Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 29

Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 29
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457 Bjargar mannslífum PRIMEDIC hjartastuðtækið • Ávallt tilbúið til notkunar • Einfalt og öruggt • Einn aðgerðarhnappur • Lithium rafhlaða • Íslenskt tal Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16 NÝ SKÓSENDING Dragtadagar 20% afsláttur af öllum drögtum Pils og buxnadragtir í mörgum sniðum. Hægt að púsla saman að vild. Stærðir 36-52 Skoðið brot af úrvalinu á facebooksíðunni okkar LÉTT FYLLTUR OG FLOTTUR Teg. 198880 - létt fylltur og fl ottur í B C skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.995,- Laugavegi 178 - Sími: 551 3366 Opið mán.-fös. 10-18. Opið á laugardögum 10-14. Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf. www.misty.is MISTY er á ferð um landið, núna erum við á HÚSAVÍK hjá Önnu Rúnu í síma 895-6771 og á HÖFN hjá Hóffy í síma 861-6445, sjá nánar auglýsingu í staðarblöðum. Listh Notalegir svefnsófar og hægindastólar 12 mánaða vaxtalausar greiðslur Mammoth-tískuhátíðin í Minsk þótti merki- leg, en þar var sýndur klæðnaður sem í fæstum tilfellum var mjög hefðbundinn. Til dæmis bar þessi fyrirsæta afmyndaða vængi í tískusýningu Svetlönu Ivashinu. G uðlaugur Halldór Einars- son og Hrafnkell Flóki Kaktus Einarsson hafa þrátt fyrir ungan aldur nokkra reynslu af tónleikahátíðinni Iceland Airwaves sem haldin er í tólfta sinn um helgina. Saman skipa þeir hljómsveitina Captain Fufanu sem var stofnuð haustið 2008 og leikur nú í þriðja sinn á hátíðinni. „Ég held að þetta sé níunda Airwaves-hátíðin sem ég spila á,“ segir Hrafnkell hokinn af reynslu en hann hóf að leika á trompet með hljómsveitinni Ghostigital aðeins tíu ára að aldri. Báðir hafa strákarnir mjög flott- an fatasmekk en segjast þó ekki hafa sérstakan áhuga á tísku. „Nei, við erum ekkert að sitja á kaffihúsum og lesa tískublöð,“ segir Guðlaugur en Hrafnkell er fljótur að bæta við að þeir þekki samt til hönnuða. „Ég fæ fötin mín aðallega úr dán- arbúum, kannski ekki öll en ég fékk samt jakkann í alvöru úr dánarbúi,“ segir Guðlaugur um brúna köflótta frakkann sem hann klæðist. Hrafnkell verslar lítið á Íslandi. „Það er þá helst í Nolandi, ég er í gallabuxum þaðan en svo finnum við bara hitt og þetta hér og þar erlendis. Bara einhvers staðar úti á götu,“ segir Hrafnkell og bætir við að það séu flott föt í Weekday og Fred Perry-búðunum erlendis. Spurðir um færni sína við sauma- vélina segist Guðlaugur hafa breytt ýmsum flíkum og Hrafnkell segist leita til hans í von um að breyta fötum. „Nei,“ svara þeir samtímis innt- ir eftir því hvort þeir hafi ákveðið föt fyrir tónleika helgarinnar. „Við klæðum okkur ekkert öðruvísi á sviði. Það er helst að við klæðumst einhverju sem er einfalt að fara úr. Við afklæðumst samt bara þegar við erum í stuði en við erum alltaf í stuði svo þú getur lagt tvo og tvo saman,“ segir Hrafnkell. „Íslendingar eru svo fyndnir, þeir þurfa alltaf að gera sig fína þegar Yvan Rodic, betur þekktur sem „Facehunter“, kemur til lands- ins,“ segir Hrafnkell spurður hvort fólk klæði sig öðruvísi á hátíðinni. Þeir sem vilja hlýða á tónsmíð- ar drengjanna en eru ekki hand- hafar armbands á Iceland Air- waves-hátíðina geta séð þá á off-venue tónleikum á Kaffibarnum í kvöld. Einnig þeyta þeir skífum í versluninni Maníu frá klukkan þrjú til sex á laugardag. Sama kvöld klukkan tíu leika þeir á aðalsviðinu á Faktorý. Ghostigital kemur fram á undan þeim og James Murphy úr LCD Soundsystem spilar á sama sviði undir miðnætti. hallfridur@frettabladid.is Guðlaugur og Hrafnkell í Captain Fufanu velja föt fyrir sviðið með það að leiðarljósi að geta afklæðst. FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM Flíkur úr dánarbúum

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.