Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 25

Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 25
FIMMTUDAGUR 13. október 2011 25 ERU EINS Engir tve ir einsta klingar e ru nákvæ mlega e ins. Þett a skiljum við hjá V erði og þ ess vegn a viljum við kynn ast viðskipta vinum o kkar bet ur. Við læ rum að þ ekkja þá svo að þ eir fái ör ugglega þá þjónu stu sem þeim he ntar. Við viljum sjá til þ ess að þ ú sért m eð réttu trygging arnar, h vort sem um er a ð ræða l íf- og he ilsutrygg ingu, trygging u fyrir h úsið, bíl inn eða fyrirtæki ð. VIÐ VILJ UM KYN NAST ÞÉ R BETUR Fyrir skömmu birtust þau uggvænlegu tíðindi á for- síðu Fréttablaðsins að fjórð- ungur fimmtán ára drengja gæti ekki lesið sér til gagns. Tæp 25% – þrefalt hærra hlut- fall en meðal stúlkna á sama aldri. Hrikalegt! hugsaði ég með sjálfum mér þegar ég las fréttina. Og ég spurði sjálfan mig í framhaldinu; af hverju er lesskilningur barnanna svona slakur? Böndin bárust fljótt að bók- inni – eða réttara sagt að fjar- veru bókarinnar. Fjarveru bókarinnar úr lífi alltof margra ungmenna nútímans. 2. Á þessu herrans ári 2011 hafa tvær kannanir verið kynntar, hverra niðurstöður vöktu illu heilli minni athygli og við- brögð en efni stóðu til. Ég tel brýnt að vekja athygli á þeim hér því að þær flytja váleg tíð- indi fyrir alla þá sem vilja veg bókarinnar sem mestan. Í raun alveg skelfileg tíðindi. Önnur er könnun sem menntamálaráðu- neytið stóð fyrir í febrúar síð- astliðnum og leiddi í ljós að hátt í fjórðungur nemenda í 5., 6. og 7. bekk grunnskóla les engar aðrar bækur en skólabækur. Til samanburðar má geta þess að árið 1968 lásu 11% barna á aldrinum 10-15 ára aldrei bækur sér til ánægju, þannig að fjöldi bóklausra barna hefur rösklega tvöfaldast á tíma- bilinu. Ástandið er enn verra hjá eldri krökkum. Í rannsókninni „Ungt fólk 2010“, sem gerð var í öllum framhaldsskólum lands- ins haustið 2010, voru ítarleg- ir spurningalistar lagðir fyrir rúmlega ellefu þúsund ung- menni. Rannsóknin leiddi í ljós að lestur er á hröðu undanhaldi hjá framhaldsskólanemum. Þeim hefur fjölgað verulega sem verja ekki neinum tíma í bóklestur utan skóla. Í sams konar könnun árið 2007 sögðust 33,5% stráka ekki eyða neinum tíma í bóklestur, nú er þessi tala komin í 45,4%. Sem sagt, á aðeins þremur árum hefur framhaldsskóla- strákum sem lesa bækur sér til yndis og afþreyingar fækkað um heil 12 prósentustig. Hlut- fallslega aukningin er hins vegar 35% – strákum á þessum aldri sem aldrei lesa bók hefur fjölgaði um ríflega þriðjung á þremur árum! Sama þróun er hjá framhaldsskólastúlkum. Árið 2007 litu tæp 26% fram- haldsskólastelpna aldrei í aðrar bækur en skólabækur en í fyrra var þetta hlutfall komið í rúm 40%. Það er að segja; kven- kyns lesendum á þessum aldri fækkaði um 14 prósentustig á þriggja ára tímabili. Hlutfalls- lega aukningin er hins vegar 55%. Ég endurtek: stelpum á þessum aldri sem aldrei lesa bók utan skóla fjölgaði um 55% á aðeins þremur árum! Þetta er grafalvarleg þróun og hraði hennar vægast sagt hrollvekj- andi. Ef bókin væri dýr væri hún sett á lista dýra í útrýming- arhættu. 