Fréttablaðið - 13.10.2011, Síða 62
13. október 2011 FIMMTUDAGUR38
tonlist@frettabladid.is
GULL-ÚRIÐ • MJÓDDINNI
Álfabakka 16 • sími 587 4100
Axel Eiríksson úrsmíðameistari
Stál
50 m
Öryggislás
18.900 kr.
14.980 kr.
Stál 50 m
Auka leðuról fylgir
19.900 kr.
Haustkvöld í Mjóddinni
Opið í kvöld
13. október
milli kl. 19 og 21
Við í Gull-úrinu
verðum með
kynningu á
sjálftrekktum
úrum og bjóðum
jafnframt fólki að
koma með gömul
úr til að láta líta
á þau.
Kl. 20 verður
stuttur fyrirlestur
um úr og
tímamæla.
Spennandi tilboð
og afslættir
meðan haustvikan
stendur.Léttar veitingar.
Allir velkomnir.
TÓNNINN GEFINN
Trausti Júlíusson
Svokölluð off-venue dagskrá hefur verið fastur hluti af Iceland
Airwaves undanfarin ár. Þessi dagskrá er til hliðar við aðaldag-
skrána og ólíkt henni er hún ókeypis og öllum opin. Það er löngu
uppselt á Airwaves en þessi aukadagskrá gefur þeim sem ekki náðu í
miða tækifæri til þess að sjá samt meirihluta þeirra tónlistarmanna
sem spila á hátíðinni.
Off-venue dagskráin er alltaf að verða betur og betur skipulögð
og metnaðurinn eykst ár frá ári. Í fyrra vakti dagskrá Reykjavík
Downtown Hostel mikla athygli. Það kemur sterkt inn núna líka en
Kex hostel fær samt titilinn fyrir flottustu dagskrána í ár. Í dag
spila þar t.d. Jóhann Jóhannsson, Mammút, Mugison, Lay Low og Of
Monsters and Men, en á morgun m.a. The Twilight Sad, Caged Ani-
mals og John Grant og sænska sveitin Dungen spilar á laugardaginn.
Það eru mörg hundruð tónleikar á off-venue
dagskránni, en hana má skoða í heild sinni
undir flipanum Schedule á Icelandairwaves.
is. Á meðal þeirra staða sem eru með feita
dagskrá alla dagana eru auk Kex og Reykja-
vík Downtown, Barbara, Dillon, Kaffibar-
inn, Reykjavík Backpackers, Hressó, Kaffi-
stofan á Hverfisgötu og Norræna húsið.
Norrænu listamennirnir eru eðlilega áber-
andi á síðastnefnda staðnum. Þar
spila t.d. Finnarnir í 22 Piste-
pirkko í dag klukkan 15.15 og
danska sveitin Dad Rocks á
morgun klukkan 13.30. Á meðal
sérstakra off-venue viðburða
má nefna Montreal-dagskrá í
Bíó Paradís á morgun kl. 14.00,
en þar spila Leif Vollebekk,
Karkwa og Random Recipe, og
kanadískan dag á Hressó á laug-
ardaginn kl. 13.00, en þar spila
fimm kanadískar sveitir.
Annars er off-venue dagskrá-
in viðameiri í ár en nokkru sinni
fyrr og engin leið að koma henni til
skila í svo stuttum pistli. Stór hluti
erlendu hljómsveitanna spilar off-
venue og flest öll íslensku nöfnin
og oft eru mörg góð tilboð í gangi á
sama tíma. Sá á kvölina sem á völ-
ina ...
Sá á kvölina ...
> PLATA VIKUNNAR
Björk - Biophilia
★★★★
„Björk gefur ekkert eftir á metnaðar-
fullri plötu.“ - tj
> Í SPILARANUM
Helgi Hrafn Jónsson - Big Spring
Real Estate - Days
Árstíðir - Svefns og vöku skil
Jens Lekman - An Argument with Myself
Reykjavík! - Locust Sounds
HELGI JÓNSSON REYKJAVÍK!
Sæti Flytjandi Lag
1 Of Monsters And Men ................................. Little Talks
2 Mugison ..........................................................Stingum af
3 Adam Levine / Christina Aguilera Moves Like Jagger
4 Elín Ey / Pétur Ben....................................Þjóðvegurinn
5 Jón Jónsson................................................Wanna Get It
6 Bubbi Morthens...........................................Slappaðu af
7 Adele ................................................ Set Fire To The Rain
8 Rihanna ......................................Cheers (Drink To That)
9 Red Hot Chili Peppers ...Adventures Of Rain Dance
10 Coldplay ................................................................Paradise
TÓNLISTINN
Vikuna 6. október - 12. oktober 2011
LAGALISTINN
Vikuna 6. október. - 12. oktober 2011
Þátttakendur í Lagalistanum: Bylgjan, FM957, Xið 977, Rás 2, Kaninn, tonlist.is. Verslanir í Tónlistanum: Skífan, Hagkaup, Penninn/Eymunds-
son, 12 tónar, Harpa, Smekkleysa plötubúð, Elkó, tonlist.is
Listarnir eru teknir saman fyrir Félag hljómplötuframleiðenda. Listarnir eru birtir í heild sinni á Vísir.is.
Stendur í stað síðan í síðustu viku Fellur um sæti síðan í síðustu viku Hækkar á lista síðan í síðustu viku Nýtt á lista
Skýringar:
Sæti Flytjandi Plata
1 Mugison ....................................................................Haglél
2 Of Monsters And Men ...........My Head Is An Animal
3 Helgi Björns & reiðm. vind. ......Ég vil fara uppí sveit
4 Jón Jónsson .................................................Wait For Fate
5 HAM ............................................ Svik, harmur og dauði
6 Bubbi ..............................................................Ég trúi á þig
7 Adele .................................................................................. 21
8 Úr söngleik Borgarleikhússins ..... Galdrakarlinn í Oz
9 Sóley .......................................................................We Sink
10 Gus Gus ......................................................Arabian Horse
FEIT DAGSKRÁ John
Grant spilar á Kex
Hostel á morgun
kl. 18.30. Kexið fær
titilinn fyrir flottustu
off-venue dagskrána
í ár.
