Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 30

Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 30
IQ Skólavörðustíg 8 Rock on Fallega Jólaskeiðin frá Ernu Verð 16.500,- ERNA Skipholti 3, s.552 0775, erna.is Fyrir árshátíðina Ótrúlegt úrval af glæsilegum árshátíðarkjólum stærðir 36-48 Ármúla 18, 108 Reykjavík Sími 511-3388 Opið mán-fös 9-18, lau 11-15 STÆKKUNAR- GLERSLAMPAR 20% afsláttur af öllum vörum frá Zhenzi, Crispy og Zeze Frá fimmtudegi til laugardags Nýjar og flottar vörur í hverri viku Stærðir 40-60. Flott föt fyrir flottar konur, Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460 www.belladonna.is HAUST Í SKARTHÚSINU Einnig mikið úrval af húfum, höttum, treflum, vettlingum, hnésokkum og legghlífum. Úrval af skartgripum fyrir árshátíðirnar. Ný sending af mjúku og hlýju hringtreflunum. Verð frá kr. 2.990,- Búningadeild Metropolitan-listasafnsins mun heiðra tvo tískuhönnuði á vormánuðum. Þá verður opnuð sýning á um áttatíu verkum Elsu Shiaparelli (1890-1973) frá þriðja til sjötta áratugar síðustu aldar og verkum Miucciu Prada frá níunda áratugnum og fram á þennan dag. Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fetar heldur betur ótroðnar slóðir í kvenfatalínunni Tragic Beauty, þar sem hörmulegar afleiðingar umhverfisslysa veittu innblástur. „Línan endurspeglar ljótleika og fegurðina í harmleik náttúru- spjalla sem er í raun bannað að viðurkenna. Fyrst varð ég heilluð af olíubrák á götu og hvernig hún endurspeglar alla regnbogans liti og ákvað að vinna með þessa feg- urð. Ég gróf dýpra og fékk áhuga á olíublautum fuglum. Það varð síðan til þess að ég uppgötvaði að olía veldur meiri umhverfisspjöll- um en mig hefði getað órað fyrir,“ segir Kolbrún og nefnir sem dæmi að á ári hverju fari sex milljónir tonna af olíu beint í sjóinn. „Í framhaldi ákvað ég að nota olíublauta fugla sem fyrirmynd að kvenfata- línunni minni. Um leið og fötin endurspegla þennan harm- leik er líka eitt- hvað fallegt við fuglana þegar þeir verða kolsvart- ir af olíunni.“ Línan hefur hlotið lof við Insti- tuto Europeo Design í Barcelona, þar sem Kolbrún er að hefja loka- árið í fatahönnun. Þangað hélt hún ásamt manni og börnum í fyrra og lokaði um leið versluninni KOW við Laugaveg. Kolbrún segist lengi hafa velkst í vafa um að flytja út en þegar ákvörðunin lá fyrir hafi eftirleikurinn verið auðveldur. „Barcelona er yndisleg borg og uppfull af tækifærum. Maðurinn minn er að læra grafíska hönnun og krakkarnir ánægðir með að læra katalónsku og eignast nýja vini,“ upplýsir hún og er ánægð í skólanum, þar sem reynsla af búð- arrekstri og textílmenntun hefur komið sér vel. „Ég lét gamlan draum rætast og sé ekki eftir því. Þessi skóli hefur algerlega kennt mér það sem ég þurfti á að halda.“ roald@frettabladid.is Olíublautir fuglar urðu kveikja að kvenfatalínu Afleiðingar umhverfisslysa urðu Kolbrúnu Ýri Gunnarsdóttur innblástur að nýrri kvenfatalínu, Tragic Beauty. Útkoman er kjólar sem minna á olíublauta fugla og varpa ljósi á fegurðina í ljótleikanum. Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir. Olíublautir fuglar eru fyrirmyndin að fatalínunni. MYND/MUSTAFA BURAK AYTEKIN

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.