Fréttablaðið - 13.10.2011, Side 29
Sölufulltrúar: Jóna María Hafsteinsdóttir jmh@365.is 512 5473 Brynja Dan Gunnarsdóttir brynjadan@365.is 512 5465 Snorri Snorrason snorris@365.is 512 5457
Bjargar
mannslífum
PRIMEDIC hjartastuðtækið
• Ávallt tilbúið til notkunar
• Einfalt og öruggt
• Einn aðgerðarhnappur
• Lithium rafhlaða
• Íslenskt tal
Stórhöfða 25 • Sími 569 3100 • eirberg.is
Opið virka daga kl. 9 -18 og á laugardögum kl. 11 - 16
NÝ SKÓSENDING
Dragtadagar
20%
afsláttur af öllum drögtum
Pils og buxnadragtir í mörgum sniðum.
Hægt að púsla saman að vild.
Stærðir 36-52
Skoðið brot af úrvalinu á facebooksíðunni okkar
LÉTT FYLLTUR OG FLOTTUR
Teg. 198880 - létt fylltur og fl ottur í B C
skálum á kr. 4.600,- buxur í stíl á kr. 1.995,-
Laugavegi 178 - Sími: 551 3366
Opið mán.-fös. 10-18.
Opið á laugardögum 10-14.
Góð þjónusta - fagleg ráðgjöf.
www.misty.is
MISTY er á ferð um landið, núna erum við á
HÚSAVÍK hjá Önnu Rúnu í síma 895-6771 og
á HÖFN hjá Hóffy í síma 861-6445, sjá nánar
auglýsingu í staðarblöðum.
Listh
Notalegir svefnsófar og hægindastólar
12 mánaða vaxtalausar greiðslur
Mammoth-tískuhátíðin í Minsk þótti merki-
leg, en þar var sýndur klæðnaður sem í fæstum
tilfellum var mjög hefðbundinn. Til dæmis bar
þessi fyrirsæta afmyndaða vængi í tískusýningu
Svetlönu Ivashinu.
G
uðlaugur Halldór Einars-
son og Hrafnkell Flóki
Kaktus Einarsson hafa
þrátt fyrir ungan aldur
nokkra reynslu af tónleikahátíðinni
Iceland Airwaves sem haldin er í
tólfta sinn um helgina. Saman skipa
þeir hljómsveitina Captain Fufanu
sem var stofnuð haustið 2008 og
leikur nú í þriðja sinn á hátíðinni.
„Ég held að þetta sé níunda
Airwaves-hátíðin sem ég spila á,“
segir Hrafnkell hokinn af reynslu
en hann hóf að leika á trompet með
hljómsveitinni Ghostigital aðeins
tíu ára að aldri.
Báðir hafa strákarnir mjög flott-
an fatasmekk en segjast þó ekki
hafa sérstakan áhuga á tísku.
„Nei, við erum ekkert að sitja
á kaffihúsum og lesa tískublöð,“
segir Guðlaugur en Hrafnkell er
fljótur að bæta við að þeir þekki
samt til hönnuða.
„Ég fæ fötin mín aðallega úr dán-
arbúum, kannski ekki öll en ég fékk
samt jakkann í alvöru úr dánarbúi,“
segir Guðlaugur um brúna köflótta
frakkann sem hann klæðist.
Hrafnkell verslar lítið á Íslandi.
„Það er þá helst í Nolandi, ég er í
gallabuxum þaðan en svo finnum
við bara hitt og þetta hér og þar
erlendis. Bara einhvers staðar úti
á götu,“ segir Hrafnkell og bætir
við að það séu flott föt í Weekday
og Fred Perry-búðunum erlendis.
Spurðir um færni sína við sauma-
vélina segist Guðlaugur hafa breytt
ýmsum flíkum og Hrafnkell segist
leita til hans í von um að breyta
fötum.
„Nei,“ svara þeir samtímis innt-
ir eftir því hvort þeir hafi ákveðið
föt fyrir tónleika helgarinnar. „Við
klæðum okkur ekkert öðruvísi á
sviði. Það er helst að við klæðumst
einhverju sem er einfalt að fara úr.
Við afklæðumst samt bara þegar
við erum í stuði en við erum alltaf
í stuði svo þú getur lagt tvo og tvo
saman,“ segir Hrafnkell.
„Íslendingar eru svo fyndnir,
þeir þurfa alltaf að gera sig fína
þegar Yvan Rodic, betur þekktur
sem „Facehunter“, kemur til lands-
ins,“ segir Hrafnkell spurður hvort
fólk klæði sig öðruvísi á hátíðinni.
Þeir sem vilja hlýða á tónsmíð-
ar drengjanna en eru ekki hand-
hafar armbands á Iceland Air-
waves-hátíðina geta séð þá á
off-venue tónleikum á Kaffibarnum
í kvöld. Einnig þeyta þeir skífum í
versluninni Maníu frá klukkan þrjú
til sex á laugardag. Sama kvöld
klukkan tíu leika þeir á aðalsviðinu
á Faktorý. Ghostigital kemur fram
á undan þeim og James Murphy úr
LCD Soundsystem spilar á sama
sviði undir miðnætti.
hallfridur@frettabladid.is
Guðlaugur og Hrafnkell í Captain Fufanu velja föt fyrir sviðið með það að leiðarljósi að geta afklæðst.
FRÉTTABLAÐIÐ/VILHELM
Flíkur úr
dánarbúum