Rokksveitin The Vaccines, með Árna
Hjörvar Árnason á bassanum, gefur út
nýja smáskífu 4. desember. Þar verður
lagið Wetsuit af fyrstu plötu sveitarinnar,
What Did You Expect From The Vaccines?,
og einnig Tiger Blood sem var tekið upp í
samvinnu við Albert Hammond Jr., gítar-
leikara The Strokes.
The Vaccines hefur verið verið að semja
nýtt efni að undanförnu og brá sér til New
York og tók upp þetta nýja lag í hljóðverinu
hans. The Vaccines átti að spila á Air-
waves-hátíðinni sem hófst í gær en þurfti
að hætta við vegna veikinda söngvarans.
Næst á dagskrá hjá bandinu er tónleika-
ferð um Bretland sem hefst 28. október
þar sem það hitar fyrst um sinn upp fyrir
Arctic Monkeys. What Did You Expect
From The Vaccines? hefur náð gullsölu í
Bretlandi síðan hún kom út í mars, með
yfir 200 þúsund seld eintök.
Samstarf við Hammond
FLOTT SAMSTARF Árni Hjörvar og félagar í The Vacc-
ines unnu nýverið með Albert Hammond Jr.
Draumpoppararnir í Beach
House spila í Listasafni
Reykjavíkur í kvöld. Sveit-
in hefur verið að semja efni
á nýja plötu og eru þetta
fyrstu tónleikar hennar í
tvo og hálfan mánuð.
Beach House er eitt af stóru nöfn-
unum á Airwaves-hátíðinni í ár.
Þessi bandaríska hljómsveit frá
borginni Baltimore spilar í Lista-
safni Reykjavíkur í kvöld og má
búast við fullu húsi og mögulega
langri biðröð fyrir utan staðinn.
Beach House er skipuð þeim
Alex Scally og Victoriu Legrand
og hafa þau gefið út þrjár plötur.
Sú síðasta, Teen Dream, var af
mörgum talin ein sú besta á síð-
asta ári. Til dæmis fékk hún 9 af
10 í einkunn bæði hjá NME og
Pitchfork.
Í viðtali við Fréttablaðið segist
Scally hlakka mikið til að spila á
Airwaves. „Við höfum ekki spilað
á tónleikum í tvo og hálfan mánuð
og það er líka alltaf mjög spenn-
andi að spila í fyrsta sinn í nýju
landi,“ segir hann afslappaður.
Ástæðan fyrir tónleikaleysinu er
sú að Beach House hefur verið að
semja ný lög fyrir næstu plötu
sína. „Við vorum á tónleikaferð
nánast allt síðasta ár og í byrj-
un þessa árs. Núna höfum við
verið að semja eins mikið og við
höfum getað.“ Spurður hvern-
ig nýju lögin hljómi segir hann:
„Það verða aðrir að meta það.
Þessar lagasmíðar eru bara eðli-
legt framhald fyrir okkur. Við
förum í tónleikaferðir og semjum
síðan lög. Það er bara það sem við
gerum.“
Beach House var stofnuð árið
2005. Scally spilar á gítar og
hljómborð og Legrand syngur og
spilar á orgel. Hann er frá Balti-
more en hún er fædd í Frakklandi.
„Við hittumst í Baltimore. Ég er
þaðan en Victoria flutti þangað,
eiginlega til að spila tónlist. Eitt
leiddi af öðru. Ætli örlögin hafi
ekki verið að verki.“
Hvernig náið þið tvö saman?
„Mjög vel. Ég held að það sé um
tvennt að ræða þegar hljómsveitir
vinna mikið saman og túra. Annað
hvort hatar fólk hvert annað eða
er mjög náið og þannig erum við.
Við erum öll góðir vinir í hljóm-
sveitinni og berum virðingu hvert
fyrir öðru.“
Lög Beach House eru frekar
hæg og útsetningarnar stemnings-
fullar. Þess vegna hefur tónlistin
verið skilgreind sem draumpopp.
Scally hefur ekkert út á nafngift-
ina að setja. „Fólk hefur þörf fyrir
að flokka hluti og ef fólk vill setja
okkur í þennan flokk er það bara
allt í lagi. Við byggjum að mörgu
leyti lögin okkar upp eins og popp-
lög og að bendla okkur við popp
er því rökrétt. Þegar fólk bland-
ar draumum inn í þetta er það að
tala um hljóðfærin og hljómana
sem við notum til að búa til þessa
tónlist sem við elskum.“
Þessi tónlist snýst mikið um að
búa til rétta andrúmsloftið, ekki
satt? „Jú, og þetta er líka dálít-
ið eins og með Trójuhestinn. Að
lauma einhverju risavöxnu inn í
herbergið.“
Eftir tónleikana í kvöld ætla
Scally og félagar að dvelja áfram
hér á landi og verða hér á morgun
og meirihluta laugardagsins. „Við
ætlum að leigja bíl, fara á fleiri
tónleika og reyna að kynnast land-
inu betur,“ segir draumpopparinn.
freyr@frettabladid.is
Tónlistin eins Trójuhestur
BEACH HOUSE Hljómsveitin spilar á Listasafni Reykjavíkur í kvöld og bíða margir spenntir eftir tónleikunum.