Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 28
13. október 2011 FIMMTUDAGUR28
Elskulegur eiginmaður minn, faðir
okkar, tengdafaðir, afi og langafi,
Björn Andrés Eiðsson
húsasmíðameistari
Sléttuvegi 15,
lést á Hjúkrunarheimilinu Eir föstudaginn 7. október.
Útför hans fer fram frá Bústaðakirkju föstudaginn
14. október kl. 13.00.
Sigurrós Gísladóttir
Svava Björnsdóttir Sigurbjörn Björnsson
Eiður Björnsson María M. Guðmundsdóttir
Gísli Björnsson Anna D. Tryggvadóttir
Anna Björnsdóttir Róbert B. Agnarsson
Sigurrós Birna Björnsdóttir Guðmundur Kr. Hallgrímsson
afabörn og langafabörn
Innilegar þakkir færum við öllum þeim
sem sýndu okkur hlýhug og samúð við
andlát og útför ástkærs föður okkar,
tengdaföður, afa og langafa,
Þorgils Jóhannssonar
Sóleyjarima 11.
Ingibjörg Ýr Þorgilsdóttir Pétur Christiansen
Jóhann Þorgilsson Hrefna Ólafsdóttir
Guðlaugur Gauti Þorgilsson Linda Sif Bragadóttir
Styrmir Þorgilsson María Vera Gísladóttir
barnabörn og barnabarnabarn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem
sýndu okkur hlýhug og samúð vegna
andláts og útfarar ástkærrar eiginkonu,
móður, tengdamóður og ömmu,
Helgu Þóru Jakobsdóttur
áður til heimilis Drekavöllum 18,
Hafnarfirði.
Böðvar Guðmundsson
Guðmundur Böðvarsson
Jakob Már Böðvarsson
Gísli Ölvir Böðvarsson Þóra Sigurjónsdóttir
Hlíf Böðvarsdóttir Kristmann Larsson
og barnabörn
Systir okkar,
Þorbjörg Sigurðardóttir
Austurbrún 6, Reykjavík,
andaðist á Borgarspítalanum miðvikudaginn
28. september.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey.
Systkini hinnar látnu.
Okkar ástkæra eiginkona, móðir,
tengdamóðir og amma,
Herdís Jónsdóttir
kennari, Auðbrekku 29, Kópavogi,
lést á heimili sínu að kvöldi þriðjudagsins 4. október.
Jarðarförin fer fram frá Digraneskirkju föstudaginn
14. október kl. 15.00.
Halldór Snorri Gunnarsson
Berglind Björk Halldórsdótti Hannes Þór Baldursson
Svanhildur Sif Halldórsdóttir Hjalti Geir Pétursson
Lovísa Lára Halldórsdóttir Ársæll Rafn Erlingsson
Gunnar Már Halldórsson
og ömmubörnin þrjú.
Innilegar þakkir til allra fyrir auð-
sýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls
og jarðarfarar elskulegs eiginmanns,
föður, tengdaföður,
afa og langafa,
Þorvaldar Björnssonar
kennara og organista.
Sérstaklega þökkum við starfsfólki á
hjúkrunarheimilinu Skjóli 5. hæð og Drafnarhúsi í
Hafnarfirði, fyrir góða umönnun á liðnum árum.
Kolbrún Steingrímsdóttir
Steingrímur Þorvaldsson Helga Sjöfn Guðjónsdóttir
Guðrún Þorvaldsdóttir Guðmundur E. Finnsson
Hólmfríður Þorvaldsdóttir Gunnar Sigurðsson
Björn Þorvaldsson Anna Gunnarsdóttir
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær eiginmaður minn, besti vinur,
faðir og stjúpfaðir,
Ingvar Ólafsson
tölvunarfræðingur,
Sæbólsbraut 24, Kópavogi,
verður jarðsunginn frá Kópavogskirkju föstudaginn
14. október kl. 13.00.
Þeim sem vilja minnast Ingvars er bent á styrktarsjóð
fyrir Einstök börn, www.einstokborn.is.
Kolbrún Olgeirsdóttir
Kristín Sóley Ingvarsdóttir
Kristófer Guðni Ingvarsson
Ásgeir Bjarni Ingvarsson
Ester Brynjólfsdóttir
Örn Brynjólfsson Birgitta Ásbjörnsdóttir
Askja, Hekla og Katla
Guðmundur Þór Brynjólfsson Ragnheiður Benediktsdóttir
Innilegar þakkir sendum við öllum
þeim sem sýndu okkur hlýhug og
samúð vegna andláts og útfarar
elskulegs eiginmanns, föður,
tengdaföður, afa, langafa
og langalangafa,
Jóns Trausta Kárasonar
fyrrum aðalbókara Pósts og síma,
sem lést 24. október sl. Við þökkum sérstaklega
starfsfólki á Hjúkrunarheimilinu Eir
fyrir mikla alúð og vinsemd.