3. Rannsókn sem Brynhildur Þórarinsdóttir og Þóroddur Bjarnason kynntu í fyrra og gerð var á meðal 15-16 ára nema fyrir fáeinum misserum leiddi meðal annars í ljós þá staðreynd að aukin menntun foreldra jók líkur á bóklestri barnanna, en – og hér rekur mann í rogastans – því ríkara sem heimilið var, því minni líkur voru á því að barnið læsi, óháð menntun foreldranna. Með öðrum orðum: „Börn efn- aðra foreldra eru ólíklegri til að lesa bækur daglega, jafnvel þótt foreldrarnir séu menntaðir ... Þessu eru þveröfugt farið í Evr- ópu þar sem bættur efnahag- ur skilar sér í auknum lestrar- áhuga.“ Of mikil veraldleg gæði, of mikið af peningum, of mikið af tækjum og græjum og munaði, of mikið af öllu – já, ofgnóttin dregur sem sagt úr líkum á að barnið sökkvi sér í hinn óefnis- lega heim bókanna. Það er ömurleg þróun ef veraldlegar allsnægtir leiða til bóklegrar fátæktar. 4. Líkurnar á því að ungmenni sem les aldrei bækur verði virkur lesandi þegar árin líða eru hverfandi. Og það sem meira er; fólk sem hefur aldrei notið bóka er ólíklegt til að hvetja eigin börn til að lesa. Þannig getur bóklausum fækkað ár frá ári, áratug eftir áratug, kynslóð eftir kynslóð. Að lokum sitja örfáir útgefend- ur og rithöfundar með hend- ur í skauti eða eru að sinna svo þröngum hópi fólks að það nægir engum til viðurværis. Bókin visnar og deyr – því að það verða engir lesendur eftir til að vökva hana með augum sínum. 5. Hvað ber okkur að gera? Jú, við verðum að efla bóklestur á Íslandi frá upphafi skólagöngu. Með öllum ráðum. Allir dagar verða að vera dagur bókarinn- ar. Til dæmis má hugsa sér að á hverjum degi yrði ein kennslu- stund frá byrjun grunnskóla til loka framhaldskóla helguð yndislestri, þar sem krakkarn- ir læsu bók að eigin vali, hvort sem það væru unglingabækur eða Íslendingasögur, klassísk- ar skáldsögur eða nútímaverk, reyfarar eða rómantík, nú eða ljóðabækur. Ekki bækur sem aðrir velja fyrir þau, ekki fyrir próf – bara til að opna fyrir þeim nýja veröld; heim orðsins, vídd skáldskaparins. Ef krakkar og unglingar læra ekki að meta töfra bókarinnar frá fyrstu tíð mun bókin deyja út, hún verður aflóga risaeðla, flöktandi skuggi. Og þá er ég ekki eingöngu að tala um hina hefðbundnu pappírsskruddu heldur líka raf- og hljóðbækur – því að þetta hrap í lestri snýst ekki um á hvaða formi skáld- skap er komið til skila, hrapið snýr að sjálfum skáldskapnum, innihaldinu en ekki umbúð- unum. Ég legg til að skapaður verði samráðsvettvangur fulltrúa ríkis og borgar, sveitarfélaga, skóla, útgefenda og rithöf- unda, þar sem lagðar verða línur fyrir allsherjar átak í þágu lestrar og bóka. Þetta er stríð í þágu menningar okkar, í þágu framtíðar. Og umfram allt verða heimilin í landinu að sýna bókinni hollustu. Njótum bóka og kennum börnunum okkar að meta töfra- veröld þeirra. Galdur bókar- innar má ekki glatast. Berjumst fyrir bókina! Berjumst fyrir bókina! Menning Sindri Freysson rithöfundur Ég legg til að skapaður verði samráðs- vettvangur fulltrúa ríkis og borgar, sveitarfélaga, skóla, útgefenda og rithöf- unda, þar sem lagðar verða línur fyrir allsherjar átak í þágu lestrar og bóka. Þetta er stríð í þágu menn- ingar okkar, í þágu framtíðar.

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.