæmis eru þessu ósammála. Þeir leggja reyndar ekki faglegt geðheilbrigðismat skoðun sinni til grundvallar, heldur því að kjósendur þeirra muni mögulega missa vinnuna. Um reiðarslag fyrir íbúana sé að ræða. Einhverjir hefðu metið þetta út frá hagsmunum sjúklinganna. Fær Tryggvi Þór vinnu? Tryggvi Þór Herbertsson vandaði um við fjármálaráðherra á fundi efnahags- og viðskiptanefndar í gær. Þráinn Bert- elsson, einn nefndarmanna, spurði Steingrím við það tækifæri hvort það gæti létt honum glímuna við efnahagshrunið að ráða Tryggva Þór sem efnahags- ráðunaut ríkisstjórnarinnar. Steingrímur taldi það óþarfa, enda væri Tryggvi svo velviljaður að hann gæfi ókeypis góð ráð í sífellu. kolbeinn@frettabladid.is
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72
Blaðsíða 73
Blaðsíða 74
Blaðsíða 75
Blaðsíða 76
Blaðsíða 77
Blaðsíða 78
Blaðsíða 79
Blaðsíða 80

x

Fréttablaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.