Bjarghildur Stefánsdóttir
Gylfi Jónsson Þórunn Ásgeirsdóttir
Birgir Jónsson Dagrún Þórðardóttir
Kári Jónsson Hermína Hermannsdóttir
barnabörn, barnabarnabörn og barnabarnabarnabarn.
Finnski hönnuðurinn Pia
Holm hélt fyrirlestur og
vinnustofunámskeið í
Hönnunarsafni Íslands um
liðna helgi. Pia er sjálf-
stætt starfandi hönnuður í
Finnlandi og hannar meðal
annars munstur fyrir Mari-
mekko. Hún segir náttúruna
veita sér mestan innblástur
og Ísland hafi komið sér á
óvart.
„Ég hafði klisjukennda
hugmynd um Ísland og sá
fyrir mér fornt sögusam-
félag,“ segir hún hlæjandi,
en þetta var fyrsta heim-
sókn hennar til landsins.
„Birtan kom mér skemmti-
lega á óvart og landslag-
ið, sem er allt öðruvísi en
í Finnlandi. Þar eru til
dæmis engir svartir steinar
eins og ég sá á ströndinni á
Snæfellsnesi,“ útskýrir hún
hrifin.
Pia er lærður fatahönnuð-
ur en hefur að mestu unnið
við myndskreytingu bóka
og tímarita og munstur-
gerð. Árið 2006 sendi hún
munstur inn í samkeppni hjá
Marimekko sem var valið til
prentunar á rúmföt, dúka og
bakka. Hún segir það hafa
verið stóra tækifærið henn-
ar og nú prýða reglulega
munstur eftir hana heimil-
islínur Marimekko og fleiri
fyrirtækja.
Munstur Piu byggja á
sjálfstæðum „myndum“
frekar en símunstri. Hún
tekur ljósmyndir og skiss-
ar úti í náttúrunni áður
en hún vinnur munstrin í
klippimyndir og málar. „Ég
vil halda í það handgerða í
lokaútfærslunni, að pensil-
strokur sjáist og óregluleg
formin endurspegli hvaðan
þau koma.“
Finnskir textílhönnuð-
ir byggja á sterkri munst-
urhefð meðan prenthefð í
textíl á sér litla sögu hér á
landi. Pia segist hafa fundið
fyrir þessum mun á vinnu-
stofunámskeiðinu. „Ykkar
textílsaga byggir meira á
vefnaði og prjóni og ég fann
að ég var að kynna ólíkar
vinnuaðferðir en þátttak-
endur áttu að venjast. Það
var mjög skemmtilegt og
allir mjög áhugasamir. Ég
vona að ég hafi haft einhver
áhrif. Íslensku litirnir og
formin höfðu allavega áhrif
á mig sem munu örugglega
skila sér í verkum mínum.“
Heimasíða Piu er www.hap-
pydesign.fi.
heida@frettabladid.is
Heillaðist af haustlitum
VIÐ EIGIÐ VERK Verk finnska hönnuðarins Piu Holm hanga uppi á
Hönnunarsafni Íslands en hún hélt vinnustofunámskeið fyrir íslenska
textílhönnuði þar um liðna helgi. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Hundrað og fimmtíu ára
afmælis Bjarna Þorsteins-
sonar, tónskálds og þjóð-
lagasafnara, verður minnst á
föstudaginn með tónleikum í
Grafarvogskirkju.
Á tónleikunum munu hátt
á þriðja hundrað söngvara og
hljóðfæraleikara flytja lög
eftir Bjarna Þorsteinsson og
íslensk þjóðlög í fjölbreytt-
um útsetningum. Á meðal
flytjenda eru Kristín Ólafs-
dóttir þjóðlagasöngkona,
Hlöðver Sigurðsson tenór,
Jón Svavar Jósepsson bari-
tón, Voces Thules, Spilmenn
Ríkínis, Háskólakórinn undir
stjórn Gunnsteins Ólafsson-
ar, Flensborgarkórarnir tveir
undir stjórn Hrafnhildar
Blomsterberg og Skólakór
Kársness undir stjórn Þór-
unnar Björnsdóttur.
Þá er von á ævisögu
Bjarna Þorsteinssonar, sem
Viðar Hreinsson rithöfundur
skrifar. Bókin varpar ljósi á
starf Bjarna, en hann bjó og
starfaði í hálfa öld á Siglu-
firði. Bjarni safnaði þjóðlög-
um og samdi eigin tónlist.
Hann var einnig skeleggur
prestur og mikilvirkur bæj-
arstjórnarmaður og af mörg-
um kallaður „faðir Siglu-
fjarðar“.
Tónleikarnir eru haldn-
ir til styrktar Þjóðlagasetri
sr. Bjarna Þorsteinssonar á
Siglufirði og hefjast klukkan
20. - rat
Fagurt syngur svanurinn
MINNINGARTÓNLEIKAR Voces Thules koma fram á tónleikunum í
Grafarvogskirkju 14. október í tilefni af 150 ára afmæli Bjarna Þor-
steinssonar þjóðlagasafnara.