Fréttablaðið - 13.10.2011, Page 30
IQ
Skólavörðustíg 8
Rock on
Fallega
Jólaskeiðin
frá Ernu
Verð 16.500,-
ERNA
Skipholti 3, s.552 0775, erna.is
Fyrir árshátíðina
Ótrúlegt úrval af glæsilegum
árshátíðarkjólum
stærðir 36-48
Ármúla 18, 108 Reykjavík
Sími 511-3388
Opið mán-fös 9-18, lau 11-15
STÆKKUNAR-
GLERSLAMPAR
20% afsláttur af
öllum vörum
frá Zhenzi, Crispy
og Zeze
Frá fimmtudegi til laugardags
Nýjar og flottar vörur
í hverri viku
Stærðir
40-60.
Flott föt fyrir
flottar konur,
Skeifunni 8 • 108 Reykjavík • Sími: 517-6460
www.belladonna.is
HAUST Í SKARTHÚSINU
Einnig mikið úrval af húfum,
höttum, treflum, vettlingum,
hnésokkum og legghlífum.
Úrval af skartgripum fyrir
árshátíðirnar.
Ný sending af mjúku og
hlýju hringtreflunum.
Verð frá kr. 2.990,-
Búningadeild Metropolitan-listasafnsins mun heiðra tvo
tískuhönnuði á vormánuðum. Þá verður opnuð sýning á um
áttatíu verkum Elsu Shiaparelli (1890-1973) frá þriðja til sjötta
áratugar síðustu aldar og verkum Miucciu Prada frá níunda
áratugnum og fram á þennan dag.
Kolbrún Ýr Gunnarsdóttir fetar
heldur betur ótroðnar slóðir í
kvenfatalínunni Tragic Beauty,
þar sem hörmulegar afleiðingar
umhverfisslysa veittu innblástur.
„Línan endurspeglar ljótleika
og fegurðina í harmleik náttúru-
spjalla sem er í raun bannað að
viðurkenna. Fyrst varð ég heilluð
af olíubrák á götu og hvernig hún
endurspeglar alla regnbogans liti
og ákvað að vinna með þessa feg-
urð. Ég gróf dýpra og fékk áhuga
á olíublautum fuglum. Það varð
síðan til þess að ég uppgötvaði að
olía veldur meiri umhverfisspjöll-
um en mig hefði getað órað fyrir,“
segir Kolbrún og nefnir sem dæmi
að á ári hverju fari sex milljónir
tonna af olíu
beint í sjóinn.
„Í framhaldi
ákvað ég að nota
olíublauta fugla
sem fyrirmynd
að kvenfata-
línunni minni.
Um leið og fötin
endurspegla
þennan harm-
leik er líka eitt-
hvað fallegt við
fuglana þegar þeir verða kolsvart-
ir af olíunni.“
Línan hefur hlotið lof við Insti-
tuto Europeo Design í Barcelona,
þar sem Kolbrún er að hefja loka-
árið í fatahönnun. Þangað hélt hún
ásamt manni og börnum í fyrra og
lokaði um leið versluninni KOW
við Laugaveg. Kolbrún segist lengi
hafa velkst í vafa um að flytja út
en þegar ákvörðunin lá fyrir hafi
eftirleikurinn verið auðveldur.
„Barcelona er yndisleg borg og
uppfull af tækifærum. Maðurinn
minn er að læra grafíska hönnun
og krakkarnir ánægðir með að
læra katalónsku og eignast nýja
vini,“ upplýsir hún og er ánægð í
skólanum, þar sem reynsla af búð-
arrekstri og textílmenntun hefur
komið sér vel. „Ég lét gamlan
draum rætast og sé ekki eftir því.
Þessi skóli hefur algerlega kennt
mér það sem ég þurfti á að halda.“
roald@frettabladid.is
Olíublautir fuglar urðu
kveikja að kvenfatalínu
Afleiðingar umhverfisslysa urðu Kolbrúnu Ýri Gunnarsdóttur innblástur að nýrri kvenfatalínu, Tragic
Beauty. Útkoman er kjólar sem minna á olíublauta fugla og varpa ljósi á fegurðina í ljótleikanum.
Kolbrún Ýr
Gunnarsdóttir.
Olíublautir
fuglar eru
fyrirmyndin að
fatalínunni.
MYND/MUSTAFA BURAK AYTEKIN